Bændablaðið - 02.04.2020, Qupperneq 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. apríl 20204
FRÉTTIR
Mjólkurvörur seljast vel
í COVID-19 ástandinu
„Við finnum fyrir töluvert
meiri sölu á mjólkurvörum
Mjólkur samsölunnar (MS)
í verslunum og salan fyrstu
dagana eftir að samkomu-
bannið var sett á slagaði
upp í Þorláksmessu í nokkra
daga í röð,“ segir Sunna
Gunnars Marteinsdóttir, sam-
skiptastjóri MS, aðspurð um
söluna eftir að COVID-19 kom
upp.
„Salan hefur náð meira jafn
vægi núna en fólk er samt að
neyta aðeins meira af mjólkur
vörum en áður. Mötuneyti kaupa
t.d. meira af skyri sem auðvelt er
að afhenda til starfsfólks.
Við hófum áætlanagerð í febr
úar og að safna birgðum þar sem
við gerðum svokallaða „áætlun
um mögulegan heimsfaraldur“.
Í henni voru hættustig skilgreind
og við heyrðum í landlækni á
þeim tíma til þess að fá leiðbein
ingar. Við fórum á þeim tíma í
formlegar og óformlegar aðgerð
ir. Í kringum fyrsta kórónasmitið
hérlendis fórum við í að gera
„áætlun um órofinn rekstur“ sem
er lifandi skjal um starfsemi MS.
Lykilstarfsmenn eru flokkaðir og
mikilvægi deilda auk staðgengla
ef þarf og greining annarra mik
ilvægra þátta,“ segir Sunna.
Vörur á palli fyrir utan hús
Samkvæmt áætlunum MS hefur
starfsfólk verið flutt, sumir vinna
heima eða í öðrum rýmum en
venjulega til þess að dreifa
áhættunni. Þá hefur starfs
stöðvum fyrirtækisins verið
lokað fyrir gestum og vörur eru
afhentar úti á pall fyrir utan hús.
Fjarfundabúnaður er notaður
innan deilda vegna funda og
þá eru mötuneytin með tveggja
metra regluna og matarbakkar
afhentir starfsfólki. /MHH
Sunna Gunnars Marteinsdóttir.
Pósturinn hyggst nú mæta þörfum fólks sem heldur sig í einangrun heima hjá sér í dreifbýlinu vegna COVID-19. Í
undirbúningi er að Pósturinn sinni þessu fólki m.a. með matarsendingar frá verslunum. Mynd / Pósturinn/HKr.
Pósturinn með matarsendingar frá
verslunum til íbúa í dreifbýlinu
Pósturinn hefur síðustu daga
verið að búa sig undir og koma á
framfæri vilja sínum til að sinna
matarsendingum frá verslunum
til íbúa í dreifbýli. Víða heldur
fólk sig nú heima vegna búa sinna
og þarf enn frekar á slíkri þjón-
ustu að halda. Hefur Pósturinn
verið í sambandi við verslanir
sem sinna íbúum á landsbyggð-
inni með þennan valmöguleika í
tengslum við ferðir landpósta og
póstdaga.
Birgir Jónsson, forstjóri Íslands
pósts, segir að þetta sé nú í skoðun
hjá nokkrum aðilum og verið að
fara yfir endanlegar útfærslur. Slíkar
sendingar munu t.d. hefjast núna í
vikunni hjá nokkrum aðilum.
Bjóða verslunum aðgang
að dreifingarkerfi Póstsins
„Við höfum haft frumkvæði að því
að bjóða verslunum aðgengi að
okkar flutninga og dreifikerfi. Við
erum að bjóða þetta öllum aðilum
sem áhuga hafa á að fara út í slík
viðskipti og bjóða þeim að nýta
okkar kerfi. Það er gríðarlega öflugt
og nær út um allt land,“ segir Birgir.
Hann telur að sú staða sem nú
er komin upp vegna COVID19
muni leiða til mikilla breytinga á
þjóðfélaginu og hvernig fólk komi
til með að haga sínum viðskiptum
í framtíðinni. Fólk sé nú að læra
á þá möguleika sem til staðar eru
varðandi heimsendingarþjónustu á
matvælum og öðrum hlutum. Birgir
telur að sú þróun muni halda áfram
eftir að þessum heimsfaraldri lýkur.
„Fólk hefur verið að uppgötva
þennan möguleika á höfuðborgar
svæðinu og af hverju ætti það ekki
líka að eiga við út um landið?“
Hlíðarkaup á Sauðár króki
ríður á vaðið
Hlíðarkaup á Sauðárkróki hafa verið
í viðræðum við Póstinn um heim
keyrslu á vörum. Ásgeir Björg vin
Einarsson, eigandi Hlíðar kaupa,
segir að hugmyndin sé að fólk í
Skaga firði geti nýtt sér slíka heim
sendingar þjónustu frá versluninni.
„Þá munum við taka pantanir
saman og pósturinn kemur þá og
sækir þær til okkar og dreifir tvisvar
í viku,” segir Ásgeir.
Framkvæmdin mun fara
eftir aðstæðum á hverjum stað
Umfangið og afkastagetan mun fara
eftir aðstæðum á hverjum stað og
tíma, bæði hjá Póstinum og viðkom
andi verslunum.
Bjarni Jónsson, formaður stjórnar
Póstsins, segir mikilvægt að fyrir
tæki í eigu ríkisins með starfsemi um
land allt, undirstriki þá samfélagslegu
ábyrgð sem það ber og bregðist við
aðstæðum sem nú eru uppi með nýrri
þjónustu til að létta undir hjá fólki,
ekki síst í dreifbýli. „Nú þurfa allir að
leggjast á eitt og standa saman. Þau
nýmæli að senda fólki heim sendingar
með matvöru í sveitina er svo von
andi þjónusta sem kemur til að vera í
nýjum heimi og bætir búsetuskilyrði,“
segir Bjarni Jónsson. /HKr.
Birgir Jónsson, forstjóri Íslands-
pósts.
Bjarni Jónsson, formaður stjórnar
Íslands pósts.
VSK af bílaviðgerðum
verður endurgreiddur
Bílgreinasambandið fagnar þeirri
ákvörðun stjórnvalda að útvíkka
verkefnið „Allir vinna“. Lög um
aðgerðir til að mæta efnahagsleg-
um áhrifum í kjölfar heimsfar-
aldurs kórónuveiru voru samþykkt
á Alþingi í gær. Nú býðst eigend-
um fólksbíla, utan rekstrar, 100%
endurgreiðsla á virðisaukaskatti
þess sem þeir hafa greitt af vinnu
vegna bílaviðgerðar, bílamálningar
og/eða bílaréttingar fólksbifreiða.
Í fréttatilkynningu, sem
María Jóna Magnúsdóttir, fram
kvæmdastjóri Bílgreinasambandsins,
sendi frá sér, segir jafnframt að árið
2010 hafi stjórnvöld hleypt af stokk
unum átakinu „Allir vinna“ til að
vekja athygli á endurgreiðslu virðis
aukaskatts og skattafrádrætti vegna
framkvæmda við íbúðarhúsnæði og
frístundahús. Átakið þótti gefast vel
því verulega dró úr atvinnuleysi og
svartri atvinnustarfsemi.
„Með því að taka tillit til viðhalds
og viðgerða fólksbifreiða erum við í
bílgreinum afar þakklát stjórnvöld
um fyrir þann skilning og stuðning
sem þeir veita okkur. Yfir 4.000
einstaklingar starfa í bílgreinum á
Íslandi og er þetta skref í að tryggja
færri uppsagnir í greininni á meðan
við erum að komast í gegnum þá erf
iðleika sem þjóðfélagið á í baráttu
við. Það er von okkar að bílgreinin
verði því fyrir minna höggi en raunin
var eftir árið 2008.
Í aðgerðaráætlun stjórnvalda
sem kynnt var í Hörpu laugar
daginn 21. mars kom fram að allir
íbúar á Íslandi eldri en 18 ára fái
stafrænt gjafabréf til að ferðast
innanlands. Markmið þeirra er að
auka ferðalög um landið og styðja
þannig við innlenda eftirspurn. Það
er Bílgreinasambandinu mikið hjart
ans mál að einstaklingar ferðist um
á öruggum ökutækjum um landið
okkar. Í því samhengi teljum við
það gríðarlega mikilvægt að áður
en þjóðin ferðast um landið í sumar
að þeir aðilar sem munu yfirfara
ökutækin fyrir ferðalagið séu með
rétta menntun, búnað og varahluti
til að tryggja öryggi.
Með því að bílgreinar fái að taka
þátt í verkefninu „Allir vinna“ erum
við að sporna gegn því að viðgerðir
og viðhald ökutækja fari fram í svörtu
hagkerfi og tryggja einstaklingum
áframhaldandi vinnu á bílaverkstæð
um landsins næstu mánuðina. Við
hvetjum því eigendur fólksbíla að
sinna viðhaldi ökutækja. Hægt er að
nálgast lista yfir verkstæði í gegnum
heimasíðu Bílgreinasambandsins,
www.bgs.is, “ segir í fréttatilkynn
ingu Bílgreinasambandsins.
María Jóna Magnúsdóttir fram-
kvæmda stjóri Bílgreina sam bands-
ins. Mynd / BGS
Bænda
bbl.is Facebook
VARÚÐ!
Þorlákshöfn – Sími 483 1955 – www.sbskilti.is
HANDÞVOTTUR OG HANDSPRITTUNHAND WASHING - HAND HYGIENE
Endurtakið hvert atriði vandlega fimm sinnum eða oftar!
Repeat each step of the hand washing procedure at least five times!
Nuddið lófum saman
Nuddið bæði handarbökin með lófunum
Nuddið vel milli fingra
Nuddið fingurgómaog neglur vandlega Nuddið báðaþumalfingur vandlega Nuddið vel inni í báðum lófum
Rub hands palm to palm Rub right palm over left dorsum and vice versa Rub thoroughly between fingers
Rub fingertips and fingernails ofboth hands together thoroughly Rub thumb ofeach hand thoroughly
Rub each palm thoroughly
2
3
4
5
6
1
HANDÞVOTTUR OG HANDSPRITTUN
Endurtakið hvert atriði vandlega fimm sinnum eða oftar!
Repeat each step of the hand washing procedure at least five times!
HAND WASHING - HAND HYGIENE
Nuddið lófum saman Nuddið bæði handarbökin með lófunum Nuddið vel milli fingra
Nuddið fingurgóma
og neglur vandlega Nuddið báða þumalfingur vandlega Nuddið vel inni í báðum lófum
Rub hands palm to palm Rub right palm over left dorsum and vice versa Rub thoroughly between fingers
Rub fingertips and fingernails of
both hands together thoroughly
Rub thumb of each hand thoroughly Rub each palm thoroughly
2 3
4 5 6
1
framleiðum öryggis-
og varúðarmerkingar