Bændablaðið - 02.04.2020, Blaðsíða 24

Bændablaðið - 02.04.2020, Blaðsíða 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. apríl 202024 MATVÆLI&VINNSLA Bjarki Freyr Sigurjónsson, kjötiðnaðarmeistari hjá Sláturfélagi Suðurlands á Hvolsvelli, hlaut titilinn Kjötmeistari Íslands 2020. Hann er einnig í nýju landsliði kjötiðnaðarmanna sem hugðist taka þátt í heimsmeistarakeppni kjötiðnaðarmanna, „World Butcer Challange (WBC)“, sem halda átti í Sacramento í Bandaríkjunum í september 2020 en hefur nú verið frestað fram í ágúst 2021. Mynd / Hörður Kristjánsson Fagkeppni kjötiðnaðarmanna: Bjarki Freyr Sigurjónsson er kjötmeistari Íslands 2020 – Kjötiðnaðarmeistarar SS voru í tveim efstu sætunum og kjötmeistari frá Ísfugli var í þriðja sæti Bjarki Freyr Sigurjónsson, kjöt­ iðnaðarmeistari hjá Slátur félagi Suðurlands á Hvolsvelli, hlaut tit­ ilinn Kjö tmeistari Íslands 2020. Það var niðurstaða dómara í „Fagkeppni kjötiðnaðarmanna“ sem fram fór í fyrri viku. Bjarki Freyr er verkstjóri í pylsugerð og farslögun hjá SS á Hvolsvelli. Hann er líka í landsliði kjötiðnaðarmanna sem ráðgert er að taki þátt í heimsmeistarakeppni kjötiðnaðarmanna, „World Butcer Challange (WBC)“, sem halda átti í Sacramento í Bandaríkjunum í sept- ember 2020. Henni hefur nú verið frestað fram í ágúst 2021. Keppnin fer fram á tveggja ára fresti og árið 2018 vann landslið frænda okkar Íra þessa keppni. Íslenska liðið tók einmitt þátt í keppni á Norður- Írlandi dagana 2.–3. október síð- astliðinn og keppti þar við lið frá Skotlandi, Englandi, Þýskalandi og Írlandi. Meistarafélag kjötiðnaðarmanna 30 ára Meistarafélag kjötiðnaðarmanna (MFK), sem stendur fyrir fag- keppni kjötiðnaðarmanna á Íslandi, var stofnað 1990 og á því 30 ára afmæli á þessu ári. MFK er búið að halda þessa fagkeppni síðan 1992 og líta þeir m.a. á þetta sem lið í að hvetja kjötiðnaðarmenn til góðra verka og ekki síður að vera aðdrátt- arafl til að draga fólk inn í greinina. Vegna COVID-19 faraldursins var ekki uppskeruhátíð með verðlauna- afhendingum eins og venja hefur verið, heldur voru úrslit kynnt í sérstöku riti sem gefið var út á vef Meistarafélags kjötiðnaðarmanna. Hver keppandi mátti senda inn allt að 10 vörur Keppnin fór þannig fram að kjöt- iðnaðar menn sendu inn vörur með nafnleynd til dómarahóps sem dæmdi vörurnar eftir faglegum gæðum. Hver keppandi mátti senda inn allt að 10 vörur til keppninnar. Dómnefnd fór síðan yfir allar innsendar vörur í kennslueldhúsi Menntaskólans í Kópavogi. Allar vörur byrjuðu með fullt hús, eða 50 stig. Dómarar leituðu síðan að öllum hugsanlegum göllum. Við hvern galla sem finnst fækkar stig- um. Með þessu fyrirkomulagi gátu margar vörur fengið gull-, silfur- eða bronsverðlaun. Af innsendum vörum fengu 38% gullverðlaun og 31% fengu silfurverðlaun. Til þess að fá gullverðlaun þurfti varan að fá 49 til 50 stig og vera nánast gallalaus. Til þess að fá silfurverðlaun þurfti varan að fá 46 til 48 stig og mátti aðeins vera með lítils háttar galla. Til þess að fá bronsverðlaun þurfti varan að fá 42 til 45 stig. Titilinn Kjötmeistari Íslands hlaut svo sá kjötiðnaðarmaður sem fékk flest stig samanlagt úr fimm stigahæstu vörum sínum. Kjötmeistari Íslands 2020 Að þessu sinni var það Bjarki Freyr Sigurjónsson, kjötiðnaðarmeistari hjá Sláturfélagi Suðurlands, sem hlaut flest stig samanlagt og var því réttnefndur Kjötmeistari Íslands 2020. Þrír stigahæstu einstak ling- arnir í fag keppn inni voru: • Bjarki Freyr Sigurjónsson, Sláturfélagi Suðurlands, með 243 stig. • Steinar Þórarinsson, Sláturfélagi Suðurlands, með 241 stig. • Þorri Helgason, Ísfugli, með 230 stig. Athyglisverðasta nýjung keppninnar Fyrir athyglisverðustu nýjungina var veitt sérstök viðurkenning og var það fyrirtækið NOKK sem veitti þar verðlaun. Athyglisverðasta nýjungin reyndist vera Kalkúnasnakk sem Þorri Helgason hjá Ísfugli gerði. Verðlaun búgreinafélaga Besta varan úr svínakjöti: Svínaræktarfélag Íslands veitti sérstök verðlaun fyrir bestu vör- una unna úr svínakjöti. Þar var um að ræða Rauðvínssalami eftir Benedikt Benediktsson hjá Sláturfélagi Suðurlands. Besta varan úr alifuglakjöti: Félag kjúklingabænda veitti sér- stök verðlaun fyrir bestu vöruna unna úr alifuglakjöti. Það var Kjúklingapaté eftir Björgvin Bjarnason hjá Reykjagarði hf. Besta varan úr folalda­ og hrossakjöti: Kjötframleiðendur og hrossa- ræktendur veittu sérstök verð- laun fyrir bestu vöruna unna úr hrossa- eða folaldakjöti. Það var Fjalla­Cayen grafið hrossafille eftir Jónas Pálmar Björnsson hjá Sláturfélagi Suður lands. Besta varan úr nautakjöti: Landssamband kúabænda veitti verðlaun fyrir bestu vöruna unna úr nautakjöti. Það var Grafið nautafille m/lakkrískeim eftir Jónas Pálmar Björnsson hjá Sláturfélagi Suðurlands. Lambaorðan Landssamtök sauðfjárbænda veittu lambaorðuna þeim kjöt- iðnaðarmanni sem á bestu vör- una unna úr lambakjöti. Það var Tindfjalla hangikjet eftir Odd Árnason hjá Sláturfélagi Suðurlands. Piparostapylsur með sveppum eft­ ir Jón Sigurðsson hjá Slátur félagi Suðurlands. Rauðvínssalami eftir Benedikt Bene­ diktsson hjá Sláturfélagi Suðurlands. Athyglisverðasta nýjungin reyndist vera Kalkúnasnakk sem Þorri Helga­ son hjá Ísfugli gerði. Grafið nautafille m/lakkrískeim eftir Jónas Pálmar Björnsson hjá Slátur­ félagi Suðurlands. Kjúklingapaté eftir Björgvin Bjarna­ son hjá Reykjagarði hf. Myndir af vörum / Björk Guðbrandsdóttir Sviðasulta eftir Steinar Þórarinsson hjá Sláturfélagi Suðurlands. Eldhressir kjötiðnaðarmenn í Meistarafélagi kjötiðnaðarmanna sem er 30 ára á þessu ári. Mynd / MFK Kristján G. Kristjánsson yfirdóm­ ari að störfum. Fyrir framan hann er skemmtileg smurkæfa sem heitir Eistnaflug. Hún er úr lambaeistum og lambaafskurði. Mynd / HKr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.