Bændablaðið - 02.04.2020, Síða 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. apríl 202022
Ingunn Reynisdóttir, þjón-
ustudýralæknir fyrir Austur-,
og Vestur-Húnavatnssýslur og
Skagaströnd, hefur sagt upp
samningi. Hún segir þjónustu-
svæðið of stórt og að ekki sé gert
ráð fyrir sumar- eða veikindaleyf-
um í samningi þjónustudýra-
lækna. Ingunn er í sóttkví vegna
COVID-19 veirunnar.
„Ég er einfaldlega búin að fá
nóg,“ segir Ingunn, sem býr á Syðri-
Völlum á Hvammstanga. „Ég er í
sóttkví vegna COVID-19 veirunn-
ar sem herjar á heiminn um þessar
mundir og það er sýking á mínu
heimili. Eftir að ég var sett í sóttkví
tilkynnti ég það til Mast og mér tjáð
að mér bæri að útvega dýralækni í
minn stað og borga honum laun eins
og samningar þjónustudýralækna
gera ráð fyrir.
Þetta er náttúrlega galið ákvæði
og ekki heil brú í að við berum
ábyrgð á að manna stöðuna ef það
kemur eitthvað upp. Hvað þá ef við
viljum fara í sumarfrí, sem ég hef
ekki gert í fjölmörg ár.“
Ráðið úr bakvarðasveit
dýralækna
Ingunn segir að búið sé að finna
nýjan dýralækni í starfið og að hann
komi úr bakvarðasveit dýralækna.
„Meðan á ráðningu hans stendur fæ
ég ekki þjónustugreiðslur frá Mast
en dýralæknafélagið er að athuga
hvort ég eigi rétt á greiðslum frá
Vinnumálastofnun vegna vinnutaps
í kjölfar faraldursins.“
Stór þjónustusvæði
„Ég er búin að vera þjónustudýra-
lækir á þjónustusvæði 4, sem er
Austur-, og Vestur-Húnavatnssýsla
og Skagaströnd, síðan 2012.
Svæðið er alltof stórt fyrir einn
dýralækni að þjónusta og hefur
verið það frá upphafi. Ég hef bent
á það frá því að breytingin á þjón-
ustu dýralækna var gerð árið 2011
og embætti héraðsdýralækna lögð
niður. Eftir þennan vetur, þar sem
náttúruhamfarir og endalaus óveður
og ófærð hefur gert starfið geysi-
lega annasamt og erfitt og ég er eini
búsetti starfandi dýralæknirinn á
svæðinu, sé ég ekki fram á neinar
líkur á að geta unnið við mannsæm-
andi aðstæður í framtíðinni og tók
ég því þessa ákvörðun.
Inni í þjónustusamningi dýra-
lækna er ákvæði sem kveður á um
að við þjónustudýralæknar berum
sjálf ábyrgð á afleysingum og að
greiða afleysingadýralæknum laun,
hvort sem við viljum fara í frí eða
þurfum veikindaleyfi.“
Samningar lausir 1. maí
Ingunn segir að mjög erfitt sé að fá
afleysingu og að hún hafi ekki farið
í sumarfrí í fjöldamörg ár.
„Samningar þjónustudýralækna
runnu út í nóvember síðastliðinn
en hann var framlengdur til 1.
maí og var settur á samráðshóp-
ur sem Matvælastofnun, atvinnu-
og nýsköpunarráðuneytið og
Dýralæknafélagið eiga sæti í til að
finna lausnir á þjónustu dýralækna í
dreifðum byggðum landsins. Engar
lausnir eru í sjónmáli og mánuður
í að allir þjónustudýralæknar séu
samningslausir verði ekki samið.
Allir þjónustudýralæknar eru
sammála um að skrifa ekki undir
óbreyttan samning án þess að eiga
kost á afleysingu.“ /VH
UTAN ÚR HEIMI
Norski prófessorinn Tore Midtvedt:
Óttast að svínapestin stökkbreytist
og geti þá smitað manneskjur
Norski prófessorinn Tore
Midtvedt var nýlega í viðtali hjá
Norsk veterinærtidsskrift sem
norska Bændablaðið birti einnig
þar sem hann lýsti áhyggjum
sínum af óstöðugleika afríkanskr-
ar svínapestar og hræðist mest að
hún geti stökkbreyst og smitað
manneskjur. Mörg dæmi eru um,
að sögn prófessorsins, að örverur
skipta um og ráðast á aðra hýsla
þegar það borgar sig fyrir þær.
Prófessorinn Tore Midtvedt er
orðinn 85 ára gamall og hefur stóran
hluta af sínu lífi unnið á Karólínsku
stofnuninni í Svíþjóð en þrátt fyrir
aldur stundar hann enn í dag rann-
sóknir. Hann er þekktur fræðimaður
í Noregi og hefur unnið til ýmissa
viðurkenninga en einnig er hann
þekktur fyrir að koma fram með
skoðanir sem samstarfsmenn hans
hafa oftar en ekki rifið í hár sitt yfir.
„Kínversk stjórnvöld hafa slátrað
fleiri hundruð milljónum grísa og
sama sér maður í öðrum löndum í
Asíu. Í Evrópu og þá sérstaklega í
Austur-Evrópu dreifist svínapestin
á ógnarhraða. Þýsk og dönsk stjórn-
völd hafa tekið þessu mjög alvarlega
og byggt girðingar til að hindra að
smitið dreifist með villisvínum yfir
þeirra landamæri,“ segir Tore.
Dreifist hratt með villisvínum
Prófessorinn segir að vírusinn sé svo
óstöðugur að hann geti stökkbreyst
og smitað manneskjur.
„Afrísk svínapest hefur alltaf
verið til í Afríku, ekki eingöngu
í svínum, heldur einnig í öðrum
dýrategundum. Á meðan lítið var
um verslunarskipti milli afrískra
landa og restinni af heiminum var
þetta eingöngu vandamál í Afríku.
Svínapestin dreifði sér síðan til
Evrópu fyrir nokkrum tugum ára og
þá fyrst og fremst til Íberíuskagans.
Með ýmsum ráðum tókst að útrýma
sjúkdómnum,“ segir Tore og bætir
við:
„Undanfarin 10–15 ár hefur
vírusinn komið aftur til Evrópu og
dreift sér hratt með villisvínum.
Ef svínabændur og -ræktendur fá
svínapestina inn á sín bú hafa þeir
ekkert val því þá verður allur flokk-
urinn að aflífast og urðast. Sjálfur
þekki ég norskan svínaræktanda
í Kaliningrad sem þurfti að slátra
öllum flokknum hjá sér, yfir 100
þúsund grísum. Vandamálið er svo
víðfeðmt að heil atvinnugrein getur
tapað milljörðum króna. Ástandið
er sérstaklega slæmt fyrir ræktend-
ur í Kína sem hafa slátrað um 300
milljónum svína af samtals 400
milljónum svo þetta eru miklar
hörmungar.“
Svínahjörtu mögulega
grædd í mannfólk
Tore bendir á að allar örverur þurfi
að hafa einhvern stað til að vera á og
bendir á líkindi með malaríu.
„Fyrir fleiri hundruð árum var
malaría ekki sjúkdómur í mann-
eskjum. Með auknum mannfjölda
í afrísku heimsálfunni réðst malar-
ían á mannfólk og aðlagaðist.
Svínapestin hefur aðlagast nokkrum
dýrategundum í Afríku og það er
ekki óhugsandi að hún geti stökk-
breyst yfir á okkur mannfólkið.
Stökkbreytingin verður að hafa
nýjan einstakling til að lifa í og
síðan þarf einhver að smitast til þess
að vírusinn geti lifað áfram,“ útskýr-
ir prófessorinn og segir jafnframt:
„Fyrir 200 árum flutti sænski
kóngurinn inn villisvín til Sví-
þjóðar en hann hafði verið á villi-
svínaveiðum í Evrópu og fannst
þessi veiðimennska svo spennandi
að hann fékk með sér flokk til
Öland.
Eftir því sem árin liðu var flokkn-
um smyglað yfir til meginlandsins
og dreifði sér þar. Villisvínin flytja
sig stöðugt og fyrir nokkrum árum
fóru þau yfir landamærin til Noregs
svo nú er stofninn nokkur þúsund
dýr í Noregi.
Ef svínapestin myndi koma hing-
að og dreifa sér yrði það hræðilegt
fyrir norska svínaræktendur. Margt
er líkt með svínum og mannfólki og
nú er rannsakað hvort hægt sé að
nota líffæri úr svínum í manneskjur.
Svínapestsvírusinn margfaldar
sig ekki sjálfur heldur í dýrinu sem
það smitar. Það er ekki ólíklegt að
vírusinn geti farið yfir í manneskjur
en í dag eru fáar vísbendingar um
að það geti gerst.
Fyrir nokkrum árum var ég í nefnd
stjórnvalda þar sem við áttum að
rannsaka hvort það væri rétt að taka
líffæri úr dýrum og græða í mann-
eskjur. Niðurstaða okkar var að svín
væru hinn fullkomni gjafi. Þyngd og
stærð á svínahjarta er það sama og í
okkur mannfólki, eini munurinn er að
svín ganga á fjórum fótum en við á
tveimur. Einnig sáum við að það eru
í raun fá gen sem þarf að breyta til
að skapa hið fullkomna gjafahjarta
frá svínum. Með nútíma genatækni
er mögulegt að aðlaga svínahjörtu
til manna en með aukinni útbreiðslu
svínapestarinnar getur verið mikil
áhætta í að græða svínahjörtu í mann-
fólk.“
/Bondebladet - ehg
Norski prófessorinn Tore Midtvedt hræðist mest að afríska svínapestin geti
stökkbreyst og smitað manneskjur.
Tore Midtvedt.
Prófessorinn segir að vírusinn sé
svo óstöðugur að hann geti stökk-
breyst og smitað manneskjur.
Útbreiðsla afrísku svínapestarinnar í Evrópu í nóvember 2019.
Sýkt svín í Beihai í Guangxi Zhuang-héraði í Kína rekin í gryfju til slátrunar
og urðunar þann 19. febrúar 2019.
Vetrarsól er umboðsaðili
40 ár
á Íslandi
Sláttuvélar
Snjóblásarar
Sláttutraktorar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
Dýralæknaþjónusta á Norðvesturlandi:
Þjónustudýralæknir segir
upp samningi við MAST
– hefur áhrif í Húnavatnssýslum og á Skagaströnd
SKÓGRÆKT&LANDGRÆÐSLA
LÍF&STARF
Ingunn Reynisdóttir, dýralæknir á
Syðri-Völlum.
Bændablaðið
kemur næst út 22. apríl
– Smáauglýsingar 56-30-300 –