Bændablaðið - 02.04.2020, Qupperneq 37
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. apríl 2020 37
smátt í átt að höfðinu. Fyrir smærri
glæpi þótti viðeigandi að höggva af
þrælum hálfan fót og svikust þrælar
undan í vinnunni fengu þeir óspart
að finna fyrir svipunni og salt og
pipar sturtað í sárin. Stundum var
bráðnu vaxi eða sjóðheitri olíu hellt
á líkama þeirra í refsingarskyni.
Heimili og garður Sloan,
Chelsea Manor, síðustu æviárin
er í dag þekkt sem Chelsea Physic
Garden í London og einn elsti varð-
veitti lækninga jurtagarður í heimi.
Talið er að A. reticulata hafi
verið flutt til Afríku snemma á 17.
öld og Indlands um svipað leyti.
Algengt er í dag að indversk skóla-
börn færi kennara sínum berkju að
gjöf sem virðingarvott.
Bandaríski rithöfundurinn Mark
Twain, uppi 1835 til 1910, sagði
að berkjur eða berkjualdin væru
sannkallaðar kræsingar.
Berkjualdin eru þjóðarávöxtur
Síle.
Nafnaspeki
Þrátt fyrir að aldin berkjutegunda
séu ólík eiga þau það til að ganga
kaupum og sölum undir sama
heitinu þrátt fyrir að staðarheiti
þeirra séu ólík. Nafnaruglingur milli
tegunda er því talsverður.
Latneska ættkvíslarheitið
Annona er komið af anón sem er
nafn aldinsins á Taíno sem er eitt
af mörgum tungumálum sem kallast
Aravkan og voru töluð víða í Suður-
Ameríku fyrir komu Evrópumanna.
Heitið Annona mun hafa orðið til úr
blöndu af spænsku, latínu, frönsku
og tungumáli Kreóla á Haítí.
Tegundarheitin reticulata, squamosa
og cherimola þýða aftur á móti net-
laga, vísa til lögunar aldinsins og
heitis aldinsins á tungumáli Inka.
Á ensku þekkjast heiti eins
og custard apple, soursop,
wild-sweetsop, bull's heart, bull-
ock's-heart, ox-heart, pearl of the
Andes og queen of the subtropical
fruit. Spánverjar kalla aldinið mörg-
um nöfnum eins og anona, anona
colorada, anona corazón, anonillo,
corazon, corazón de buey, guana-
bano, mamán og suncuya. Frakkar
segja pomme cannelle, cachiman,
coeur de boeuf eða zannone, Ítalir
cachirmano, cuor di bue eða cuore
di bue. Í Kína kallast aldinið niu
xin fan li zhi en í Víetnam binh bat,
mâng câu dai og qua na en mean
bat og mo bat í Kambótíu. Á Kúbu
gengur aldinið undir heitunum
cherimoya og mamón.
Þjóðverjar segja annone,
netzannone, ochsenherz, og och-
senherzapfel, Svíar nätannona og
Danir oksehjerte og netannona.
Á íslensku þekkjast heiti eins og
sætaldintré, kvöldberkja, sólberkja,
morgunberkja og dagmálsberkja til
að aðgreina ólíkar tegundir. Berkja
er því ágætt samheiti en grein-
ir ekki milli einstakra tegunda af
ættkvíslinni Annona.
Ræktun
Almennt dafnar sætaldintré best
í röku hitabeltisloftslagi þar sem
loftraki er hár eða á jöðrum þess þar
sem úrkoma er mikil. Kjörhiti þeirra
er 17° til 24° á Celsíus og trén þola
ekki að hitinn fari niður fyrir -2° á
Celsíus. Hæfilegt sýrustig jarðvegs
fyrir A. reticulata er á bilinu 5 til 8.
Kýs djúpan síraka og lifandi mold
en þolir ekki að standa í vatnsósa
jarðvegi.
Trén bera aldin þrjú til fimm ár
eftir gróðursetningu og það tekur
aldinið fimm til sex mánuði að ná
fullum þroska eftir frjóvgun.
Auðvelt er að rækta plöntuna upp
af fræi en erfiðara að halda henni
lifandi innanhúss hér á landi. Í fram-
leiðslu á aldinum er yrkjum fjölgað
með greina- eða brumágræðslu.
Blómin sums staðar frjóvguð
með höndum til að tryggja aldin-
myndun þar sem hentugir frjóberar
finnast ekki í náttúru ræktunarsvæð-
isins. Trén þurfa talsverða umhirðu
í ræktun svo þau vaxi ekki úr sér.
Síðþroski aldinanna er hrað-
ur og þarf því margar og hraðar
hendur við uppskeruna sem er öll
unnin með höndum. Aldinið er
viðkvæmt fyrir hjaski strax við
uppskeru og hefur stuttan hillu-
tíma.
Í dag hefur tegundin gert sig
heimakomna á stöðum og víðar
í heiminum þar sem hún hefur
slæðst út frá ræktun og á mörgum
stöðum er litið á hana sem ágenga
tegund og bölvaðan arfa í annarri
ræktun.
Við góðar aðstæður gefur hvert
tré af sér um 45 kíló á ári.
Nytjar
Berkjualdin er 72% vatn, 25%
kolvetni, 2% prótein og 1% fita. Í
hundrað grömmum af berkjualdini
eru um 101 kílókaloría og 25% af
ráðlögðum C-vítamín dagskammti
og 17% af ráðlögðum dagskammti
af B6. Auk þess sem aldinið inni-
heldur A, B, E, og K1 vítamín, auk
stein- og andoxunarefna.
Gæta skal þess að allir hlutar
sætaldinstrjáa nema aldinin eru
eitraðir og geta valdið skaða á
taugakerfinu og heilastarfsemi sé
þeirra neytt í miklu magni.
Berkjualdin eru sæt og þykja
einstaklega bragðgóð. Þau eru
borðuð hrá og einnig höfð í safa,
ís og búðinga og á Indlandi eru
þau höfð í sósur. Lauf og greinar
eru notuð til litunar og gefa bláan
lit.
Þar sem ytri börkur sætaldins-
trjáa er fremur þunnur er hann not-
aður í umbúðir og úr innri berk-
inum eru búnir til fínlegir skraut-
munir. Viður trjánna er mjúkur í
sér en þrátt fyrir að hann sé talinn
fremur lélegur til smíða eru búnir
til úr honum ýmsir smámunir.
Allir hlutar plöntunnar eru
nýttir til alþýðulækninga þar sem
hun finnst. Mulin lauf eru sögð
góð á graftarkýli og lægja bólg-
ur. Mulið rótarduft var notað til
að sefa tannverk og rótarseyði til
að lækka sótthita. Auk þess sem
barkarseyði þótti gott við iðra-
ormum, steinsmugu og ýmsum
amorskvillum.
Berkjualdin á Íslandi
Vinsældir berkjualdina hafa aukist
víða um heim og þau hafa verið til
sölu hér á landi. Skammur hillu-
tími og að aldinin eru viðkvæm
og skemmast við hnjask hefur
eflaust valdið því að aldinin eru
fremur fáséð hér á landi. Þetta
gæti þó breyst því að ný yrki með
lengri geymslutíma eru komin á
markað, flutningatækni batnað og
sala þeirra að aukast í Evrópu.
Ekki fer mikið fyrir berkju-
aldinum í íslenskum fjölmiðl-
um. Ein lýsing fannst á timarit.
is úr Morgunblaðiðnu frá því í
ágúst 2002 þar sem segir í grein
sem ber fyrirsögnina Velkomin
sól aldin, blæjuber og kakí og
fjallar um framandi ávexti og
aldin. „Morgunberkja, annóna (e.
cherimoya, lat. Annona cherimola):
aldin trés af sætaldinsætt sem vex
í Suður-Ameríku. Með grænleitt
hreistrað hýði, ljóst aldinkjöt með
svörtum fræjum, talið með ljúf-
fengustu ávöxtum en geymist illa.“
Berkjualdin eftir tínslu.
Berkjualdin þroskast hratt og þarf að hafa hraðar hendur við uppskeru
þeirra og pökkun.
Tegundin Annona reticulata er mest ræktaða sætaldinstré í heiminum í dag
og nær um 10 metra hæð.
Aldin ólíkra Annona tegunda (a) A. squamosa, (b) A. cornifolia, (c) A. coriacea,
(d) A. cherimola, (e) A. reticulata, (f) A. senegalensis, (g) A. purpurea, (h) A.
diversifolia, (i) A. hypoglauca, og (j) A. salzmannii.
Lauf og blómvísar.
Indversk afbrigði berkjualdins.
Aldin til sölu í Víetnam.
| S t r ú k t ú r e h f | w w w . s t r u k t u r . i s | s t r u k t u r @ s t r u k t u r . i s |
| S t a n g a r h y l 7 | 1 1 0 R e y k j a v í k | S í m i : 5 8 8 6 6 4 0 |
Límtré-Timbureiningar
Stálgrind
Yleiningar
PIR
Steinull