Bændablaðið - 02.04.2020, Side 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. apríl 202036
Að smakka alls kyns hitabeltis
aldin er góð skemmtun.
Berkjualdin eða berkjur sjást
annað slagið í verslunum hér
en vinvældir þeirra hafa aukist
mikið í Evrópu undanfarin ár.
Plantan er það sem kallast pan
tropical og þýðir að hún er ræktuð
í hitabeltinu hringinn í kringum
hnöttinn. Aldinin þroskast hratt
og þola illa geymslu.
Ekki fundust heimildir um magn
berkjualdina í ræktun í heiminum
undanfarin ár og líklega stafar það af
því að nokkrar tegundir aldinsins eru
í ræktun og flokkun þeirra misjöfn
milli landa.
Mest mun vera framleitt af aldin-
inu í Mexíkó og fylgir Brasilía þar
á eftir. Ræktun á berkju í Evrópu
er mest við strendur Granada á
Spáni og í Portúgal og neyta þær
þjóðir mest Evrópubúa af aldininu.
Víða í ræktun í Suðaustur-Asíu og
í Ástralíu. Plantan er í dag það sem
kallast pantropical sem þýðir að hún
er ræktuð í hitabeltinu hringinn í
kringum hnöttinn.
Spár gera ráð fyrir að ræktun
berkjualdina eigi eftir að aukast
talsvert í framtíðinni þar sem mark-
aður fyrir aldinið er að aukast og
framleiðslugeta talsvert meiri en
framleiðslan.
Innflutningur á berkjualdinum
er ekki skráður sérstaklega hjá
Hagstofu Íslands enda ólíklegt
að hann sé það verulegur að hann
flokkist ekki með öðrum aldinum
í innflutningi.
Ættkvíslin Annona
Tegundir innan ættkvíslarinnar
Annona eru sagðar vera milli 120
og 160 en fjöldinn er breytilegur
eftir heimildum. Allar tegundirnar
eru blómstrandi tré eða runnar sem
finnast villtir á mörkum hitabeltisins
í Suður-Ameríku og Afríku. Flestar
eru sígrænar en nokkrar tegundir
lauffellandi. Allar eru þær með öfl-
uga stólparót sem nær allt að 1,8
metra niður og er með hliðarrætur.
Stofninn brúnleitur og með þunnum
og eilítið skeljakenndum berki sem
myndar mislitar langsum rendur.
Laufið misstórt og ólíkt viðkomu
eftir tegundum, samsett úr mörgum
stakstæðum smáböðum. Blómin fá í
hnapp eða eitt sér og vaxa á megin-
stofni plöntunnar eða eldri greinum.
Krónublöðin þrjú til fjögur og minni
en bikarblöðin sem eru gul eða hvít
með rauðu. Tvíkynja en frævlar og
frævur í sama blómi þroskast á
mismunandi tíma, frjóvgað með
skordýrum. Aldinið misstórt eftir
tegundum, kón- eða köngullaga, gul,
rauð eða hvít á ytra borði en ljós
að innan. Milli 55 og 75 svört fræ
eru í hverju aldini og er þeim mikið
dreift af ávaxtaleðurblökum sem eru
sólgnar í aldinið.
Sjö tegundir innan ættkvíslarinn-
ar Annona eru talsvert mikið í rækt-
un og enn fleiri eru ræktaðar í minna
mæli til heimilisnota. Helstu rækt-
unartegundirnar eru A. reticulata,
A. squamosa og A. cherimola auk
þess sem fjöldi blendinga þessara
tegunda eru í ræktun og að sögn
þeirra sem til þekkja er talsverður
bragðmunur milli tegundanna og
blendinganna.
Tegundin A. reticulata, sem er í
mestri ræktun í heiminum í dag, er
lauffellandi tré sem nær um 10 metra
hæð og myndar opna og óreglulega
krónu, yfirleitt lægra í ræktun.
Stofninn ljósbrúnn 25 til 35 sentí-
metrar í þvermál. Blöðin mjólensu-
laga og með greinilegum blaðæðum,
10 til 20 sentímetra löng og 2 til 7
sentímetrar að breidd og oddmjó.
Stakstæð og illa lyktandi. Blómin
opin, gul, 2 til 3 sentímetrar í þver-
mál og yfirleitt þrjú saman í hnapp.
Aldinin ólík af stærð eftir afbrigðum
og allt frá 7 og upp í 16 sentímetra
að lengd og þvermáli, brún, gul og
bláleit og rauð með hvítu í. Oftast
200 til 700 grömm en hafa mælst yfir
kíló að þyngd. Þrátt fyrir að aldin-
in geti verið samhverf, hjartalaga,
óregluleg, hnöttótt eða köngullaga
eftir afbrigðum er með þeim sterk-
ur ættarsvipur. Aldinhúðin þykk í
sér en aldinið safaríkt, ilmsterkt og
með mjög einkennandi sætu bragði.
Fræin svört, flatvaxin, 1,5 til tveir
sentímetrar að lengd, einn að breidd.
Villtar plöntur dafna vel frá
sjávarmáli upp í 1500 metra hæð í
náttúrulegum heimkynnum sínum.
Hundruð ef ekki þúsundir yrkja og
blendinga ólíkra tegunda sem eru
ólík eftir stærð, lit og lögun eru í
ræktun.
Saga og útbreiðsla
Fornleifarannsóknir sýna að villt
berkjualdin hafa verið nytjuð í þús-
undir ára og að þau voru ræktuð
við Yautepec-ána í norðanverðri
Mexíkó rúmum eitt þúsund árum
fyrir Krist.
Þrátt fyrir að flestar tegundir
innan Annona ættkvíslarinnar séu
upprunnar í Suður-Afríku finnast
nokkra tegundir í Afríku, bæði
villtar og ræktaðar. Aldin tegund-
anna beggja vegna Atlantsála eru
sviplík þrátt fyrir sjónarmun að
undanskildu aldini einnar afrískr-
ar tegundar, A. mannii, sem líkist
langri, sverri og hangandi pylsu
frekar en köngli. Þekktasta afríska
berkjutegundin kallast á latínu
A. senegalenis og finnst villt frá
Senegal til Suður-Afríku, auk þess
sem tréð er víða ræktað við lítil
þorp. Sagt er að senegalberkjualdin,
sem eru gul eða appelsínugul að lit
og fremur smá, angi eins og ananas
og bragðist eins og apríkósa.
Írski læknirinn og náttúru-
fræðing urinn Sir Hans Sloane,
uppi 1606 til 1753, var duglegur
safnari forn- og náttúrugripa og
er safn hans að hluta til grunnur-
inn að bæði þjóðminja- og nátt-
úrugripasafni Breta. Sloane segir
í bók um ferðalög sín á árunum
1686 til 1688 að Annona tegundir
vaxi á eyjunni Jamaíka en að þar
væri plantan meira notuð til alþýðu-
lækninga en til átu. Til dæmis til að
græða sár og lægja bólgur.
Jamaíka var á þessum tíma
gríðarleg uppspretta auðs vegna
ræktunar á sykurreyr sem var mann-
að með þrælahaldi. Meðal þess sem
Sloane skráði hjá sér meðan hann
dvaldi á Jamaíka var hvernig þræl-
um var refsað. Væri þræll fundinn
sekur um að gera uppreisn var hann
negldur fastur við jörðina og síðan
lagður eldur að höndum hans og
fótum og hann brenndur smátt og
HELSTU NYTJAJURTIR HEIMSINS
Berkjualdin líkjast könglum
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Berkjualdin eru til græn, gul og hvít með rauðu og í mörgum stærðum og líkjast einna helst könglum að lögun.
Berkjualdin á grein á Indlandi.
Mynd / GHP.
Aldin tilbúið til neyslu. Algengt er að indversk skólabörn færi kennara sínum
berkju að gjöf. Mynd / Guðrún Hulda Pálsdóttir
Blóm að opnast.