Bændablaðið - 02.04.2020, Page 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. apríl 20208
FRÉTTIR
Auðhumla og Mjólkursamsalan:
Róttækar aðgerðir til að
tryggja framleiðsluferla
Auðhumla hefur sent mjólkur
framleiðendum tilkynn ingu
um að víða hafi verið gripið til
róttækra aðgerða til að tryggja
framleiðsluferla Mjólkur sam
söl unnar og Auðhumlu. Öllum
sam lögum hafi til að mynda verið
lokað utanaðkomandi.
Þá hafi verið ákveðið að hætta
tímabundið móttöku og mælingu á
kýrsýnum, frumusýnum, gerlasýn-
um, fangsýnum og öðrum sýnum
sem starfsmenn MS og Auðhumlu
taka ekki sjálfir.
Gildi fyrir komulagið meðan
ástandið varir.
„Ekki verður tekið við sýnum
hvorki í samlögunum né af bílstjór-
um. Þessi ráðstöfun tekur þegar
gildi. Ef upp koma neyðartilfelli
þá endilega verið í sambandi við
gæðaráðgjafa Auðhumlu. Varðandi
tengingu á fjölda kýrsýna við bein-
greiðslur þá er erindi í ráðuneytinu
til úrvinnslu um að gefa undanþágu
á fjölda sýna sem þurft hefur að
uppfylla,“ segir í tilkynningunni.
Önnur atriði sem Auðhumla
hefur gripið til og telur vert að
vekja athygli á eru eftirfarandi:
• Gæðaráðgjafar eru ekki lengur
með starfsaðstöðu í samlögun-
um. Þeir eru í tölvu- og síma-
sambandi. Símanúmer eru á
forsíðu Auðhumlu audhumla.
is
• Heimsóknir gæðaráðgjafa til
mjólkurframleiðenda varð-
andi öflun aukasýna verða
takmarkaðar eins og kostur er.
Enginn framleiðendi verður
heimsóttur nema í ýtrustu neyð
og í samráði við viðkomandi.
• Ef upp koma tilfelli þar sem
vafi er um mjólkurgæði, verð-
ur alltaf fyrsti kostur að láta
mjólkurbílstjóra taka sýni.
• Hafið samband við gæða ráð-
gjafa ef eitthvað er óljóst.
• Mjólkurbílstjórar eru nú með
einnota hanska og handspritt
meðferðis í mjólkurbílunum.
Framleiðendur eru vinsam-
legast beðnir um að hafa ílát
eða poka inni í mjólkurhúsinu
þar sem bílstjórar geta losað
sig við hanskana að notkun
lokinni. Eins eru framleið-
endur beðnir að forðast sam-
skipti við bílstjóra eins og
kostur er meðan þetta ástand
varir.
• Leiðbeiningar til matvæla-
fram leiðenda er að finna á
mast.is
• Einnig eru góð ráð að finna
hjá Ráðgjafarmiðstöð land-
búnaðarins á vefnum rml.is.
Í tilkynningunni kemur einnig
fram að deildarfundum sem eftir
var að halda hafi verið frestað
ótímabundið sem og aðalfundi þar
til ástandið batnar. Verður upp-
lýst um það síðar þegar aðstæður
í þjóðfélaginu leyfa.
„Þið ágætu framleiðendur
ásamt afurðafélögum ykkar er
mikilvægur hlekkur í matvæla-
öryggi þjóðarinnar og aldrei eins
og nú þegar á reynir fyrir alvöru.
Vonandi átta stjórnvöld sig á
þessari staðreynd og tryggja hag
landbúnaðarins betur hér eftir en
undanfarin ár og munið að sól
hækkar á lofti og þessu ástandi
linnir.
Gætum vel að sóttvörnum og
höldum áfram að framleiða okkur
góðu landbúnaðarvörur.
Þannig komust við í gegnum
þetta og horfum fram á betri
tíð,“ segir í lok tilkynningarinn-
ar, sem Garðar Eiríksson, fram-
kvæmdatjóri Auðhumlu, skrifar
undir. /smh
Óviðunandi staða við förgun dýrahræja:
Brennsluofnar víða settir
upp við afurðastöðvar
– Óheimilt að taka við hræjum frá öðrum
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
RÚÐUR Í
DRÁTTARVÉLAR
FRÁBÆR VERÐ
John Deere
Zetor
Case IH
McCormick
Steyr
Claas
Ford
Fiat
New Holland
Deutz-Fahr
Massey Ferguson
Niðurstaða Landsdóms í máli Mjólkursamsölunnar:
480 milljónir króna í sekt vegna
markaðsmisnotkunar
– MS telur þetta ekki endanlega niðurstöðu og hyggst áfrýja til Hæstaréttar
Landsdómur hefur staðfest dóm
Héraðsdóms Reykjavíkur um
að Mjólkursamsölunni beri að
greiða ríkinu 480 milljónir króna
í sekt vegna misnotkunar á mark
aðsráðandi stöðu. MS mun áfrýja
til Hæstaréttar.
Sektin er til komin af því að
Mjólkursamsalan seldi keppinaut-
um sínum hjámjólk á hærra verði
en til tengdra aðila og dótturfélaga.
Mjólkursamsalan mun áfrýja mál-
inu til Hæstaréttar, að sögn Elínar
M. Stefánsdóttur, stjórnarformanns
MS.
MS mun áfrýja til hæstaréttar
Elín M. Stefánsdóttir, stjórnarfor-
maður Mjólkursamsölunnar, segir í
svari til Bændablaðsins vegna fyrir-
spurnar um niðurstöðu Landsdóms
að hún komi sér á óvart.
„Þessi niðurstaða kemur á óvart,
enda telur fyrirtækið sig hafa farið
að öllu leyti að lögum við fram-
kvæmd á samstarfi til að hagræða
og lækka verð á mjólkurvörum til
neytenda. Við teljum að túlkun
Landsréttar á ákvæðum búvörulaga
skapi mikla óvissu um heimildir
afurðastöðva í mjólkuriðnaði til að
hagræða og lækka vöruverð með
verkaskiptingu.
Slík verkaskipting fæst ekki
staðist nema með jöfnun framlegð-
ar á milli þeirra aðila sem í henni
taka þátt og það þarf að vera óháð
því hversu háa framlegð einstakar
vörur gefa af sér.
Við lítum því ekki á þetta sem
endanlega niðurstöðu í málinu og
munum leita eftir heimild til áfrýj-
unar til Hæstaréttar.“
Úr dómi Landsréttar
Í dómi Landsréttar segir meðal
annars að varðandi fjárhæð sekt-
arinnar er litið til þess að brot að-
alstefnanda er alvarlegt og stóð í
langan tíma og að brotið varðaði
vinnslu á mikilvægri neysluvöru og
voru aðgerðir aðalstefnanda fallnar
til að skaða samkeppni og neyt-
endur með alvarlegum hætti. Þá er
litið til þess að um ítrekað brot er
að ræða, samanber úrskurð áfrýj-
unarnefndarinnar 14. desember
2006 í máli nr. 8/2006. Samkvæmt
samkeppnislögum getur sekt numið
allt að 10% af heildarveltu síðasta
rekstrarár þeirra sem aðild eiga að
brotinu.
Mun heildarvelta aðalstefnanda
árið 2015 hafa verið um það bil
26,7 milljarðar króna. Sekt gagn-
stefnanda nemur um það bil 1,6%
af veltunni, sem telja verður hóflegt
þegar litið er til heimildar. Verður
aðalstefnanda því gert að greiða 440
miljónir króna í sekt. /VH
„Það er rétt að staðan varðandi
förgun dýrahræja er ekki í lagi,“
segir Ágúst Andrésson, forstöðu
maður Kjötafurðastöðvar KS, og
bætir við að þegar rætt sé um að
banna urðun á lífrænum úrgangi
gleymist þetta atriði.
Nautgriparæktarfélag Vestur-
Húnavatnssýslu vakti athygli á
málinu í bókun sem samþykkt var
á aðalfundi þess á dögunum og var
skorað á sveitarstjórn Húnaþings
vestra að sinna lögbundinni skyldu
sinni þegar kemur að förgun dýra-
hræja.
Úrræðaleysið við förgun
„Úrræðaleysið þegar kemur að
förgun dýrahræja í sveitarfélaginu
er algert og bændur því tilneyddir að
urða hræ heima á bæjunum, sem er
ólöglegt,“ segir í bókuninni.
Þyrftum annars
að aka þessu suður
Ágúst segir að flestir slátur leyfis-
hafar hafi leyst málið varðandi
förgun dýrahræja með brennslu-
ofnum sem félagið Nokk selur hér
á landi. Einn slíkur er staðsettur á
Sauðárkróki og þjónar þeim tilgangi
að brenna áhættuvefjum (cat. 1) frá
Kjötafurðastöð KS.
„Við höfum góða reynslu af þessu
en ef við hefðum ekki þennan ofn
stæðum við frammi fyrir þeim kosti
að safna þessu saman og keyra þetta
suður til brennslu í Kölku,“ segir
Ágúst.
Ekki heimilt að taka á
móti úrgangi frá öðrum
Í tilfelli sláturleyfishafa fellur starf-
semi brennsluofna undir starfsleyfi
afurðastöðvanna og er einungis
ætlað fyrir úrgang sem fellur til frá
viðkomandi afurðastöð. Þeim er því
ekki heimilt að taka á móti úrgangi
frá öðrum til brennslu. Hægt er að fá
ofnana í ýmsum stærðum og gerðum
eftir því sem hentar.
Landbúnaðarráð Húnaþings
vestra hefur bent á að núverandi lög
og reglur sem í gildi eru hér á landi
um förgun dýrahræja gangi ekki
upp þar sem ekki eru til úrræði til
að fylgja þeim eftir, þ.e. það vantar
brennsluofn/ofna til að brenna hræ
af sjálfdauðum dýrum, dýrum sem
lógað er heima vegna sjúkdóma og
sláturúrgang sem til fellur við heima-
slátrun. Þá er söfnun hræja og förgun
bæði mjög dýr og erfið í framkvæmd
m.a. vegna varnarlína. /MÞÞ
Brennsluofn við KS á Sauðárkróki. Mynd / KS
Sektin er til komin af því að Mjólkursamsalan seldi keppinautum sínum hjámjólk á hærra verði en til tengdra aðila
og dótturfélaga.
Hyprosan augndropar innihalda hypromellósa og eru ætlaðir til meðferðar við augnþurrki, þ.m.t. glæru- og tárusiggi
(keratoconjunctivitis sicca), hjá fullorðnum. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðil fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir, sjá nánari upplýsingar
um lyfið á www.serlyfjaskra.is. September 2019.
Hyprosan augndropar – við augnþurrki
• Án rotvarnarefna
• Hægt að nota með augnlinsum
• Fæst án lyfseðils í apótekum
ERTU MEÐ AUGNÞURRK?
SAN190906