Bændablaðið - 02.04.2020, Qupperneq 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. apríl 202010
FRÉTTIR
Blóm eru viðkvæm söluvara og bændur
eru uggandi um sölu páskablómanna
– Markaður fyrir blóm í Evrópu hefur orðið illa úti vegna COVID-19 faraldursins
Garðyrkjubændur hér á landi
eru uggandi og hræddir um
að sala á blómum verði dræm
fyrir páska. Markaður fyrir
blóm í Evrópu hefur orðið illa
úti vegna afleiðinga COVID-19
faraldursins. Sala á blómum í
Danmörku og annars staðar í
Evrópu hefur dregist verulega
saman.
Blómamarkaður í Hollandi er
nánast óstarfhæfur og þar í landi
hefur þurft að farga gríðarlegu
magni af blómum sem ekki hafa
selst. Í fréttatilkynningu frá Royal
Flora Holland, sem er einn stærsti
blómamarkaðurinn í heimi, segir
að vegna COVID-19 hafi sala og
útflutningur á blómum frá Hollandi
nánast stöðvast. Uppboðshaldarar í
Aalsmeer sátu til dæmis uppi með
um 15 milljón blóm á einum dagi
sem seldust ekki. Til að draga úr
förgun blóma sem ekki seljast hafa
uppboðshaldarar tekið til þess ráðs
að gefa blóm til spítala og annarra
umönnunarstofnana í landinu.
Blómabændur uggandi
Garðyrkjubændur hér á landi eru
uggandi og hræddir um að sala á
blómum verði dræm fyrir páska.
Á þetta ekki síst við þar sem spár
gera ráð fyrir að áhrif COVID-19
nái hugsamlega hámarki hér um
páskana eða miðjan apríl.
Birgir Steinn Birgisson,
garðyrkju bóndi hjá Ficus í
Hveragerði, segir að blóm séu við-
kvæm söluvara sem ekki sé hægt
að geyma lengi.
„Ég veit að garðyrkjubænd-
ur sem eru að rækta blóm fyrir
páskamarkaðinn eru margir hverj-
ir áhyggjufullir vegna afleiðinga
COVID-19 veirunnar og að sala á
blómum muni dragast saman.“
Blóm létta lundina
„Íslendingar eru fastheldnir á
liti þegar kemur að blómum og
tengja gul blóm við páskana og
markaðurinn fyrir þau því mestur
í kringum páskahátíðina. Við
sem erum að rækta blómin erum
áhyggjufull yfir því að fólk dragi
úr blómakaupunum vegna minni
mannaferða.
Ég vil þó endilega hvetja fólk til
að gera hlýlegt hjá sér með blóm-
um, ekki síst núna þegar það er
meira heima fyrir og þarf að hugsa
jákvætt. Eitt er víst að hvað svo
sem gengur á þá er sólin farin að
hækka á lofti og falleg gul páska-
blóm flýta vorkomunni.“
Fólk þyrstir í blóm
Berglind Bjarnarsdóttir, rekstrar-
stjóri Blómavals, segir að hjá þeim
hafi selst mikið af afskornum túlíp-
önum undanfarið og greinilegt að
fólk er að kaupa blóm til að fegra
heimili sín og til að gefa öðrum.
„Að öllu jöfnu snerist sala á
blómum mikið um fermingar á
þessum árstíma. Það er greinilegt
að fólk sem er mikið heima þessa
dagana þyrstir í falleg blóm til að
gleðja sjálft sig og aðra.
Sala á pottaplöntum er þokkaleg
en svolítið öðruvísi en vanalega
því að það er greinilegt að þeir sem
koma til að kaupa pottablóm eru
ákveðnir í að gera það en minna
um að fólk komi bara til að skoða.“
Afskorin blóm ónýt
eftir blómgun
„Afskorin blóm eru gríðarlega
viðkvæm söluvara sem geta ekki
beðið lengi og eru ónýt eftir að þau
hafa blómstrað. Svipaða sögu er
að segja um margar blómstrandi
pottaplöntur, þær seljast verr eftir
að blómstrun hefur lokið. Þetta á
ekki síst við um gular pottaplöntur
sem framleiddar eru fyrir páska-
markaðinn,“ segir Birgir Steinn
Birgisson, garðyrkjubóndi hjá
Ficus. /VH
Skreytum heimilið með gulum blómum
– segir Birgir Steinn Birgisson, garðyrkjubóndi hjá Ficus í Hveragerði
Gul blóm hafa lengi verið tengd
páskum og flestum þykir sjálfsagt
að skreyta heimilið með þeim yfir
hátíðina. Í eina tíð voru afskornar
páskaliljur vinsælastar en í dag er
nóg að blómin séu gul til að teljast
páskablóm.
Birgir Steinn Birgisson, garð-
yrkju bóndi hjá Ficus í Hvera gerði,
segir að hann og fjöldi garðyrkju-
bænda í landinu vinni hörðum hönd-
um að því að koma fjölda tegunda
afskorinna blóma og pottaplantna
á markað fyrir páska.
„Íslendingar eru hrifnir af gulum
blómum um páskana og í huga
margra eru þau fyrstu vorboðarn-
ir sem fólk vill skreyta heimili sín
með til að flýta vorkomunni.“
Fjöldi tegunda í boði
Birgir segir að úrvalið af páska-
blómum sé mikið og fjöldi gulra
tegunda í boði. „Það eru til páska-
liljur í pottum sem kallast tete a
tete og stærri afskornar páskaliljur
og afskornir gulir túlípanar. Gular
afskornar forsytíugreinar, begóníur
og krísar og ástareldur í pottum.
Úrvalið er því mikið og eitthvað
til fyrir alla.
Margar garðyrkjustöðvar á land-
inu eru því að taka á sig gulan lit
þessa dagana. Sérstaklega þær sem
rækta pottaplöntur og gul afskorin
blóm.“
Eitthvað fyrir alla
„Fyrsta gula blómið sem fór á
markað frá mér var begónía sem
við fáum sem rótaða græðlinga frá
Hollandi snemma í janúar. Begóníur
eru virkilega harðgerðar plöntur og
blómviljugar sem hæglega má halda
áfram með og hafa úti í potti yfir
hásumarið og taka svo inn yfir vet-
urinn ef fólk vill.“
Afskornar forsytíugreinar eru
vinsælar í skreytingar um páskana
og sannkallað vorblóm þar sem gul
blómin koma áður en greinarnar
laufgast og eru því mjög áberandi
og falleg.
Birgir segir að á markaði séu
tvær stærðir af gulum pottakríum
og að þær komi frá Afríku sem
græðlingar, en órótaðir, og að
þeim sé stungið beint í sölupotta
og ræktaðar í þeim. Yfirleitt eru þrír
til fjórir græðlingar í hverjum potti
til að þétta brúskinn.
„Gulur ástareldur er falleg
pottaplanta sem við fáum sem
græðlinga frá Danaveldi og tekur
um 14 vikur að rækta í sölustærð
og blóma. Litlar tete a tete liljur,
sem eru seldar í pottum og í blóma,
eru gríðarlega vinsælar. Teturnar,
eins og þær eru oft kallaðar, voru
lagðar þrjár saman í pott og í kæli
seint á síðasta ári. Blómstrun þeirra
er stjórnað með hitastigi og um
það leyti sem blómvísirinn fer að
myndast eru þær settar í gróður-
hús í um það bil viku og drifnar
til sölu.“ Tete a tete eru harðgerðir
laukar sem má setja út í garð eftir
blómgun. Það getur tekið þær tvö
til þrjú ár að koma sér vel fyrir
og mynda hliðarlauka en blómstra
iðulega eftir það.
„Gulir afskornir túlípanar og
páskaliljur eru líka mjög vinsæl
páskablóm og fallegar skreytingar
yfir hátíðina,“ segir Birgir.
Viðkvæmur markaður
Aðspurður segist Birgir ekki vera
viss um hversu mikið sé framleitt
af hverri tegund fyrir sig.
Ekki eru til neinar opinberar
tölur um sölu á blómum fyrir páska
hér á landi en markaðurinn fyrir
páskablóm er talsverður.
„Satt best að segja átta ég mig
ekki á því hversu margir eru að
kaupa sér blóm til að skreyta með
yfir páskana en ætli það séu ekki
einhver tugir þúsunda manna. Blóm
eru vinsæl gjafavara og margir sem
kaupa þau einfaldlega vegna þess
að þeim þykir þau falleg og til að
skreyta með í kringum sig.“ /VH
Blómstrandi ástareldur með knúpp
um. Mynd / Ingvar Sigurðsson
Birgir Steinn Birgisson, garðyrkjubóndi hjá Ficus í Hveragerði, með gulblómstrandi begóníu. Myndir / Ingvar Sigurðsson Pökkun á tete a tete.
Fólk sem er mikið heima þessa dagana þyrstir í falleg blóm til að gleðja sjálft sig og aðra. Mynd / VH.