Bændablaðið - 02.04.2020, Side 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. apríl 2020 35
Erfðanefnd landbúnaðarins auglýsir eftir
umsóknum um verkefnastyrki
Meginhlutverk erfðanefndar landbúnaðarins er að vinna að varðveislu og sjálf-
bærri nýtingu erfðaauðlinda í landbúnaði. Í því skyni hefur nefndin ákveðið að
verja fjármunum í að styrkja einstök afmörkuð verkefni sem falla að því hlutverki.
Vísað er til stefnumörkunaráætlunar erfðanefndar varðandi nánari áherslur
nefnd arinnar. Sjá vefsíðu nefndarinnar www.agrogen.is.
Lögð er áhersla á að styrkja verkefni á eftirfarandi sviðum:
• Rannsóknir er lúta að varðveislu og viðhaldi á erfðaauðlindum í landbúnaði.
• Lokaverkefni til prófs á háskólastigi er tengjast varðveislu og/eða nýtingu á
erfðaauðlindum í landbúnaði.
• Aðgerðir sem stuðla að sjálfbærri varðveislu og/eða nýtingu erfðaauðlinda í
landbúnaði.
• Kynning og fræðsla fyrir almenning um erfðaauðlindir í landbúnaði og gildi
þeirra.
Einstaklingar og félagasamtök eru hvött til að sækja um styrki til verkefna sem
hafa það að markmiði að stuðla að varðveislu og/eða sjálfbærri nýtingu innlendra
erfðaauðlinda í landbúnaði.
Að jafnaði verða veittir styrkir á bilinu kr. 200–900 þús. Sérstök eyðublöð má
finna á heimasíðu erfðanefndar www.agrogen.is.
Umsóknum skal skilað fyrir 8. maí 2020 til Birnu Kristínar Baldursdóttur,
Landbúnaðarháskóla Íslands, Hvanneyri, 311 Borgarnes - birna@lbhi.is.
Mótorar og varahlutir á lager
Hröð og góð þjónusta
Dreifingaraðili BRIGGS & STRATTON
á ÍSLANDI
MHG Verslun ehf | Víkurhvarf 8 | 203 Kópavogi
Sími 544-4656 | www.mhg.is
Við bjóðum Auroru,
Matthew og
Freyju Wickstrom
velkomin til starfa.
Fimbul Kaffi á Lamb Inn töfrar fram ævintýri í
mat og drykk alla daga undir stjórn meistara
veitingapars frá Portland Oregon USA sem
hefur tekið ástfóstri við íslenska matargerð
og hefðir.
Hægt að bóka á www.lambinn.is eða hafa samband á
lambinn@lambinn.is / 463 1500
SUMARTILBOÐ
Tveggja manna herbergi með morgunverði í sjö
nætur á 99.000 krónur. Einnig þriggja og fimm
nátta tilboð og þriggja og fjögra manna herbergi:
Sjá heimasíðu
LÍF OG FJÖR Í SVEITASÆLUNNI
• Lifandi tónlist á laugardagskvöldum
• Göngu- og skoðunatferðir um Eyjafjarðarsveit
• Kyrrðarstund í Gamla bænum
á sunnudagsmorgnum
• Grasaferð með Matthew meistarakokki
• Ljósmyndasamkeppni og fleira
• Endalausir útivistarmöguleikar í
sveitinni blómlegu
Takk fyrir matinn
Fyrr í vetur fékk ég til mín gesti
frá Bandaríkjunum. Bar ég fram
það fínasta úr búrinu á borðin og
kynnti fyrir þeim íslenskan mat.
Þar mátti finna skyr, osta, lax og
lamb. Áður en sest var að snæðingi
fóru þau með sína borðbæn: „God
bless the food.“ Já, já, ég hnikaði
höfði kurteislega til samþykkis,
sinn er hver siðurinn og allt það.
Núna síðustu vikur hef ég verið
að hugsa um þennan sið sem líklega
er til á öllum tungumálum og í öllum
trúarbrögðum. ´Guð laun fyrir mat-
inn‘, var sagt og var þá verið að vísa
til þess að ekki er það sjálfsagt að
eiga til hnífs og skeiðar og auðvitað
ætti maður að drjúpa höfði í auðmýkt
að geta borið næringu á borð fyrir
sig og sína.
Okkar öryggi
Stefna um fæðu- og matvælaör-
yggi á Íslandi er liður í stefnu í
almannavarna- og öryggismálum
sem er hluti af þjóðaröryggisstefnu
sem samþykkt var á Alþingi 2016.
Í stefnu fyrir árin 2015-2017 segir
að matvælaöryggi felist í aðgangi að
nægum, öruggum og næringarríkum
matvælum. Settar eru fram aðgerðir
og verkefni til að tryggja að til sé
áætlun um að nægar birgðir séu til
af heilnæmum mat og ómenguðu
neysluvatni í að minnsta kosti sex
mánuði og áætlun um heilnæmi og
gæði matvæla til vernda heilsu fólks.
Meðal tilgreinda verkefna til að ná
markmiðunum er að að setja þyrfti
lög um matvælageymslur, dreifingu
matar, orku og eftirlit, gera þyrfti
viðbragðsáætlun við matvælaskorti
í samráði við helstu birgja og gera
neyðaráætlun um hagvarnir, birgðir
og neyðarflutninga til og frá landinu.
Í svari dómsmálaráðherra við fyr-
irspurn minni á Alþingi í sl. viku
um uppfærslu á stefnu í almanna-
varna- og öryggismálum kemur
fram að unnið sé að stefnumótun
varðandi fæðuöryggi samhliða
mótun matvælastefnu fyrir Ísland.
Þá hefur atvinnuvega- og nýsköp-
unarráðuneytið með samningi sem
undirritaður var í febrúar 2020
falið Landbúnaðarháskóla Íslands
að vinna greiningu á fæðuöryggi.
En sumt getum við sagt okkur sjálf.
Guð hjálpar þeim
sem hjálpa sér sjálfir
Þeir tímar sem við lifum á núna
minna okkur á hversu mikilvægt
það er að tryggja fæðuöryggið í
landinu, þó ekki væri nema vegna
legu landsins. Farsælasta leiðin til
þess er að framleiða næg matvæli
innanlands, svo við verðum að mestu
leyti sjálfum okkur nóg um matvæli.
Innlend matvælaframleiðsla á að
geta fullnægt frumþörfum okkar,
þó hún muni seint geta uppfyllt alla
þá fjölbreytni sem við viljum búa
við hér á landi. Engu að síður er það
ljóst að við getum spýtt verulega í til
að tryggja að neytendur hafi ávallt
aðgang að góðum og heilnæmum
matvælum.
Framsóknarflokkurinn hefur
ávallt verið óhræddur við að benda
á það augljósa, að það þurfi að styðja
og vernda íslenska landbúnaðinn.
Með því að styðja við íslenska
landbúnaðarframleiðslu tryggjum
við ekki aðeins fæðuöryggi, heldur
verndum við einnig störf fólks og
tryggjum fjölbreytni atvinnulífs-
ins. Við viljum geta boðið upp á
hágæðavöru sem framleidd er við
bestu mögulegu aðstæður á sama
tíma og við sköpum störf fyrir fólkið
í landinu. Það gleymist nefnilega
oft að þúsundir einstaklinga starfa
við matvælaframleiðslu hér á landi.
Þetta fólk borgar hér skatta og skyld-
ur sem og fyrirtækin sem stunda sína
framleiðslu. Með því að efla íslensk-
an landbúnað er hægt að draga úr
niðursveiflunni í hagkerfinu og um
leið tryggja fæðu- og matvælaöryggi
í landinu.
Halla Signý Kristjánsdóttir
alþingismaður
LESENDABÁS
Halla Signý Kristjánsdóttir.
Bændablaðið Auglýsingar 56-30-300
Dreift í 32 þúsund eintökum á yfir 420 dreifingarstaði og öll lögbýli á Íslandi 2,2% 5,2% 9,1% 5,8%
19,0%
21,9%
41,9%
0,0%
5,0%
10,0%
15,0%
20,0%
25,0%
30,0%
35,0%
40,0%
45,0%
Mannlíf Viðskiptablaðið DV Stundin Morgunblaðið Fréttablaðið Bændablaðið
Prentmiðlar - meðallestur á landsbyggðinni