Bændablaðið - 02.04.2020, Side 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. apríl 2020 21
Þegar velja skal vinnuvéla- og landbúnaðar-
dekk skipta gæði, ending og áreiðanleiki
höfuðmáli.
Maxam dekkin eru hagkvæmur kostur
og hafa reynst vel við krefjandi aðstæður.
Gerðu kröfur — hafðu samband við sölumenn
okkar í síma 590 5280 og kynntu þér kosti
Maxam dekkjanna.
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
Hagkvæm
dekk fyrir
alvöru kröfur
Stöðvun farþegaflugs um allan
heim hefur þegar haft gríðar-
leg áhrif á vöruflutninga.
Lestarrými í þúsundum far-
þegaflugvéla sem nýtt var til
vöruflutninga, m.a. á matvæl-
um, er ekki lengur fyrir hendi.
Um leið skapar það tækifæri hjá
fragtflug félög un um.
Hefur eftirspurn eftir flutninga
rými hjá fragtflutninga fyrirtækjum
eins og Cargolux því stóraukist.
Samfara verulegri lækkun á elds
neytisverði þýðir það mikil upp
grip hjá slíkum félögum.
67,2% verðlækkun
á þotueldsneyti
Samkvæmt tölum IATA hefur
þotueldsneyti (steinolía) lækkað
um 55,2% á einum mánuði og
67,2% á einu ári miðað við stöð
una 24. mars síðastliðinn. Áhrifin
á rekstur flugvéla er gríðarlegur.
Þannig hefur eldsneytiskostnaður
flugfélaga á heimsvísu lækkað
um 31,4 milljarða dollara á árinu
2020.
Cargolux 50 ára
Cargolux, sem hefur mjög verið
samofið íslenskri flugsögu,
fagnaði 50 ára afmæli 4. mars
síðastliðinn. Félagið var stofnað
af Loftleiðum, Luxair og sænska
flutningafyrirtækinu Salén og
nokkrum fjárfestum. Slagorð
félagsins; „Nefndu það og við
fljúgum því“ [You name it, we
fly it’], er enn í fullu gildi.
Hjá félaginu starfa í dag yfir
2.000 manns og í þeim hópi
má finna marga Íslendinga. Þá
rekur félagið 14 Boeing 7478
flutningavélar og 16 vélar af
gerðinni Boeing 747400. Félagið
er með áætlunarflug á 75 staði um
allan heim og er með skrifstofur
í yfir 50 löndum. Einnig rekur
félagið flota flutningatrukka víða
um heim.
Íslensk félög líka
öflug í fragtflugi
Á Íslandi hafa starfað nokkur
flugfélög sem sérhæfa sig í
vöru flutningum. Þar má nefna
Bláfugl ehf. eða Bluebird Cargo
sem stofnað var árið 1999 og
Icelandair yfirtók 2005 og var í
eigu Icelandair Group til 2010.
Haru Holding keypti félagið 2014
og síðan BB Holding. Nú er búið
að selja það til Avia Solution
Group sem er með starfsemi í
Mið og Austur Evrópu. Blubird
er með fimm Boeing 737400
þotur í notkun og þrjár Boeing
737300. Árið 2017 var nafni
félagsins breytt úr Bluebird Cargo
í Bluebird Nordic.
Þá er það Icelandair sem auk
flutningarýmis í farþegavélum
hefur rekið tvær B757200
flutningavélar.
Flugfélagið Loftleiðir Icelandic,
sem er hluti af Icelandair Group
hefur rekið samtals 11 vélar. Það
eru fimm 5 B727200 þotur, tvær
B767300, eina B737700 og þrjár
B737800 þotur. /HKr.
Uppgrip hjá fragtflugfélögum
þegar farþegaflugið leggst af
Það er nóg að gera hjá Cargolux á 50 ára afmælinu í kjölfar hruns í farþegaflugi. Mynd / Cargolux/Shrisian van Heijst
Bluebird Nordic.
á liði sínu varðandi háðsglósur um
fæðuöryggið, m.a. í greinaskrifum
í Bændablaðinu. Lítið heyrist hins
vegar úr þeim ranni í dag eftir
eftir að í ljós hefur komið að í
neyð hugsa þjóðarleiðtogar fyrst
og síðast um hag eigin þegna, líka
hjá ríkjum ESB. Það gera menn án
þess að hika, jafnvel þótt það brjóti
í grundvallaratriðum meginstoðir
milliríkjasamninga sem gerðir hafa
verið eins og EESsamningsins.
Grunnstoðum ESB
hent út um gluggann
Einna fyrst til að grípa til lokunar
landamæra voru einmitt ríki innan
Evrópusambandsins sem þar með
brutu allar formlegar reglur um
fjórfrelsið sem þar hefur svo mjög
verið gumað að sem grunnstoðum
ESB. Ríki eins og Frakkland og
Þýskaland hafa harð lokað sínum
landamærum og um tíma var líka
skellt í lás af hálfu ESB hvað varðar
sölu á neyðarbúnaði eins og á
sýnatökupinnum til Íslands. Það
var ekki fyrr en utanríkisráðherra
og forsætisráðherra Íslands bentu
á að þar með væri verið að brjóta
viðskiptasamninga milli EFTA og
ESB að skriffinnar í ESB gáfu eftir.
Þrátt fyrir þetta er sagt í leið
beiningum framkvæmdastjórn
ar Evrópusambandsins varðandi
vöruflutninga og þjónustu í þessu
ástandi að mikilvægt sé að halda
öllum flutningaleiðum opnum. Ekki
síst er varðar matvæli, flutninga á
dýrum og mikilvægum lyfjum.
COPA-COGECA og
Celvaa hafa áhyggjur
Samtök evrópskra bænda, COPA
COGECA, sem og Celvaa, sem
er Evrópunefnd um viðskipti með
landbúnaðarafurðir, hafa í sam
eiginlegu áliti sagt að það sé mjög
líklegt að lokun landamæra muni
trufla landbúnaðarframleiðslu og
viðskipti með slíkar vörur milli
ríkja ESB. Er framkvæmdastjórn
ESB hvött til að gera allt sem í
hennar valdi stendur til að koma
í veg fyrir truflanir á landbúnað
arframleiðslu og flæði matvæla,
drykkjarvöru og umbúða á milli
landa.
Lagt að Schengen-
ríkjum að lúta vilja ESB
Þjóðverjar lokuðu landamærum
sínum að Frakklandi, Austurríki
og Sviss mánudaginn 16. mars.
Þann 17. mars sagði Angela
Merkel, kanslari Þýskalands, að 26
Evrópusambandsríki myndu loka
ytri landamærum sínum í 30 daga
samkvæmt samkomulagi þjóðar
leiðtoga ESBríkjanna. Írland hafði
þá ekki tekið afstöðu til lokunar
sinna landamæra. Var þetta líka sagt
gilda varðandi EFTAríkin Ísland,
Liechtenstein og Noreg, sem eru
aðilar að Schengensamstarfinu.
Janusz Wojciechowski, fram
kvæmda stjóri landbúnaðar mála
hjá ESB, sendi bréf til landbún
aðarráðherra Evrópu sambandsins
þann 19. mars þar sem hann sagði
hreint út að lokun landamæra
margra aðildarríkja muni leiða til
mjög mikilla erfiðleika í fjölmörg
um greinum, þar á meðal í land
búnaði. Ráðherrarnir verði því að
vinna að samræmdum að gerðum
til að styðja við bændur og land
búnaðarframleiðsluna og tryggja
öruggt flæði matvæla.
Útbreiðsla COVID19 hefur leitt
til þess að gjörbreyta hefur þurft
vinnulagi í nær öllum atvinnu
greinum. Landbúnaður og mat
vælaiðnaður er þar ekki undan
skilinn. Taka þarf tillit til þeirra
sem veikjast eða þurfa af öðrum
ástæðum að fara í sóttkví. Því hefur
víða verið tekinn upp sveigjanlegur
vinnutími og vinnumiðlun til að
halda hlutunum gangandi.
Fjárhagsstaða evrópskra
banka er afar slæm
Það er alveg ljóst að COVID19
mun hafa veruleg áhrif á hug
myndafræðina sem lögð hefur verið
til grundvallar Evrópu sambandinu.
Hver fram vindan verður er ekki
gott að spá um, en nær útilokað
má telja að staðan verði óbreytt.
Nægir þar að nefna efnahagslegu
hliðina, sem er að leika þetta sam
band afar illa, sem upphaflega var
byggt á óheftum viðskiptum með
stál milli landa.
Þýskaland hefur staðið fjárhags
lega tiltölulega traustum fótum í
þessu ríkja sambandi, en fjárhagur
Ítalíu og Spánar er nú afar bágbor
inn. Þrátt fyrir inndælingu á millj
örðum evra í viðleitni við að halda
efnahagslífinu í Evrópu á lífi, þá eru
samt margir sem efast. Seðlabanki
Evrópu dældi þannig 750 milljörð
um evra inn í efnahagskerfið þann
18. mars síðastliðinn.
Þetta felur í sér gríðarlega
peninga prentun innistæðulausra
seðla þar sem ríki Evrópu og
bankar eru margir hverjir þegar
skuldsettir upp fyrir rjáfur. Þessi
björgunaraðgerð var kölluð „Big
Bazooka“ í New York Times á
dögunum, eða stóra sprengju
varpan og peningaregnið nefnt
þyrlu peningar, eða „Helicopter
Money“. Þá er skuldabréfaútgáfa
seðlabanka Evrópu nefnd „Corona
Bonds“.
Vísitölustuðull evrópskra banka
hafði verið örlítið að lagast frá
hruninu 2008, en er nú að versna
aftur. Þannig er staðan á banka
vísitölunni 70% verri en hún var
í mars 2008. Eru fréttaskýrendur
farnir að tala um að annað banka
hrun geti verið yfirvofandi.
Samkvæmt Financial Times
stóðu margir evrópskir bankar
frammi fyrir því á síðasta ári að
þurfa að leita eftir gríðarlegri
endurfjármögnun vegna skulda
og vafasamrar skuldabréfaeignar
og fjármálavafninga. Þá var sagt í
frétt blaðsins 17. mars að fjárfest
ar væru farnir að flýja evrópska
banka vegna skuldastöðu þeirra.
Þá hafði verið mikið fall á verði
bréfa í bönkum eins og Deutsche
Bank sem reyndar hefur líka verið
að glíma við afleiðingar af pen
ingamisferli.
Óttinn við skort á nauðsynjavörum hefur víða leitt til þess að fólk hefur
hamstrað vörur svo eftir standa tómar hillur.