Bændablaðið - 02.04.2020, Síða 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. apríl 202034
Listin að flokka landbúnaðarplast
– Gerum íslenskan landbúnað grænni og umhverfisvænni með markvissari flokkun og endurvinnslu
Árlega falla til um 1500-1800 tonn
af landbúnaðarplasti á Íslandi.
Þótt plast sé nytsamlegt efni til
þess að geyma fóður, matvæli og
fleira, er plastmengun orðið eitt
alvarlegasta vandamál heims og
mikil ógn við allt lífríki jarðar.
Rétt flokkun og öflug plastend-
urvinnsla er mikilvægt skref í
að gera íslenskan landbúnað
umhverfisvænan og sjálfbæran.
Almenna reglan er sú að flokka
heyrúlluplastið sérstaklega – og vera
ekki að blanda neinu saman við það.
Landbúnaðarplast sem er notað utan
um heyrúllur er úrvalsplast sem er
tilvalið í endurvinnslu, en sé plastið
ekki rétt flokkað eða óhreint er ekki
hægt að endurvinna það og því er
brýnt að flokka landbúnaðarplastið
rétt og vandlega.
Hér eru nokkur atriði sem hafa
ber í huga:
• Plastið þarf að vera hreint.
• Mikilvægt er að plastið sé
hreint og laust við alla aðskota-
hluti. Sé plastið ekki hreint er
ógjörningur að endurvinna
það og því þarf að urða það
með tilheyrandi kostnaði og
umhverfisáhrifum. Net og
plastbönd verða að vera í sér
pokum, alls ekki blanda neti,
spottum, hræjum eða öðru
drasli við heyrúlluplastið, því
þá er plastið ekki endurvinn-
anlegt. Léleg flokkun á einum
stað getur eyðilagt stórt hlass af
hreinu og fínu plasti til endur-
vinnslu. Best er að ganga frá
landbúnaðarplasti um leið og
það fellur til við gegningar
og hrista úr því hey og önnur
óhreinindi. Hreint landbúnað-
arplast (annað en svart plast)
má vera laust eða baggað.
• Svart plast er ekki sama og hvítt
plast.
• Svart plast er sérlega erfitt í
endurvinnslu í samanburði við
annað plast. Það veldur erfið-
leikum í flokkun vegna þess
að innrauður geisli í flokk-
unarvélum nemur ekki svart
plast. Reynum því að forðast
að nota svart plast og blöndum
því ekki saman við annað plast
í flokkun. Ef svart plast fellur
til þá að binda vel utan um það
sérstaklega.
Gott samstarf við
bændur er lykilatriði
Markmiðið er að allir bændur
sem nota landbúnaðarplast hafi
mögu leika á því skila plastinu á
auðveldan og markvissan hátt til
að tryggja góða endurvinnslu eða
endurnýtingu. Slíkt verklag tryggir
verndun á íslenskri náttúru og dýra-
lífi. Samstarf um þetta brýna mál
hefur gengið vel um allt land og
bændur hafa almennt tekið mjög
vel í að flokka landbúnaðarplast
frá öðrum úrgangi. Mikilvægt er
að aðgengi að bæjunum sé gott og
ekki síður að þeim stað sem plast-
inu er safnað saman.
Við minnum á að samvinna er
lykilatriði. Terra, sem hefur sinnt
sorphirðu og plastsöfnun, gerir sitt
besta til að láta vita þegar söfnun
á sér stað þannig að bændur geti
undirbúið söfnunina og einnig
verið á staðnum og aðstoðað bíl-
stjóra eftir þörfum. Þá er einnig
farið yfir hvort rétt sé staðið að
söfnun og frágangi á plastinu. Allt
landbúnaðarplast sem er vel flokk-
að fer til endurvinnslu. Plastið er
að hluta endurunnið á Íslandi og að
hluta flutt erlendis til endurvinnslu.
Málmar, hjólbarðar og spilliefni
Terra vill einnig hvetja bændur til
að huga vel að almennri flokkun.
Fara með efni eins og hjólbarða og
brotamálma til móttökustöðva þar
sem þess er nokkur kostur. Síðan
þarf að fara sérstaklega varlega
með öll spilliefni eins og olíu,
sýru og önnur eiturefni. Það er
afar nauðsynlegt að flokka og eyða
hættulegum efnum á þann máta
að land, sjór, vötn og loft mengist
ekki. Terra hefur margra ára
reynslu af meðhöndlun spilliefna
og skipulagningu á móttöku spilli-
efna.. Almenningur getur losað sig
við hættuleg efni og annan spilli-
efnaúrgang á endurvinnslustöðvum
sveitarfélaga, þar sem spilliefnum
er safnað saman áður en þau eru
send til Terra – Efnaeyðingar. Öll
berum við ábyrgð á umhverfinu og
hluti af þeirri ábyrgð felst í skyn-
samlegri meðferð á spilliefnum,
takmarkaðri notkun þeirra og ör-
uggri förgun.
Gæði íslenskra landbúnaðarvara
eru vel þekkt. Hróður ýmissa
afurða, eins og íslenska lamba-
kjötsins, er óðum að breiðast út
til annarra landa. Íslendingar eru
mjög stoltir af hreinleika landsins
og vilja vera vissir um að úrgangur
muni ekki menga það. Því mark-
miði náum við ekki nema vera
öll meðvituð um rétta flokkun og
endurvinnslu - þátttaka allra skiptir
miklu máli. Skiljum ekkert eftir!
Freyr Eyjólfsson
Höfundur er samskiptastjóri
Terra. Terra er viðurkenndur
þjónustuaðili Úrvinnslusjóðs
við söfnun á landbúnaðarplasti.
Hvítt rúllubaggaplast hentar best til endurvinnslu. Svart plast er sérlega erfitt í endurvinnslu í samanburði við annað plast. Það veldur erfiðleikum í flokkun
vegna þess að innrauður geisli í flokkunarvélum nemur ekki svart plast.
Best er að ganga frá landbúnaðarplasti um leið og það fellur til við gegningar
og hrista úr því hey og önnur óhreinindi. Hreint landbúnaðarplast (annað
en svart plast) má vera laust eða baggað.
LANDBÚNAÐUR&UMHVERFISMÁL
TE
N
G
IT
A
U
G
A
R Fallvarnarbúnaður
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Fjölbreytt og gott úrval til á lager
Námskeið um fallvarnir fyrir viðskiptavini
Skoðanir og eftirlit á fallvarnarbúnaði
FA
LLB
LA
K
K
IR
BELTI
Ganga þarf sérstaklega vel um
gámasvæði sveitarfélaga
Sveitarfélög víða á landinu hafa
hvatt heimili og sumarbústaði
þar sem fólk er í sóttkví eða í
einangrun vegna COVID-19
veirunnar að ganga vandlega frá
öllu sorpi og úrgangi til þess að
hindra frekari smit.
Allur úrgangur sem berst frá
þessum heimilum ætti að flokk-
ast sem almennt sorp, ekki að
meðhöndlast né flokkast sem
endurvinnsluefni. Þetta er gert
af heilsufarsástæðum því sorpið
getur mögulega verið sóttmeng-
að. Endurvinnsluefni (pappír,
plast, málmar) er meðhöndlað af
starfsmönnum þeirra fyrirtækja,
sem þjónusta sveitarfélögin eftir
að það er sótt og því er allt gert til
að forðast mögulegt smit og gæta
fyllstu varúðarráðstafana. Því er
biðlað til allra þeirra sem eru í
sóttkví eða einangrun að setja allt
endurvinnsluefni beint í tunnur
fyrir óflokkað sorp til þess að hefta
útbreiðslu veirunnar. /MHH
Allur úrgangur sem berst frá sumarbústöðum ætti að flokkast sem almennt
sorp, ekki að meðhöndlast né flokkast sem endurvinnsluefni. Þetta er
gert af heilsufarsástæðum því sorpið getur mögulega verið sóttmengað.
Mynd / Feykir