Bændablaðið - 02.04.2020, Blaðsíða 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. apríl 202024
MATVÆLI&VINNSLA
Bjarki Freyr Sigurjónsson, kjötiðnaðarmeistari hjá Sláturfélagi Suðurlands á Hvolsvelli, hlaut titilinn Kjötmeistari Íslands 2020. Hann er einnig í nýju landsliði kjötiðnaðarmanna sem hugðist
taka þátt í heimsmeistarakeppni kjötiðnaðarmanna, „World Butcer Challange (WBC)“, sem halda átti í Sacramento í Bandaríkjunum í september 2020 en hefur nú verið frestað fram í ágúst 2021.
Mynd / Hörður Kristjánsson
Fagkeppni kjötiðnaðarmanna:
Bjarki Freyr Sigurjónsson er kjötmeistari Íslands 2020
– Kjötiðnaðarmeistarar SS voru í tveim efstu sætunum og kjötmeistari frá Ísfugli var í þriðja sæti
Bjarki Freyr Sigurjónsson, kjöt
iðnaðarmeistari hjá Slátur félagi
Suðurlands á Hvolsvelli, hlaut tit
ilinn Kjö tmeistari Íslands 2020.
Það var niðurstaða dómara í
„Fagkeppni kjötiðnaðarmanna“
sem fram fór í fyrri viku.
Bjarki Freyr er verkstjóri í
pylsugerð og farslögun hjá SS á
Hvolsvelli. Hann er líka í landsliði
kjötiðnaðarmanna sem ráðgert er
að taki þátt í heimsmeistarakeppni
kjötiðnaðarmanna, „World Butcer
Challange (WBC)“, sem halda átti í
Sacramento í Bandaríkjunum í sept-
ember 2020. Henni hefur nú verið
frestað fram í ágúst 2021. Keppnin
fer fram á tveggja ára fresti og árið
2018 vann landslið frænda okkar
Íra þessa keppni. Íslenska liðið
tók einmitt þátt í keppni á Norður-
Írlandi dagana 2.–3. október síð-
astliðinn og keppti þar við lið frá
Skotlandi, Englandi, Þýskalandi og
Írlandi.
Meistarafélag
kjötiðnaðarmanna
30 ára
Meistarafélag kjötiðnaðarmanna
(MFK), sem stendur fyrir fag-
keppni kjötiðnaðarmanna á Íslandi,
var stofnað 1990 og á því 30 ára
afmæli á þessu ári. MFK er búið að
halda þessa fagkeppni síðan 1992
og líta þeir m.a. á þetta sem lið í
að hvetja kjötiðnaðarmenn til góðra
verka og ekki síður að vera aðdrátt-
arafl til að draga fólk inn í greinina.
Vegna COVID-19 faraldursins var
ekki uppskeruhátíð með verðlauna-
afhendingum eins og venja hefur
verið, heldur voru úrslit kynnt í
sérstöku riti sem gefið var út á vef
Meistarafélags kjötiðnaðarmanna.
Hver keppandi mátti
senda inn allt að 10 vörur
Keppnin fór þannig fram að kjöt-
iðnaðar menn sendu inn vörur með
nafnleynd til dómarahóps sem
dæmdi vörurnar eftir faglegum
gæðum. Hver keppandi mátti senda
inn allt að 10 vörur til keppninnar.
Dómnefnd fór síðan yfir allar
innsendar vörur í kennslueldhúsi
Menntaskólans í Kópavogi.
Allar vörur byrjuðu með fullt hús,
eða 50 stig. Dómarar leituðu síðan
að öllum hugsanlegum göllum. Við
hvern galla sem finnst fækkar stig-
um. Með þessu fyrirkomulagi gátu
margar vörur fengið gull-, silfur-
eða bronsverðlaun. Af innsendum
vörum fengu 38% gullverðlaun og
31% fengu silfurverðlaun.
Til þess að fá gullverðlaun þurfti
varan að fá 49 til 50 stig og vera
nánast gallalaus.
Til þess að fá silfurverðlaun
þurfti varan að fá 46 til 48 stig og
mátti aðeins vera með lítils háttar
galla.
Til þess að fá bronsverðlaun
þurfti varan að fá 42 til 45 stig.
Titilinn Kjötmeistari Íslands
hlaut svo sá kjötiðnaðarmaður sem
fékk flest stig samanlagt úr fimm
stigahæstu vörum sínum.
Kjötmeistari Íslands 2020
Að þessu sinni var það Bjarki Freyr
Sigurjónsson, kjötiðnaðarmeistari
hjá Sláturfélagi Suðurlands, sem
hlaut flest stig samanlagt og var því
réttnefndur Kjötmeistari Íslands
2020. Þrír stigahæstu einstak ling-
arnir í fag keppn inni voru:
• Bjarki Freyr Sigurjónsson,
Sláturfélagi Suðurlands, með
243 stig.
• Steinar Þórarinsson,
Sláturfélagi Suðurlands, með
241 stig.
• Þorri Helgason, Ísfugli, með
230 stig.
Athyglisverðasta
nýjung keppninnar
Fyrir athyglisverðustu nýjungina var
veitt sérstök viðurkenning og var
það fyrirtækið NOKK sem veitti þar
verðlaun.
Athyglisverðasta nýjungin
reyndist vera Kalkúnasnakk sem
Þorri Helgason hjá Ísfugli gerði.
Verðlaun búgreinafélaga
Besta varan úr svínakjöti:
Svínaræktarfélag Íslands veitti
sérstök verðlaun fyrir bestu vör-
una unna úr svínakjöti. Þar var
um að ræða Rauðvínssalami
eftir Benedikt Benediktsson hjá
Sláturfélagi Suðurlands.
Besta varan úr alifuglakjöti:
Félag kjúklingabænda veitti sér-
stök verðlaun fyrir bestu vöruna
unna úr alifuglakjöti. Það var
Kjúklingapaté eftir Björgvin
Bjarnason hjá Reykjagarði hf.
Besta varan úr folalda og
hrossakjöti:
Kjötframleiðendur og hrossa-
ræktendur veittu sérstök verð-
laun fyrir bestu vöruna unna
úr hrossa- eða folaldakjöti.
Það var FjallaCayen grafið
hrossafille eftir Jónas Pálmar
Björnsson hjá Sláturfélagi
Suður lands.
Besta varan úr nautakjöti:
Landssamband kúabænda veitti
verðlaun fyrir bestu vöruna unna
úr nautakjöti. Það var Grafið
nautafille m/lakkrískeim eftir
Jónas Pálmar Björnsson hjá
Sláturfélagi Suðurlands.
Lambaorðan
Landssamtök sauðfjárbænda
veittu lambaorðuna þeim kjöt-
iðnaðarmanni sem á bestu vör-
una unna úr lambakjöti. Það
var Tindfjalla hangikjet eftir
Odd Árnason hjá Sláturfélagi
Suðurlands.
Piparostapylsur með sveppum eft
ir Jón Sigurðsson hjá Slátur félagi
Suðurlands.
Rauðvínssalami eftir Benedikt Bene
diktsson hjá Sláturfélagi Suðurlands.
Athyglisverðasta nýjungin reyndist
vera Kalkúnasnakk sem Þorri Helga
son hjá Ísfugli gerði.
Grafið nautafille m/lakkrískeim eftir
Jónas Pálmar Björnsson hjá Slátur
félagi Suðurlands.
Kjúklingapaté eftir Björgvin Bjarna
son hjá Reykjagarði hf.
Myndir af vörum / Björk Guðbrandsdóttir
Sviðasulta eftir Steinar Þórarinsson
hjá Sláturfélagi Suðurlands.
Eldhressir kjötiðnaðarmenn í Meistarafélagi kjötiðnaðarmanna sem er 30 ára á þessu ári. Mynd / MFK
Kristján G. Kristjánsson yfirdóm
ari að störfum. Fyrir framan hann
er skemmtileg smurkæfa sem heitir
Eistnaflug. Hún er úr lambaeistum
og lambaafskurði. Mynd / HKr.