Bændablaðið - 02.04.2020, Side 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. apríl 202016
Kjartan Stefánsson
kjartanst@simnet.is
Annað slagið gerist það að ég
lendi í vandræðum með að
hugsa efni í Stekkinn og þá er
gott að grípa til þess sem ég hef
gaman af. Að þessu sinni er sagt
frá þremur innfluttum trjám
sem flestir þekkja.
Samkvæmt kristinni þjóðtrú
er að finna að minnsta kosti tvær
skýringar á skrjáfi nöturaspar-
innar. Sú fyrri segir að kross
Krists hafi verið smíðaður úr viði
hennar og það er af skömm sem
blöð trésins skjálfa án afláts. Hin
skýringin er sú að Kristur hafi
lagt á tréð að það myndi skjálfa
án afláts eftir að það neitaði að
lúta valdi hans.
Aðrir segja að tréð sé eins og
sá sem ber út slúður og skelfur
sífellt af hræðslu um að upp um
hann komist eða að það minni á
iðandi tungu lyginnar.
Í Skotlandi var nöturöspin
tengd álfabyggð og talið að í
námunda við hana mætti finna
hlið milli heima. Þar í landi þótti
gott að hafa laufblað nöturaspar
undir tungunni þegar menn fóru
á mannamót til að auka málsnilld
sína. Það var aftur á móti ólán að
nota viðinn til smíða á hlutum
sem tengdust ræktun eða í veiði-
stangir og ekki mátti nota hann
til húsbygginga. Vegna þess hve
léttur viðurinn er þótti hann aftur
á móti góður til útskurðar.
Samkvæmt blóma- og heilsu-
fræði Edward Bach er nöturöspin
kvíðastillandi.
Í þjóðtrú tengist ölur endur-
fæðingu og styrk. Viðurinn þykir
góður til að smíða hluti sem vekja
eiga ástir en börkur og blöð nýt-
ast til að búa til grænan lit. Tréð
gegnir veigamiklu hlutverki í
goðsögnum og þjóðtrú Kelta. Írar
töldu boða ógæfu að ganga fram-
hjá elritré á ferðalögum. Í Noregi
voru fersk blöð lögð á fætur til
að draga úr þreytu og seyði úr
þeim þótti gott við meinsemd í
hálsi. Ef blöðin eru tínd snemma
morguns með morgundögginni
og lögð í rúm er sagt að þau fæli
burt fló.
Ölur hefur þann eiginleika að
rotna ekki í vatni og standa flestar
byggingar í Feneyjum á elridrumb-
um. Viðurinn fúnar fljótt á þurru
og hentar því illa til húsbygginga
eða í girðingastaura.
Viður beykitrjáa er harður og
góður efniviður til smíða á hús-
gögnum, handverkfærum og ýmiss
konar kylfum sem notaðar eru í
íþróttum. Skotar brenndu beyki til
að reykja síld og kolin voru notuð
til púðurgerðar og til að hita járn. Í
Danmörku notuðu bændur beyki-
tré til að rækta kræklinga með því
að sökkva trjánum í sjó og láta
kræklinginn vaxa á þeim.
Þegar hungursneyð steðjaði að
í Evrópu voru beykifræ mulin og
notuð í brauðdeig en ristuð fræ
þóttu góð sem kaffibætir. Olían í
fræjunum er sögð líkjast ólífuolíu
og ágæt til matargerðar, sem við-
bit í staðinn fyrir smjör, og sem
lampaolía. Nýtt lauf er gott í salat
og sem bakstur á bólgur í holdi.
Beykibörkur var notaður til að
rista á rúnir.
Talið var að beykitré væru góð
vörn gegn eldingum og vegna þess
hve krónan er þétt veitir hún gott
skjól gegn regni. Bolurinn á beyki
verður holur með aldrinum og því
upplagður felustaður fyrir menn
og skepnur. Sagan segir að snákar
forðist beykitré.
Norrænir menn töldu að þyrn-
irinn hefði orðið til þegar elding
laust til jarðar og því góð vörn
gegn skruggum og óveðri á sjó.
Sagt var að blóm þyrnitrjáa héldu
konum ungum og væru góð við
magaverk. Viðurinn þótti góður í
eldköstinn. /VH
STEKKUR
Bandaríkin eru fimmta stærsta
fiskveiðiþjóð í heimi. Bandarískir
fiskimenn koma með nærri fjór-
falt meira magn af fiski að landi
en íslenskir kollegar þeirra.
Alaskaufsi er mest veiddur en
humar skapar mestu verðmætin.
Fiskveiðar skipta gríðarlega
miklu máli fyrir mörg ríki Banda-
ríkjanna sem eiga land að sjó.
Bandaríkin hafa yfir að ráða stærstu
efnahagslögsögu heims. Innan
hennar eru mörg gjöful fiskimið
og mikil fjölbreytni í veiðum.
Bandarískir fiskimenn komu
með 4,3 milljónir tonna af fiski
og skelfiski að landi árið 2018 að
verðmæti 5,6 milljarðar dollara,
eða sem samsvarar 785 milljörðum
íslenskra króna, miðað við gengi
krónunnar í lok síðustu viku. Þetta
er um 5,3% samdráttur í magni en
2,8% aukning í verðmætum frá
árinu 2017. Til samanburðar má
geta þess að Íslendingar veiddu
1.260 þúsund tonn árið 2018 og
aflaverðmætin voru 128 milljarðar
króna.
Heildarveiði Bandaríkjanna
skiptist þannig að fiskur var rúmar
3,7 milljónir tonna en skelfiskur
502 þúsund tonn. Í heild voru fiskar
um 88% af lönduðum afla en aðeins
45% að verðmæti.
Árið 2017 voru Bandaríkin
í fimmta sæti á lista yfir stærstu
fiskveiðiþjóðir heims með rúm 5%
heimsaflans.
NOAA, ein allsherjarstofnun
Tölur um fiskveiðar Bandaríkja-
manna má finna í nýbirtri skýr-
slu NOAA, National Oceanic
and Atmospheric Administration.
NOAA er stofnun sem gegnir
víðtæku hlutverki. Segja má
að hún hafi á sinni könnu ver-
kefni sem hér á landi heyra að
hluta til eða öllu leyti undir
Umhverfisstofnun, Veðurstofuna,
Hafrannsóknastofnun og Fiskistofu.
Fjögur ólík hafsvæði
Fiskveiðar Bandaríkjanna fara
fram á fjórum mjög svo ólíkum
haf svæðum samkvæmt skilgrein-
ingu NOAA. Þau eru Norður-
Atlantshafið meðfram austurströnd-
inni niður að Flórídaskaga, Mexíkó-
flói, Kyrrahafið og hafsvæðið við
Alaska. Flórídaskaginn skiptist
á milli Atlantshafssvæðisins og
Mexíkó flóa.
Veiðar í Beringshafi við Alaska
eru taldar vera með hættulegustu
veiðum í heimi. Þar glíma sjómenn
oft við kulda og stórsjói. Hinir
þekktu sjónvarspsþættir Deadliest
Catch voru teknir þar.
Alaskasvæðið gefur mestan afla,
eða 58% af heildinni, en skilar þó
ekki nema tæpum þriðjungi af
aflaverðmætum. Mexíkóflóinn er
næstur í röðinni. Þar eru dregin úr
sjó 16% aflans og 16% verðmæta.
Úr Atlantshafinu koma 14% afl-
ans en 37% verðmæta. Kyrrahafið
rekur lestina með 12% aflans og
13% verðmæta.
Atlantshafið er þannig í fyrsta
sæti varðandi aflaverðmæti og
helgast það af því að afar verðmæt-
ar tegundir, eins og humar, skeljar
og krabbar, veiðast þar.
Alaskaufsi á toppnum
Helstu fisktegundir sem veiðast við
Bandaríkin eru flestum Íslendingum
lítt kunnar nema af afspurn.
Alaskaufsi er mest veidda
tegundin. Hann veiðist einkum
í Beringshafi en einnig víðar í
Norður-Kyrrahafi. Á árinu 2018
komu rúmar 1,5 milljónir tonna á
land af þessum ágæta fiski, sem er
töluvert meira en afli Íslendinga í
öllum tegundum var það ár.
Í öðru sæti er lítill bræðslu-
fiskur sem nefnist meinhaddur (e.
Menhaden). Veiðar á honum fara
fram í Atlantshafi og Mexíkóflóa.
Alls veiddust rúm 717 þúsund tonn
af meinhaddi.
Lýsingingur, smár hvítfiskur, er
þriðja mest veidda tegundin með
um 318 þúsund tonn. Hann veiðist
nær eingöngu í Kyrrahafinu.
Kyrrahafslax er í fjórða sæti með
262 þúsund tonn. Hér er um fimm
aðskildar tegundir laxa að ræða.
Flatfiskar verma fimmta sætið
með 248 þúsund tonn. Fjölda
kolategunda og annarra flatfiska
er þarna slegið saman. Um 90%
aflans veiðast í Kyrrahafi.
Bandaríkjamenn veiða um 233
þúsund tonn af kyrrahafsþorski sem
er frábrugðinn atlantshafþorskin-
um sem Íslendingar veiða. Hér á
árum áður veiddist mikið af atlants-
hafsþorski nyrst við austurströnd
Bandaríkjanna. Stofninn hrundi
vegna ofveiði og hefur ekki náð
sér síðan. Þar veiddust aðeins 976
tonn af þorski árið 2018.
Humarinn skilar
mestum verðmætum
Þegar horft er til aflaverðmæta
riðlast röðin á mikilvægi tegunda.
Humar er sú tegund sem skilar
mestum aflaverðmætum, eða um
648 milljónum dollara, sem er
rúmur 91 milljarður íslenskur.
Humarinn er nær eingöngu veiddur
í Maine og Massachusetts.
Krabbar fylgja fast á eftir með
svipuð verðmæti og humarinn. Hér
er um nokkrar tegundir krabba að
ræða sem veiðast bæði við vestur-
ströndina, austurströndina og við
Alaska.
Kyrrahafslax er í þriðja sæti
á verðmætalistanum og þar á
eftir koma hörpudiskur og rækj-
ur. Rækjurnar veiðast aðallega í
Mexíkóflóa en einnig í Kyrrahafi.
Alaskaufsi er aðeins í sjö-
unda sæti á lista yfir verðmætu-
stu tegundirnar. Verðmæti hans er
451,2 milljónir dollarar, eða rúmir
63 milljarðar íslenskir. Meinhaddur,
sem er í öðru sæti yfir mest veiddu
tegundir, er í tíunda sæti miðað við
verðmæti.
Mestu verðmæti í Massachusetts
Eins og að líkum lætur er Alaska
mesta fiskveiðiríki Bandaríkjanna,
bæði hvað varðar magn og verð-
mæti. Þar var landað 2,5 millj-
ónum tonnum af fiski og skelfiski
að verðmæti 1,8 milljarðar dollara,
eða 253 milljörðum króna. Fyrir
utan alaskaufsann kemur mikið á
land af kyrrahafslaxi, kyrrahafs-
þorski og nokkrum verðmætum
krabbategundum.
Annað stærsta fiskveiðirík-
ið er Louisiana sem liggur að
Mexíkóflóa. Þar var landað 454
þúsund tonnum af sjávarafla.
Í þriðja sæti er Washington, sem
er nyrst á vesturströndinni, með 268
þúsund tonn. Í Washingtonríki er
borgin Seattle en þangað hafa all-
nokkrir íslenskir sjómenn lagt leið
sína.
Þegar litið er á aflaverðmæti þá
skýst Massachusetts upp í annað
sæti á eftir Alaska með 647,2
milljónir dollara, um 91 millj-
arð íslenskan. Maine er í þriðja
sæti með 587,4 milljón dollara,
tæpir 83 milljarðar íslenskir. Bæði
þessi ríki eru norðarlega á austur-
ströndinni.
Stærsta fiskihöfnin
Dutch Harbor í Alaska hefur í
áraraðir verið stærsta fiskihöfnin
í Bandaríkjunum. Árið 2018 var
engin undantekning. Þar komu á
land 365 þúsund tonn af sjávar-
fangi að verðmæti 182 milljónir
dollarar, eða 25,6 milljarðar króna.
Ekki kemur á óvart að alaskaufsi er
rúmlega 90% þessa afla.
New Bedford í Massachusetts
er hins vegar sú fiskihöfn þar sem
mestum verðmætum var landað.
Verðmæti afla þar var 431 milljón
dollara, eða rúmir 60 milljarðar
íslenskir. Á bak við þessi miklu
verðmæti eru að langstærstum hluta
veiðar á hörpudiski.
Þess má geta til samanburðar að
stærsta fiskihöfn á Íslandi í tonnum
talið árið 2018 er Neskaupstaður
með 214 þúsund tonn. Mest verð-
mæti komu á land í Reykjavík eða
17,7 milljarðar. Helgast það meðal
annars af því að margir frystitogarar
landa þar afurðum sem unnar hafa
verið um borð.
Gríðarlegur innflutningur
Þrátt fyrir miklar fiskveiðar eru
Bandaríkin stór innflytjandi á
sjávarafurðum. Reyndar er ekkert
annað ríki í heiminum sem flytur
inn jafnmikið af sjávarafurðum og
Bandaríkin.
Um 85 til 95% af sjávarafurð-
um sem Bandaríkjamenn neyta eru
innflutt. Þetta segir ekki alla söguna
því verulegt magn, sem bandarísk-
ir fiskimenn veiða, fer til vinnslu
erlendis og er síðan flutt inn sem
afurðir.
Helstu innfluttar tegundir eru
hlýsjávarrækjur og flök ýmissa
hvítfisktegunda.
Hér á árum áður voru Banda-
ríkin einn helsti markaður fyrir
botnfiskafurðir frá Íslandi. Þessi
viðskipti hafa dregist mikið saman
en hafa reyndar verið örlítið á
uppleið síðustu árin. Árið 2018
voru fluttar út sjávarafurðir héðan
til Bandaríkjanna fyrir tæpan 21
milljarð króna, sem eru tæp 9% af
virði fiskútflutnings okkar það ár.
Öflug fiskvinnsla
Megnið af fiskafla Bandaríkjanna
var ráðstafað til manneldisvinnslu,
eða um 76% af lönduðum afla. Um
17% fóru í vinnslu á fiskimjöli og
lýsi. Restin fór í beitu, dýrafóður
o.fl.
Fiskvinnsla er mjög öflug í
Bandaríkjunum og er bæði unnið
úr sjávarafla sem fenginn er heima-
fyrir og úr innfluttu hráefni. Helstu
tegundir sem teknar eru til vinnslu
eru alaskaufsi, rækjur, kyrrahafs-
lax, túnfiskur og kyrrahafsþorskur.
Í heild voru framleiðsluverð-
mæti sjávarafurða 10,1 milljarð-
ur dollara, um 1.420 milljónir
íslenskar. Til samanburðar má
geta þess að framleiðsluverðmæti
útfluttra sjávarafurða frá Íslandi
voru um 240 milljarðar árið 2018.
Eldi á verðmætum tegundum
NOAA fjallar einnig um fiskeldi
í skýrslu sinni en nýjustu tölur
um þá grein eru frá árinu 2017.
Fiskeldið skilaði 1,5 milljörðum
dollara, eða um 211 milljörðum
íslenskum. Framleidd voru 284
þúsund tonn. Lögð er áhersla á
eldi á verðmætum tegundum, svo
sem ostrum, skeljum og atlants-
hafslaxi.
Samanlögð verðmæti fiskveiða
og eldis er rétt tæpir þúsund millj-
arðar íslenskra króna. Eldið er um
21% af verðmætum veiða og eldis
samanlagt en í magni um 7%.
NYTJAR HAFSINS
Bandaríkin eru með öflugan sjávarútveg:
Fimmta stærsta fiskveiðiþjóð heims
Bandarískir sjómenn að veiðum við Alaska. Myndir / NOAA
Bandarískir fiskimenn komu með 4,3 milljónir tonna af fiski og skelfiski að
landi árið 2018 að verðmæti 5,6 milljarða dollara, eða sem samsvarar 785
milljörðum íslenskra króna, miðað við gengi krónunnar í lok síðustu viku.
Fjögur tré