Bændablaðið - 02.04.2020, Page 30
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. apríl 202030
LÍF&STARF
Herrafataverzlun Kormáks &
Skjaldar er komin með vörulínu
þar sem hráefnið er „íslenskt
tweed“, ullarvefnaður sem unn-
inn er úr ull af íslensku sauðfé.
Í vörulínunni eru fimm tegundir
jakkafata, auk vesta, og fimm
sixpensarar.
Íslenskur ullarvefnaður gekk
ætíð undir heitinu „vaðmál“ og var í
margar aldir aðalhráefnið til heimil-
isiðnaðar og fatagerðar, auk þess að
vera mikilvæg útflutningsvara. Nú
hefur þessi hefð verið endurvakin
hjá Kormáki & Skildi, en tæp 50 ár
eru liðin frá því að hún lagðist af.
Að sögn Gunnars Hilmars sonar,
yfirhönnuðar hjá framleiðslu deild
Kormáks & Skjaldar og umsjónar-
manns vaðmáls framleiðsl unnar, er
ullin í vörulínunni í grunnlitunum
fjórum; mórauður, hvítur, grár og
svartur.
„Úr þessum fjórum litum hönn-
um við úrval mynstra og blönd-
um samana litunum sem saman
mynda heildstæða línu. Ullin kemur
frá öllum landshornum Íslands,
ullarbandið er spunnið af Ístex í
Mosfellsbæ og svo er „tweedið“
ofið í einni bestu myllum í Evrópu,
Seidra í Austurríki. Draumurinn er
að geta gert allt ferlið eingöngu hér-
lendis en til þess vantar enn tæki og
þekkingu sem hefur með tímanum
tapast að hluta,“ segir Gunnar.
Hann segir að sixpensarar úr ull
af forystufé komi í haust og ef til vill
verði tilraunir gerðar með að klæða
vasapela slíkri ull.
Snúa við neikvæðri þróun
„Sú var tíðin að íslenskt tweed-
efni var framleitt hérlendis. Öll
stig framleiðslunnar voru unnin
hér. Allt frá því að bóndinn afhenti
hráa ullina, ullin var hreinsuð og
þvegin, kembd og spunnið úr henni
ullarband. Bandið var svo ofið í
tweed-efni sem var notað í fatnað,
teppi, áklæði og margs konar aðra
hluti. Gamla Álafossúlpan er gott
dæmi um fatnað sem nýtti íslenskt
tweed.
Sumar aðferðir við vinnslu textíl-
efna hafa þó viðhaldist betur hér á
landi en aðrar. Prjón og hekl eru aðal
vinnsluaðferðir okkar. Vefnaðurinn
er talinn gera textílefnið sterkara
en við erum ekki að framleiða ofin
textílefni lengur og hefur vefnaður
úr íslensku ullinni horfið að mestu
leyti. Sá tækjakostur og þekking sem
var til hérlendis er því miður horfin
og því enginn iðnaðarvefnaður til
staðar lengur. Textílframleiðslan á
ullinni er því frekar einhæf hér á
landi.
Við hjá Kormáki og Skildi höfum
haft það markmið að snúa þróun-
inni við þegar kemur að vefnaði úr
íslenskri ull. Okkar sýn er að iðnað-
arvefnaður úr íslenskri ull komist
aftur á laggirnar hér á landi. Því
höfum við hafið þessa framleiðslu,
bæði fyrir innlendan markað og
erlendan,“ segir Gunnar.
Tweed-bólstruð húsgögn
„Þessi þróun okkar hefur vakið
athygli eiganda húsgagna verslunar-
innar Epal, sem frábæran kost sem
áklæði fyrir innlenda sem og er-
lenda húsgagnaframleiðendur. Efnið
hefur staðist allar gæðaprófanir og
er leitast við að varan sé í senn
náttúruvæn og með sömu gæði og
samkeppnisaðilar erlendis bjóða upp
á. Markmið Epal var að kynna hús-
gögn frá þeim sem bólstruð eru með
íslensku tweedi á Hönnunarmars,
sem valkost í húsgagnaframleiðslu,“
segir Gunnar að lokum.
/smh
Skjöldur Sigurjónsson í íslenskum „tweed“-jakkafötum sem heita Kjartansson.
Kormákur Geirharðsson í jakkaföt-
um sem heita Þráinsson og með
sixpensarann Móra.
Gunnar Hilmarsson, yfirhönnuður hjá framleiðslu deild Kormáks & Skjaldar.
NÝR VALKOSTUR - SMÁHÝSI ÚR STÁLGRIND
5 X 8 M - ÓEINANGRAÐ SMÁHÝSI - 1.400.000 KR. M/VSK.
5 X 8 M - EINANGRAÐ SMÁHÝSI - 1.800.000 KR. M/VSK.
Smáhýsi úr Z - stálgrind. Fæst með tvenns konar klæðningum.
Stærð grunngerðar er 5 x 8 m / 40 m². Vegghæð 2,8 m. Stærð á
hurðargati 3 x 2,5 m.
EINFÖLD HÚS - AUÐVELD UPPSETNING
GRÓÐURHÚS
Tryggðu þér gróðurhús fyrir sumarið!
SMÁHÝSI - 40 M² - 100 M²
TÖLVUPÓSTUR
sala@bkhonnun . is
SÍMI
865-9277
VEFFANG
www .bkhonnun . is
Margar gerðir gróðurhúsa - fást í ál lit, svörtu og
grænu. 4 mm hert gler eða 10 mm ylplast
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðar-
ins (RML) hefur gefið út grunna
að viðbragðsáætlunum fyrir
helstu gerðir búrekstrar, vegna
aðsteðjandi ógnar af COVID-19.
Aðallega eru áætlanirnar hugs-
aðar fyrir einyrkja, en geta nýst
stærri búum þar sem slíkar áætl-
anir eru ekki til staðar.
RML hefur útbúið grunna að
slíkum áætlunum fyrir kúabú,
sauðfjárbú, hesthús, gróðurhús,
loðdýrabú, alifuglabú og svínabú.
Í tilkynningu vegna útgáfunnar
kemur fram að nauðsynlegt sé fyrir
bændur að hafa slíka viðbragðs-
áætlun, sem taki til þátta sem mik-
ilvægir séu til að tryggja órofinn
búrekstur komi til veikinda. „Gera
þarf ráð fyrir að afleysingamaður
geti gengið inn í dagleg störf án
þekkingar á viðkomandi búi eða
með aðstoð bónda. Þá skiptir við-
bragsáætlun hvers bús höfuðmáli,“
segir í tilkynningunni sem fer hér
á eftir.
„Viðbragðsáætlunin er byggð
upp með það að markmiði að auð-
velda bændum greiningu á lykil-
þáttum starfseminnar með snið-
máti til að skrá mikilvæga þætti
og aðrar nauðsynlegar upplýsingar.
Áætlunin miðast einkum við bú
sem rekin eru af einyrkjum þar
sem aðrir eru lítið inni í daglegum
störfum en getur einnig nýst stærri
búum þar sem viðbragðsáætlanir
eru ekki nú þegar til staðar.“
Mikilvægir staðir merktir inn
„Helstu atriði viðbragsáætlunar
taka m.a. til teikninga af gripa-
húsum þar sem merktir eru inn
mikilvægir staðir s.s. rafmagns
tafla, vatnsinntök, gjafakerfi,
dráttar- og vinnuvélar og hvernig
rafstöð skal tengd og ræst, sé hún
til staðar. Hnitmiðuð símaskrá bús-
ins flýtir einnig viðbragði. Sniðmát
viðbragðsáætlana er alls ekki tæm-
andi og er ráðlagt að bæta við eins
og þurfa þykir.
Stutt og markviss leiðbeininga-
myndbönd þar sem gengið er um
búið og farið yfir mikilvæga þætti
starfseminnar geta verið mjög
gagnleg. Þau nýtast jafnframt til
frekari útskýringa á tækjabúnaði
eða öðrum lykilþáttum búsins.
Myndböndin er svo hægt að senda
til afleysingamanns í gegnum
samskiptaforrit (Facebook) eða
tölvupóst.
Ráðunautar RML aðstoða við
gerð viðbragðsáætlana, sé þess
óskað. Símanúmer RML er 516-
5000 og tölvupóstfangið rml@
rml.is. Við bendum einnig á að
hægt er að hafa samband í gegnum
vefspjall á heimasíðu fyrirtækis-
ins.“
Áætlanirnar eru aðgengilegar
á vef RML, rml.is. /smh
RML gefur út grunn að viðbragðsáætlunum vegna COVID-19:
Nauðsynlegt að tryggja
órofinn búrekstur
– Gera þarf ráð fyrir að afleysingamaður geti gengið inn í dagleg störf
Vörulína Kormáks & Skjaldar úr íslensku vaðmáli:
Ætla að endurreisa iðnaðarvefnað úr íslenskri ull
– Fimm jakkaföt og sixpensarar í boði í versluninni