Bændablaðið - 02.04.2020, Side 1
4
7. tölublað 2020 ▯ Fimmtudagur 2. apríl ▯ Blað nr. 560 ▯ 26. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Máltækið „Þú segir það með blómum“ á sannarlega vel við um þessar mundir þegar fólki er stíað í sundur og má ekki lengur heilsast eða knúsast vegna COVID-19 faraldursins. Á jafn óvenju-
legum tímum og jarðarbúar eru nú að upplifa er trúlega fátt notalegra en að senda þeim sem manni þykir vænt um falleg blóm til að sýna hug sinn í verki. Fram undan væri að öllu jöfnu mikill
sölutími blómabænda með fermingum og páskum. Nú er búið að slá fermingum á frest og fjölskylduhittingur og hátíðahöld um páska verður með mjög breyttu sniði. Blómabúðir eru hins vegar
fullar af fallegum blómum sem hægt er að nýta til að gleðja fólk. Rakel Ýr Einarsdóttir í Blómavali stendur þar vaktina, reiðubúin að aðstoða fólk við val á blómum. Hún tók saman þessi fallegu
blóm til að sýna lesendum Bændablaðsins hluta af úrvalinu sem þar er í boði og vænta má að svipað sé upp á teningnum í öðrum blómabúðum á landinu. Mynd / Hörður Kristjánsson
Samspil talið mögulegt á milli sýklalyfjaofnotkunar, sýklalyfjaónæmra baktería og dánartíðni í heimsfaraldri:
Sýklalyfjaónæmi gæti verið meðvirkandi
ástæða fyrir dauða af völdum COVID-19
Í kjölfar COVID-19 sýkinganna
sem ganga yfir heiminn heyrist
æ oftar að þeir sem hafa látist
hafi verið með undirliggjandi
sjúkdóma sem hafi magnast
upp vegna veirunnar. Oft er
talað um sjúkdóma sem tengj-
ast lungum og öndunarfærum
eða sýklalyfja ónæmi.
Karl G. Kristinsson, yfir-
læknir á sýkla- og veirufræði-
deild Landspítalans, segir að
sýklalyfja ónæmi gæti vel verið
meðvirkandi ástæða fyrir dauða
vegna COVID-19 en ekki eina
ástæðan.
Blanda sýklalyfjaónæmis
og COVID-19
Fyrir skömmu birtist á vefsíðu
Aftenposten grein eftir Erik
Martiniussen, höfund bókarinnar
Stríðið við bakteríurnar, sem ber
fyrirsögnina „Derfor tar korona-
viruset så mange liv i Italia“.
Í greininni segir Martiniussen
að mögulegt sé að háar dánartölur
á Ítalíu orsakist af því sem hann
segir vera lífshættulega blöndu
af sýklalyfjaónæmum bakterí-
um og COVID-19. Martiniussen
segir að fjöldi fólks á Ítalíu sem
smitast hafi af veirunni látist
ekki af hennar völdum heldur af
undirliggjandi sjúkdómum eða
af sýklalyfjaónæmum bakteríum.
Martiniussen bendir á að
dánartíðni í Noregi og annars
staðar þar sem notkun á sýklalyfj-
um sé tiltölulega lítil, á það einnig
við um Ísland, sé mun minni en
þar sem notkunin á sýklalyfjum
er meiri. Samkvæmt því sem segir
í greininni látast árlega tæplega
11 þúsund manns á Ítalíu vegna
sýklalyfja ónæmra baktería, aðal-
lega E.coli, en 69 í Noregi.
Fylgisýkingar
Karl G. Kristinsson, yfirlæknir
á sýkla- og veirufræðideild
Landspítalans og prófessor í
sýklafræði, segir að þrátt fyrir
að manna á meðal sé talað um
COVID-19 sé það nafnið á sjúk-
dómnum en að veiran sjálf heiti
SARS- CoOV-2.
„Ég hef sjálfur og fleiri velt fyrir
sér af hverju dánartíðnin er hærri á
Ítalíu en í flestum öðrum löndum.
Bent hefur verið á að í mörgum
tilfellum sé um eldri einstaklinga
að ræða og að heilbrigðisþjónustan
hafi ekki ráðið við að veita öllum
viðeigandi meðferð.
Því skal þó ekki neita að ein
möguleg ástæða þessa séu fjöl-
ónæmar bakteríur þar sem bakt-
eríusýkingar koma oft upp í kjöl-
far veirusýkinga. Í nýlegri grein
í Lancet var greint frá því að í
Wuhan í Kína voru 50% af þeim
sem létust með fylgibakteríusýk-
ingu sem kom í kjölfar veirusýk-
ingarinnar. Þetta er mjög hátt hlut-
fall og hugsanlega má útskýra það
með því að flestir þessara sjúk-
linga fóru í öndunarvél og það að
fara í öndunarvél eykur hættuna
á að fá bakteríusýkingu. Ef upp
kemur bakteríusýking verður að
meðhöndla hana með sýklalyfjum.
Flestum gefin sýklalyf
„Flestir sjúklingar sem sýkjast
af COVID-19 og þurfa að leggj-
ast inn á gjörgæsludeild, fara á
sýklalyf, þrátt fyrir að vitað sé að
sýklalyf virki ekki á veiruna.
„Sýklalyfin eru gefin til að
koma í veg fyrir fylgisýkingu eða
til að meðhöndla hana sé hún til
staðar. Slíkt á að geta gengið og
komið í veg fyrir fylgisýkingar í
þeim tilvikum þar sem bakteríurn-
ar eru næmar fyrir lyfjunum sem
verið er að nota.
Samkvæmt úttekt sem var gerð
áður en COVID-19 kom upp, þá
látast langflestir í heiminum í
Evrópu af völdum nær alsýkla-
lyfjaónæmra baktería á Ítalíu og
þannig hefur það verið í mörg ár.
Ef bakteríuflóran á sjúkrahúsum
á Ítalíu er í samræmi við þetta,
er ástandið þar mun verra en ef
eingöngu væri um bakteríur að
ræða sem væru ónæmar fyrir
hefðbundnum sýklalyfjum,“ segir
Karl.
Gæti verið meðvirkandi
„Sýklalyfjaónæmi gæti vel verið
meðvirkandi ástæða fyrir dauða
vegna COVID-19 en ekki eina
ástæðan.“
Aðspurður segir Karl að
dánartíðni á Spáni sé einnig há
og að þar sé sýklalyfjaónæmi
einnig mikið. „Það er þó líklega
ekki eins slæmt og á sjúkrahúsum
á Ítalíu en samt ekki gott, enda
dánartíðin þar há. Hvað varðar
Þýskaland, þar sem talsvert er
notað af sýklalyfjum, er staðan
á spítölum mun betri þrátt fyrir
að hún sé ekki eins góð og hjá
okkur og á Norðurlöndunum.“
Sýklalyfjaónæmi
ógn við lýðheilsu
Alþjóða heilbrigðisstofnunin,
Evrópusambandið og Smitvarnar-
miðstöð Bandaríkjanna hafa lýst
því yfir að sýklalyfjaónæmi sé
ein mesta ógnin við lýðheilsu í
heiminum í dag. /VH
24–25
Bjarki Freyr Sigurjónsson
er kjötmeistari Íslands 2020
Mjólkurvörur seljast vel
í COVID-19 ástandinu
12
Aðgerðapakki vegna
áhrifa COVID-19