Bændablaðið - 02.04.2020, Qupperneq 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. mars 202014
FRÉTTIR
Samstarfssamningur stjórnvalda, RML, Skógræktarinnar, Landgræðslunnar og LS um loftslagsvænni landbúnað:
Tækifæri til að ástunda umhverfisvænni
og ábatasamari landbúnað
– Bændum greitt fyrir vinnu þeirra við verkefnið
Á morgunverðarfundi á Hótel
Sögu, sem umhverfis- og auð-
lindaráðuneytið bauð til í byrjun
mars, var undirritaður samn-
ingur um verkefnið Lofts lags -
vænn landbúnaður, sem er
samstarfsverkefni stjórn valda,
Ráðgjafarmiðstöðvar land-
búnaðar ins (RML), Skógræktar-
innar, Landgræðslunnar og
Landssamtaka sauðfjárbænda
um aðgerðir í loftslagsmálum.
Markmið verkefnisins er að draga
úr losun gróðurhúsalofttegunda frá
landbúnaði og vegna landnýtingar
og auka kolefnisbindingu í jarðvegi
og gróðri.
Yfirskrift fundarins var Landbún
aður, loftslag og náttúruvernd og hófst
hann með erindi Guðmundar Inga
Guðbrandssonar umhverfis og auð
lindaráðherra. Hann sagði að í stjórn
arsáttmálanum sé kveðið á um sam
starf við sauðfjárbændur um kolefn
isjöfnun greinarinnar. Ráðuneyti
hans hafi leitt undirbúningsvinnu
verkefnisins Loftslagsvænn landbún
aður í samstarfi við atvinnuvega og
nýsköpunarráðuneytið, Ráðgjafar
miðstöð landbúnaðarins, Skóg
ræktina og Landgræðsluna. Sagði
hann að allar þessar stofnanir eigi
það sammerkt að hafa mikil tengsl
við bændur, hver á sínu sviði.
Um 20 prósent losunar
frá landbúnaði
„Losun gróðurhúsalofttegunda frá
landbúnaði, þ.e. búfé og áburði,
telur um 20% af þeirri losun sem
fellur undir beina ábyrgð íslenskra
stjórnvalda. Ljóst er að frumkvæði
bænda sjálfra og áhugi þeirra á lofts
lagsmálum hefur stuðlað að því að
ákvæði þessu tengt ratar í stjórn
arsáttmála. Þannig hafa búgreinar
sett sér markmið um kolefnishlut
leysi, en til þess þarf að vinna að
samdrætti í losun og auka kolefn
isbindingu,“ sagði ráðherra.
„Verkefnið byggir á heildstæðri
ráðgjöf og fræðslu fyrir bændur.
Jafnframt geta þeir sótt um að vinna
með sitt eigið bú, greina losun, móta
aðgerðaáætlun um hvernig megi
draga úr losun og vinna að henni
með aðstoð. Þessir bændur munu
vonandi ryðja brautina fyrir aðra,
þar sem lagt verður mat á árangur
mismunandi aðgerða og hvernig
gengur að framkvæma þær. Þetta
verkefni er mikilvægt bæði land
búnaðinum til að fá reynslu og mat
á mismunandi aðgerðum og einnig
stjórnvöldum til að ná heildarárangri
í samdrætti í losun gróðurhúsaloft
tegunda. Enn sem komið er stendur
þetta eingöngu sauðfjárbændum til
boða, en ég hygg að hér sé komin
ágætis fyrirmynd til að vinna með
öllum búgreinum.“
Bætt í stuðning við landgræðslu-
og skógræktarstarf
Guðmundur Ingi sagði að í tengslum
við verkefnið yrði bætt við stuðn
ing við landgræðslu og skógrækt
arstarf. „Á sama tíma fer nú fram
heildarstefnumörkun fyrir land
græðslu og skógrækt en í vinnslu eru
stefnumarkandi áætlanir fyrir hvort
tveggja á grundvelli nýrra laga. Þær
ættu að skerpa á forgangsröðun í
verkefnum ríkisins og draga fram
samlegð í þeim verkefnum sem
verið er að sinna. Ég bind miklar
vonir við alla þessa vinnu.
Í stjórnarsáttmálanum er einnig
kveðið á um það að samhliða nýrri
kynslóð landbúnaðarsamninga verði
innleiddir sérstakir aðlögunarsamn
ingar um nýja starfsemi til sveita. Þar
er hugmyndin að bændur geti byggt
upp nýjar búgreinar eða haslað sér
völl á öðrum sviðum en jafnframt
að samningarnir séu tímabundnir,
háðir skilyrðum um byggðafestu og
verðmætasköpun og geti stuðlað að
nýsköpun, náttúruvernd og nýjum
áherslum í rannsóknum og menntun.
Mikil samlegð er á milli landbún
aðar og náttúruverndar þegar kemur
að sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda,
sem felur í sér mikil tækifæri til sókn
ar í sveitum landsins. Landbúnaður
er háður náttúrulegum aðstæðum.
Því felast töluverð umhverfisleg og
efnahagsleg tækifæri í að bændur nýti
sér möguleg samlegðaráhrif landbún
aðar og náttúruverndar til að stunda
umhverfisvænan en jafnframt ábata
saman landbúnað á jörðum sínum,“
sagði Guðmundur Ingi.
Greiðslur fyrir þátttöku
háðar skilyrðum
Borgar Páll Bragason, fagstjóri hjá
RML, kynnti á fundinum þá undir
búningsvinnu sem hefur snúið að
þeim. Hann segir að verkefnið feli
í grundvallaratriðum í sér fræðslu
og heildstæða ráðgjöf til bænda um
samspil landbúnaðar og loftslags
mála. „Verkefnið felur í sér umsjón
og stjórnun verkefnisins, mótun
verklagsreglna fyrir verkefnið,
mótun námsefnis, undirbúning og
framkvæmd námskeiða og fræðslu,
auglýsingar og mat á umsóknum um
þátttöku í verkefninu, gerð samn
inga við þátttakendur, ráðgjöf til
þátttakenda í verkefninu, mat á ár
angri og kynningu á framvindu og
niðurstöðum verkefnisins.
„Greitt verður fyrir þátttöku í
verkefninu, sem annars vegar eru
tengdar gerð, framfylgd og endur
skoðun aðgerðaráætlunar fyrir hvert
bú og hins vegar því hvort skýrslu
hald þátttakenda teljist fullnægjandi
samkvæmt þeim viðmiðum sem
verða sett í verklagsreglum verk
efnisins.
Ráðgjöfin mun felast í gerð
aðgerða áætlana fyrir ein stök bú til
að draga úr losun gróður húsa loft
tegunda. Ávinningurinn fyrir þátt
takendur mun felast bæði í lofts
lagsvænni búskap fyrir búin en
einnig verður hann fjárhagslegur.
Til dæmis verður 50 þúsund króna
niðurgreiðsla á efnagreiningakostn
aði og allt að 600 þúsund króna
greiðslur á ári vegna eigin vinnu
við gerð aðgerðaáætlunarinnar og
aðgerða sem miða að því að draga
úr losun og auka kolefnisbindingu.
Ekki má gleyma því að með bættu
kolefnisspori fylgir betri búrekstur,“
segir Borgar Páll.
Námskeiðahald hefur verið í
gangi í febrúar og mars á vegum
RML, Landgræðslunnar og
Skógræktarinnar og Framleiðni
sjóður landbúnaðarins hefur komið
að fjármögnun þeirra. Þegar nám
skeiðahaldi er lokið verður auglýst
eftir þátttöku búa. Fyrir þetta ár er
gert ráð fyrir að 15 bú geti tekið þátt,
en aðeins sauðfjárbú í gæðastýr
ingu. /smh
Frá undirritun samningsins í Bændahöllinni í byrjun mars. Talið frá vinstri: Aðalsteinn Sigurgeirsson, fagmálastjóri Skógræktarinnar, Guðmundur Ingi
Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra, Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Karvel L. Karvelsson, framkvæmdastjóri
Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins og Árni Bragason landgræðslustjóri. Myndir / atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið
Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra flytur erindi
sitt á morgunverðarfundinum.
Alvöru dælur sem vinna verkið á methraða. Þú færð Nilfisk hjá Rekstrarlandi
í Vatnagörðum og í útibúum Olís um land allt.
REKSTRARLAND verslun | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | Söluver 515 1100 | rekstrarland.is
OPIÐ ALLA
VIRKA DAGA
KL. 8–17
NILFISK
HÁÞRÝSTIDÆLUR
Passaðu þrýstinginn – hann þarf nefnilega að vera nægur
Pipar\TBW
A