Bændablaðið - 02.04.2020, Blaðsíða 14

Bændablaðið - 02.04.2020, Blaðsíða 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. mars 202014 FRÉTTIR Samstarfssamningur stjórnvalda, RML, Skógræktarinnar, Landgræðslunnar og LS um loftslagsvænni landbúnað: Tækifæri til að ástunda umhverfisvænni og ábatasamari landbúnað – Bændum greitt fyrir vinnu þeirra við verkefnið Á morgunverðarfundi á Hótel Sögu, sem umhverfis- og auð- lindaráðuneytið bauð til í byrjun mars, var undirritaður samn- ingur um verkefnið Lofts lags - vænn landbúnaður, sem er samstarfsverkefni stjórn valda, Ráðgjafarmiðstöðvar land- búnaðar ins (RML), Skógræktar- innar, Landgræðslunnar og Landssamtaka sauðfjárbænda um aðgerðir í loftslagsmálum. Markmið verkefnisins er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá landbúnaði og vegna landnýtingar og auka kolefnisbindingu í jarðvegi og gróðri. Yfirskrift fundarins var Landbún­ aður, loftslag og náttúruvernd og hófst hann með erindi Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis­ og auð­ lindaráðherra. Hann sagði að í stjórn­ arsáttmálanum sé kveðið á um sam­ starf við sauðfjárbændur um kolefn­ isjöfnun greinarinnar. Ráðuneyti hans hafi leitt undirbúningsvinnu verkefnisins Loftslagsvænn landbún­ aður í samstarfi við atvinnuvega­ og nýsköpunarráðuneytið, Ráðgjafar­ miðstöð landbúnaðarins, Skóg­ ræktina og Landgræðsluna. Sagði hann að allar þessar stofnanir eigi það sammerkt að hafa mikil tengsl við bændur, hver á sínu sviði. Um 20 prósent losunar frá landbúnaði „Losun gróðurhúsalofttegunda frá landbúnaði, þ.e. búfé og áburði, telur um 20% af þeirri losun sem fellur undir beina ábyrgð íslenskra stjórnvalda. Ljóst er að frumkvæði bænda sjálfra og áhugi þeirra á lofts­ lagsmálum hefur stuðlað að því að ákvæði þessu tengt ratar í stjórn­ arsáttmála. Þannig hafa búgreinar sett sér markmið um kolefnishlut­ leysi, en til þess þarf að vinna að samdrætti í losun og auka kolefn­ isbindingu,“ sagði ráðherra. „Verkefnið byggir á heildstæðri ráðgjöf og fræðslu fyrir bændur. Jafnframt geta þeir sótt um að vinna með sitt eigið bú, greina losun, móta aðgerðaáætlun um hvernig megi draga úr losun og vinna að henni með aðstoð. Þessir bændur munu vonandi ryðja brautina fyrir aðra, þar sem lagt verður mat á árangur mismunandi aðgerða og hvernig gengur að framkvæma þær. Þetta verkefni er mikilvægt bæði land­ búnaðinum til að fá reynslu og mat á mismunandi aðgerðum og einnig stjórnvöldum til að ná heildarárangri í samdrætti í losun gróðurhúsaloft­ tegunda. Enn sem komið er stendur þetta eingöngu sauðfjárbændum til boða, en ég hygg að hér sé komin ágætis fyrirmynd til að vinna með öllum búgreinum.“ Bætt í stuðning við landgræðslu- og skógræktarstarf Guðmundur Ingi sagði að í tengslum við verkefnið yrði bætt við stuðn­ ing við landgræðslu­ og skógrækt­ arstarf. „Á sama tíma fer nú fram heildarstefnumörkun fyrir land­ græðslu og skógrækt en í vinnslu eru stefnumarkandi áætlanir fyrir hvort tveggja á grundvelli nýrra laga. Þær ættu að skerpa á forgangsröðun í verkefnum ríkisins og draga fram samlegð í þeim verkefnum sem verið er að sinna. Ég bind miklar vonir við alla þessa vinnu. Í stjórnarsáttmálanum er einnig kveðið á um það að samhliða nýrri kynslóð landbúnaðarsamninga verði innleiddir sérstakir aðlögunarsamn­ ingar um nýja starfsemi til sveita. Þar er hugmyndin að bændur geti byggt upp nýjar búgreinar eða haslað sér völl á öðrum sviðum en jafnframt að samningarnir séu tímabundnir, háðir skilyrðum um byggðafestu og verðmætasköpun og geti stuðlað að nýsköpun, náttúruvernd og nýjum áherslum í rannsóknum og menntun. Mikil samlegð er á milli landbún­ aðar og náttúruverndar þegar kemur að sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda, sem felur í sér mikil tækifæri til sókn­ ar í sveitum landsins. Landbúnaður er háður náttúrulegum aðstæðum. Því felast töluverð umhverfisleg og efnahagsleg tækifæri í að bændur nýti sér möguleg samlegðaráhrif landbún­ aðar og náttúruverndar til að stunda umhverfisvænan en jafnframt ábata­ saman landbúnað á jörðum sínum,“ sagði Guðmundur Ingi. Greiðslur fyrir þátttöku háðar skilyrðum Borgar Páll Bragason, fagstjóri hjá RML, kynnti á fundinum þá undir­ búningsvinnu sem hefur snúið að þeim. Hann segir að verkefnið feli í grundvallaratriðum í sér fræðslu og heildstæða ráðgjöf til bænda um samspil landbúnaðar og loftslags­ mála. „Verkefnið felur í sér umsjón og stjórnun verkefnisins, mótun verklagsreglna fyrir verkefnið, mótun námsefnis, undirbúning og framkvæmd námskeiða og fræðslu, auglýsingar og mat á umsóknum um þátttöku í verkefninu, gerð samn­ inga við þátttakendur, ráðgjöf til þátttakenda í verkefninu, mat á ár­ angri og kynningu á framvindu og niðurstöðum verkefnisins. „Greitt verður fyrir þátttöku í verkefninu, sem annars vegar eru tengdar gerð, framfylgd og endur­ skoðun aðgerðaráætlunar fyrir hvert bú og hins vegar því hvort skýrslu­ hald þátttakenda teljist fullnægjandi samkvæmt þeim viðmiðum sem verða sett í verklagsreglum verk­ efnisins. Ráðgjöfin mun felast í gerð aðgerða áætlana fyrir ein stök bú til að draga úr losun gróður húsa loft­ tegunda. Ávinningurinn fyrir þátt­ takendur mun felast bæði í lofts­ lagsvænni búskap fyrir búin en einnig verður hann fjárhagslegur. Til dæmis verður 50 þúsund króna niðurgreiðsla á efnagreiningakostn­ aði og allt að 600 þúsund króna greiðslur á ári vegna eigin vinnu við gerð aðgerðaáætlunarinnar og aðgerða sem miða að því að draga úr losun og auka kolefnisbindingu. Ekki má gleyma því að með bættu kolefnisspori fylgir betri búrekstur,“ segir Borgar Páll. Námskeiðahald hefur verið í gangi í febrúar og mars á vegum RML, Landgræðslunnar og Skógræktarinnar og Framleiðni­ sjóður landbúnaðarins hefur komið að fjármögnun þeirra. Þegar nám­ skeiðahaldi er lokið verður auglýst eftir þátttöku búa. Fyrir þetta ár er gert ráð fyrir að 15 bú geti tekið þátt, en aðeins sauðfjárbú í gæðastýr­ ingu. /smh Frá undirritun samningsins í Bændahöllinni í byrjun mars. Talið frá vinstri: Aðalsteinn Sigurgeirsson, fagmálastjóri Skógræktarinnar, Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra, Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Karvel L. Karvelsson, framkvæmdastjóri Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins og Árni Bragason landgræðslustjóri. Myndir / atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra flytur erindi sitt á morgunverðarfundinum. Alvöru dælur sem vinna verkið á methraða. Þú færð Nilfisk hjá Rekstrarlandi í Vatnagörðum og í útibúum Olís um land allt. REKSTRARLAND verslun | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | Söluver 515 1100 | rekstrarland.is OPIÐ ALLA VIRKA DAGA KL. 8–17 NILFISK HÁÞRÝSTIDÆLUR Passaðu þrýstinginn – hann þarf nefnilega að vera nægur Pipar\TBW A
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.