Bændablaðið - 02.04.2020, Qupperneq 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. apríl 2020 7
Tryggingasjóður sjálfstætt starfandi
einstaklinga, Vinnumálastofnun og
Bændasamtök Íslands hafa gert með sér
samkomulag um fjárstuðning til að standa
undir afleysingaþjónustu fyrir félagsmenn
Bændasamtakanna sem sýkjast vegna
kórónuveiru sem veldur COVID-19-
sjúkdómnum.
Samkomulagið varðar bændur sem sýkjast
og geta af þeim sökum ekki sinnt bústörfum á
búum sínum. Búnaðarsamböndum, í umboði
Bændasamtaka Íslands, er heimilt að ráða til
sín starfsfólk tímabundið sem verktaka til
þess að sinna afleysingum að hámarki í 14
daga hjá bændum. Búnaðarsamböndin sjá
um utanumhald, samskipti við verktaka og
útdeilingu verkefna á hverju búnaðarsam-
bandssvæði. Hvert búnaðarsamband verður
í samskiptum við Vinnumálastofnun í sínu
umdæmi og við Almannavarnir á svæðinu og
upplýsir þau um þá þjónustu sem er í boði.
Fastar verktakagreiðslur
Búnaðarsamböndin sjá um greiðslur til verk-
taka á hverju svæði. Greiddar verða fastar
verktakagreiðslur samkvæmt vinnuskýrslum
að hámarki í 14 daga samtals, þó að hámarki
80 klst. á fyrrnefndu 14 daga tímabili. Þá skal
greiða samkvæmt akstursbók, að hámarki
1.000 km.
Stór hópur tilbúinn til verka
Búnaðarsamböndin munu í samvinnu við
Vinnumálastofnun leitast við að ráða verk-
taka úr hópi einstaklinga sem eru skráðir
atvinnuleitendur í viðkomandi umdæmi. Um
100 manns eru á viðbragðslista nú þegar
sem Bændasamtökin hafa tekið saman eftir
auglýsingu sem birt var fyrir tveimur vikum.
Þjónustan verður í boði til 31. maí en
uppgjöri vegna verkefnisins skal lokið fyrir
1. júlí á þessu ári. Nánari upplýsingar er að
finna í auglýsingu sem birt er á bls. 54.
Almenn úrræði í boði fyrir bændur
Bændur geta einnig nýtt sér þau almennu
úrræði sem eru í boði vegna COVID-19
á vinnumarkaði. Vakin er sérstök athygli
á að sett hafa verið lög frá Alþingi um
tímabundnar greiðslur vegna launa einstak-
linga (þar með talið sjálfstætt starfandi
einstaklinga) sem sæta sóttkví samkvæmt
fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda án þess að
vera sýktir. Á vef Vinnumálastofnunar, www.
vinnumalastofnun.is, er að finna margvís-
legar upplýsingar, m.a. um minnkað starfs-
hlutfall vegna tímabundins samdráttar í
starfsemi vinnuveitenda. /TB
LÍF&STARF
Í síðasta vísnaþætti var lítillega greint frá saltkjötssamveru sem boðið var til hér í húsum okkar hjóna. Geðslag gesta
var nokkuð misjafnt, en fleiri þó glaðir
en gramir. Í hópi þeirra glöðu var Reynir
Hjartarson fjöllistamaður og frændi
Péturs læknis Péturssonar. Reynir orti
all mjög milli saltkjötsbitanna:
Um ýkjur og skreytni allra síst
ég Árna Jónsson vændi,
en honum ávallt lakar lýst
lúðurinn Pétur frændi.
Í saltkjötsvímu og sætra vína kvaddi
Reynir okkur hjón með þessari stöku:
Núna held ég heim minn veg
heilsu vel með búna.
Þessa kvöldstund þakka ég
þúsund sinnum núna.
Heim kominn daginn eftir var Reynir
enn með þökkum og vín-andinn virkur
mjög:
Var í gær hér veðraböl,
vitlaust nótt og daginn,
er því komið feikna föl
sem fyllir allan bæinn.
Núna vil ég bæta um betur
um bölmóðinn og sút.
Brátt mun verða búinn vetur
og beljur settar út.
Fyrir utan fádæma þakklæti, þá færði
Reynir mér möppu með gömlum kveð-
skap góðskálda. Þar er að finna vísur
Akureyrarskáldanna svonefndu, þeirra
Rósbergs Snædal, Gísla Jónssonar,
Jakobs Ó. Péturssonar, Baldurs
Eiríkssonar, Bjarna frá Gröf og
Hjartar Gíslasonar, föður Reynis og
fleiri. Að sönnu teljast sumir ofanskráðra
Húnvetningar og margt af efninu ber
þess vott að nokkur núningur hafi verið
með hagyrðingunum. Gísli orti meðal
annars:
Húnvetninga hersingar
hér óslynga kveða raust.
Þeir eru kringum kerlingar
að kjá og glingra endalaust.
Baldur Eiríksson frá Dvergstöðum orti:
Okkur hefir aldrei skort
óð í Vaðlaþingi.
En nýtt er að heyra nokkuð ort
af nýtum Húnvetningi.
Rósberg orti til Baldurs:
Baldur Eiríks yrkir ljóð
eins og sálin býður.
Undistaðan ekki góð-
upp úr honum sýður.
Hjörtur Gíslason orti svo til Bjarna
úrsmiðs:
Bjarni hefir aldrei átt
öl í sínu glasi.
Enda notað allan mátt
í úrviðgerðarbrasi.
Í möppunni frá Reyni Hjartarsyni er
einnig að finna þessar haganlega gerðu
afmælisvísur sem Hjörtur Gíslason sendi
Bjarna frá Gröf sextugum:
Þú hefir hlotið braga-byr
beint frá lífsins arni.
Því gat aldrei staðið styr
um stökur þínar Bjarni.
Þær hafa minnt á fagurt flest,
fljóð sem gleðja og hugga,
lækjarnið og lipran hest,
ljós í bæjarglugga.
Meðan hestsins hófagrip
heimabyggðin syngur,
besta vísan ber þinn svip
Bjarni Húnvetningur.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
247MÆLT AF
MUNNI FRAMGarðyrkjuskólinn á Reykjum í Ölfusi:
Hátíðahöldum á sumardaginn fyrsta aflýst
„Já, við erum búin að aflýsa öllu hjá
okkur og það verður ekki opið hús á sum-
ardaginn fyrsta í Garðyrkjuskólanum í
ár, því miður, ástandið er þannig í þjóð-
félaginu eins og allir vita,“ segir Guðríður
Helgadóttir, staðarhaldari í Garðyrkjuskóla
Landbúnaðarháskóla Íslands á Reykjum
í Ölfusi.
Opna húsið hefur alltaf notið mikilla vin-
sælda og mörg þúsund manns hafa heimsótt
skólann á sumardaginn fyrsta í gegnum árin
en í ár, fimmtudaginn 23. apríl, þarf fólk að
finna sér eitthvað annað skemmtilegt til að
gera. /MHH
Guðríður, ásamt tveimur ráðherrum
úr ríkisstjórninni á sumardeginum fyrsta á
Reykjum á síðasta ári þegar þeir voru leystir
út með íslensku grænmeti og blómum. Guð-
ríður segir að það sé verið að skoða það
að hafa opið hús í skólanum í sumar.
Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson
Mikilvægt að lesa af rafmagns-
mælum vegna ástandsins
Orka heimilanna hefur sent frá sér tilkynn-
ingu þar sem rekstraraðilar minni fyrir-
tækja sem greiða rafmagn eftir áætlun og
hafa hætt eða dregið verulega úr starfsemi,
til að lesa af rafmagnsmælum og skila inn
álestri einu sinni í mánuði á meðan COVID-
19 ástandið varir.
„Það eru fordæmalausar tímar og margir
atvinnurekendur horfa fram á rekstrarerfiðleika
vegna versnandi efnahagsaðstæðna. Margir
hafa dregið verulega úr starfsemi eða jafnvel
lokað alveg. Flest minni fyrirtæki greiða raf-
magn eftir áætlun.
Við viljum hvetja eigendur fyrirtækja sem
eru í þessari stöðu til þess að lesa af rafmagns-
mælum núna og svo um hver mánaðamót
á meðan ástandið varir. Þannig kemur raf-
magnsreikningur til með að lækka í hlutfalli
við minni starfsemi. Álestrum er skilað inn til
dreifiveitna á vefsíðum þeirra. Ef það er ekki
gert fá fyrirtæki áfram reikninga eftir áætlun
sem miðar við fulla starfsemi,“ segir Bjarni
Ingvar Jóhannsson, framkvæmdastjóri Orku
heimilanna, um leið og hann bætir því við að
starfsmenn fyrirtækisins séu ávallt tilbúnir að
svara spurningum sem upp geta komið. /MHH
Bjarni Ingvar hvetur rekstraraðila til að lesa af
raforkumælum sínum til að koma í veg fyrir að
rukkað verði eftir áætlun sem miðast við fulla
starfsemi. Með þessu móti geta þeir lækkað
rafmagnsreikninginn í takt við minni notkun,
sem kemur til með að létta mörgum róðurinn.
Mynd / Orka heimilanna
Lesa á af rafmagnsmælum fyrirtækja um hver
mánaðamót á meðan allt er meira og minna í
lamasessi vegna kórónuveirunnar.
Viðbrögð við COVID-19:
Samkomulag um afleysingar til sveita
Um 100 manns hafa boðið fram þjónustu sína ef til þess kemur að bændur þurfi afleysingu
vegna veikinda af völdum kórónuveirunnar. Mynd / bbl