Bændablaðið - 02.04.2020, Blaðsíða 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. apríl 202018
HROSS&HESTAMENNSKA
Tuttugu og sjö hross sem bólusett hafa
verið gegn sumarexemi flutt úr landi
Lokahnykkur rannsóknar á
sumar exemi í íslenskum hestum
hófst mánudaginn 16. mars þegar
27 bólusettir hestar voru fluttir
úr landi.
Hópur íslenskra hesta var fluttur
út til svokallaðra „flugusvæða“ í
Evrópu, tuttugu og fimm til Sviss
og tveir til Suður-Þýskalands, á
mánudaginn. Þetta er lokahnykkur
rannsóknar Tilraunastöðvar Háskóla
Íslands í meinafræði að Keldum
og samstarfsaðila á sumarexemi í
íslenskum hestum.
Exemið veldur
óþægindum og vanlíðan
Sumarexem er ofnæmi gegn
próteinum úr munnvatnskirtlum
bitflugna sem lifa ekki á Íslandi.
Tíðni hefur verið mjög há í útfluttum
íslenskum hestum, allt að 50% á
slæmum flugusvæðum. Exemið
veldur óþægindum og vanlíðan og
hefur reynst mikið vandamál í ís-
lenskum hrossaútflutningi.
„Sumarexem í hrossum fluttum
frá Íslandi er og hefur verið mikið
velferðarmál þó að það hafi verið
mismikið eftir svæðum og aðstæð-
um. En þegar verst lætur þarfnast
hrossin mikillar umönnunar og
líður hreint ekki vel,“ segir Sveinn
Steinarsson, formaður Félags
íslenskra hrossabænda.
„Auðvitað þekkir fólk erlend-
is sífellt betur hvernig er best að
meðhöndla exemið og haga hrossa-
haldinu, en því fylgir oft mikil
aukavinna og kostnaður. Því er
mikilvægt að lausn sé fram undan.
Allir sem hafa komið að þeirri vinnu
að hægt verði að bólusetja hrossin
gegn exemi, binda miklar vonir
við bóluefnið, og að hægt verði að
verja hrossin sem flutt eru úr landi
þannig að þau verði að minnsta kosti
jafnsett þeim íslensku hrossum sem
fæðast erlendis hvað sumarexemið
varðar. Góð niðurstaða úr þessari
rannsókn mun umfram allt bæta
líðan íslenskra hrossa erlendis og
eins mun góð niðurstaða hjálpa
mikið til við markaðssetningu og
sölu á hrossum frá Íslandi. Á því er
enginn vafi í mínum huga,“ segir
Sveinn.
Hefur verið rannsakað
á Keldum síðan árið 2000
Sumarexem hefur verið rannsakað á
Keldum síðan árið 2000 í samstarfi
við marga aðila og má þar helst
nefna dýrasjúkdómadeild háskólans
í Bern í Sviss, dýrasjúkdómadeild
háskólans í Bristol í Bretlandi, ORF
Líftækni og Cornell háskóla í Ithaca
í New York-ríki í Bandaríkjunum.
Próteinin sem eru að valda ofnæm-
inu hafa verið einangruð og fram-
leidd með aðferðum erfðafræðinnar.
Markmiðin eru tvö:
Að nota próteinin til að finna
ónæmismeðferð, þ.e. að bólu setja
hross sem forvörn gegn exeminu, og
meðhöndla eða afnæma hross sem
eru komin með exemið. Þetta útskýr-
ir Sigurbjörg Þorsteins dóttir, deildar-
stjóri sameinda- og veirudeildar á
Keldum, í kynningar myndbandi.
„Með því að prófa mismunandi
bólusetningaraðferðir, sprautu nar-
aðferðir og mismunandi blönd ur af
ofnæmispróteinunum og ofnæmis-
glæðum teljum við okkur hafa fund-
ið aðferð til þess að beina ónæm-
issvari gegn ofnæmisvökunum í
rétta átt þannig að það verði hægt
að verja hrossin gegn sumarexemi,“
segir Sigurbjörg.
Vilhjálmur Svansson dýralæknir,
sem er í rannsóknarteyminu, bætir
við að fjölmargir ofnæmisvakar voru
greindir í flugunum, en að misjafnt
sé gegn hvaða vökum hrossin hafi
ofnæmi. Í bóluefninu sem teymið
þróaði eru níu ofnæmisvakar, þeir
sem flest hross reyndust hafa ofnæmi
gegn. Hrossin, sem flutt voru út á
dögunum, voru bólusett beint í eitla,
en fyrri tilraunir á hestum á Keldum
hafa sýnt að bólusetning í eitla er
árangursrík leið til að beina ónæm-
issvarinu á brautir sem ekki leiða
til ofnæmis. Hrossin munu dvelja á
flugusvæðunum í tvö til þrjú ár svo
hægt sé að athuga hvort bólusetn-
ingin verji þá gegn exeminu.
Líka tilraunir í Bern
á sýktum hrossum
Rannsakendur við háskólann í Bern
eru einnig að fara af stað með af-
næmingar með bóluefninu. Í þeim
tilraunum verða hross sem nú
þegar eru komin með sumarexem
sprautuð á sama hátt og gert var á
Keldum.
Í kynningarmyndbandinu segir
Sara Björk Stefánsdóttir frá seinni
hluta verkefnisins. „Hann snýst
um að þróa afnæmingu, þar sem
að hestar með sumarexem fá með-
ferð til að draga úr einkennum sjúk-
dómsins. Sú aðferð byggist á því
að meðhöndla hesta um slímhúð
munns með byggmjöli.“ Erfðabætta
byggið sem notað er í meðferðina
er framleitt í samstarfi við ORF
Líftækni en í bygginu eru ofnæm-
isvakar úr bitkirlum smámýsins í
byggfræjunum.
Íslenskir hestar líka með
höndlaðir í Bandaríkjunum
Aðferðin hefur verið prófuð á heil-
brigðum hestum á Keldum með
því að láta hestana vera með bygg-
mjölsblöndu í sérstökum mélum og
hefur hún skilað góðum árangri.
Vilhjálmur útskýrir að hægt sé að
mæla bælissvörun í heilbrigðum
hestum en að nú þurfi að skoða
hvernig hestar með sumarexem
bregðist við. Í samstarfi við Cornell-
háskóla verða íslenskir hestar
með sumarexem meðhöndlaðir í
Bandaríkjunum.
• Tíðni sumarexems hefur verið mjög há í útfluttum íslenskum
hestum, sem veldur þeim óþægindum og vanlíðan.
• Eftir 20 ára rannsóknarvinnu hefur teymi íslenskra og erlendra
vísindamanna þróað bóluefni gegn sumarexemi.
• Markmiðin eru tvö: Að bólusetja hross sem forvörn gegn
exeminu og að meðhöndla eða afnæma hross sem eru komin
með exemið.
Allt klárt fyrir útflutning hrossanna til Sviss og Suður-Þýskalands.
Sveinn Steinarsson, formaður Félags hrossabænda, og Vilhjálmur Svansson,
dýralæknir á Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum.
Örn Karlsson, bóndi á Sandhóli
í Meðallandi í Skaftárhreppi, er
iðinn í nýsköpun og nú hefur hann
sett á markað kaldpressaða repju-
olíu fyrir hesta.
Repjuplantan er ræktuð á
Sandhóli í Meðallandi, Skaftár-
hreppi, án notkunar skordýraeiturs,
illgresiseyðis eða annarra óæski-
legra efna. Olían er kaldpressuð og
heldur því næringarefnum sérlega
vel. Olían er rík af Omega 3. Olían
er gefin út á kjarnfóður. Ráðlagður
skammtur er 80–120 millilítrar á
dag fyrir hvern hest. Repjuolía frá
Sandhóli fyrir hesta er fáanleg í
verslunum Líflands.
Bærinn Sandhóll er í Meðal-
landi, Skaftárhreppi í Vestur-
Skaftafellssýslu. Á Sandhóli er
stundaður blandaður búskapur. Þar
eru ræktaðar ýmsar nytjajurtir eins
og hafrar, bygg og repja. Einnig er
þar nautgriparækt og nytjaskógrækt.
Auk repjuolíunnar fyrir hesta hefur
Örn nokkuð verið í sviðsljósinu fyrir
ræktun á tröllahöfrum og vinnslu og
markaðssetningu á íslensku hafra-
mjöli. Þá hefur hann einnig framleitt
repjuolíu á flöskum til matargerðar.
Örn segir að hestamenn á
Suðurlandi og í Skagafirði hafi
prófað olíuna frá honum í tvö til
þrjú ár og séu ánægðir með
útkomuna. Þeim þyki feldur-
inn t.d. meira gljáandi.
„Þess vegna langaði mig
að gera tilraun með að setja
þetta í sölu í samstarfi við
Lífland.“
Repjuolía er góður orkugjafi,
bæði fyrir hross í léttri og mik-
illi þjálfun en nýtist einnig til að
bæta holdafar hrossa. Olían er rík
af mettuðum, ein- og fjölómett-
uðum fitusýrum. Með olíugjöf er
minni hætta á hófsperru og öðrum
kvillum sem oft geta fylgt kjarn-
fóðurgjöf.
Á Sandhóli hefur
líka gengið mjög vel
að rækta hafra.
„Við ætlum að
setja núna niður í
100 hektara af höfr-
um. Ætli við verð-
um ekki með um
60 hektara í repju.
Staðan hjá okkur í höfrunum er
þannig að þeir verða uppseld-
ir. Við ráðum eiginlega ekki við
mikið meira en þessa vinnslu þar
sem afkastagetan okkar á haustin
í þreskingu og þurrkun er ekki
meiri, nema að fara þá út í miklar
fjárfestingar. Það gætu því verið
tækifæri fyrir fleiri þar sem mikill
markaður er fyrir þetta. Ég held
að syðstu hlutar lands ins ættu að
henta vel fyrir ræktun á höfrum en
þeir þurfa langan vaxtartíma. Það
þarf þó að hjálpa okkur bændum
að finna réttu yrkin. Landbúnaðar-
háskól inn og Líf land ætla því að
gera hér yrkja tilraunir í sumar,“
segir Örn Karlsson. /HKr.
Nýjung frá Sandhóli í Meðallandi í Skaftárhreppi:
Repjuolía sem orkugjafi fyrir hross
Sandhóll í Meðallandi í Skaftárhreppi. Á innfelldu myndunum eru afurðir frá bænum. Myndir / Sandhóll
Ábúendur á Sandhóli á repjuakrinum.
Repjuolía fyrir hesta.