Bændablaðið - 02.04.2020, Síða 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. apríl 202038
LESENDABÁS
Íslenskur landbúnaður í breyttum heimi
Við lifum á einkennilegum
tímum. Við sótthreinsum á okkur
hendur og setjum á okkur hanska
þegar við förum í kjörbúðina og
ekki er ólíklegt að við rekumst á
fólk með andlitsgrímur í verslun
um og á förnum vegi. Við erum
flest, ef ekki öll, orðin meðvit
aðri um hvað við snertum, hvort
heldur það er hurðarhúnar eða
andlit okkar.
Okkur er ráðlagt af yfirvöldum
að heilsa ekki með handabandi,
kossum eða faðmlögum. Fyrir
nokkrum vikum hefðum við litið
á slíkt ástand sem kafla úr vísinda-
skáldsögu, jafnvel hryllingssögu.
Þessi fjandans veira hefur mikil
áhrif á daglegt líf okkar og mun
eflaust hafa það um ókomna tíð.
Vísindi og lýðheilsa
Eitt af því sem ég tel að þessar ein-
kennilegu vikur muni hafa áhrif á
er viðhorf til matvæla. Norrænir
fréttamiðlar hafa á síðustu dögum
fjallað um að sýklalyfjaónæmi
gæti verið einn þeirra þátta sem
hafi áhrif á alvarlegar afleiðingar
Covid-19. Ekki er nema rúmt ár
síðan Framsókn stóð fyrir fjöl-
sóttum fundi um sýklalyfjaónæmi
þar sem amerískur prófessor, Lance
Price, lofaði íslenska matvælafram-
leiðslu fyrir ábyrgð og framsýni
hvað varðar notkun sýklalyfja í
framleiðslu sinni. Á þessum fundi
var einnig framsögumaður Karl
G. Kristinsson, prófessor og yfir-
læknir, sem hefur verið einn helsti
baráttumaðurinn í því að vekja
athygli á þeim ógnum sem fylgja
óheftri notkun sýklalyfja í land-
búnaði. Við sjáum honum bregða
fyrir í fréttum þessa dagana þar
sem hann berst við kórónuveiruna
ásamt frábæru íslensku heilbrigð-
isstarfsfólki.
Það var á grunni vísinda og lýð-
heilsu sem Framsókn barðist fyrir
því að íslensk stjórnvöld lýstu því
yfir að Ísland yrði fyrsta landið
í heiminum til að banna sölu og
dreifingu á matvælum með sýkla-
lyfjaónæmum bakteríum. Þar
stigum við mikilvægt skref sem á
síðustu vikum sýnir mikilvægi sitt
enn frekar.
Hráa kjötið
Innflutningur á hráu kjöti til lands-
ins hefur verið mikið hitamál enda
mikið undir fyrir bændur en þó einn
meira fyrir íslenska neytendur sem
eru vanir því að þurfa ekki að hafa
áhyggjur af því að það sem þeir
kaupa í verslunum, hvort heldur
það er í kjötborði eða grænmetis-
deild, sé ekki örugg fæða. Ástæðan
fyrir því að opna varð á innflutning
er sú að árið 2004 gerðu íslensk
stjórnvöld ekki kröfu um bann við
innflutning á hráu kjöti, heldur að-
eins lifandi dýrum og erfðaefni. Það
er þó ljóst að atburðir síðustu vikna
hljóta að breyta stöðunni. Þjóðir
Evrópu hafa tekið ákvarðanir sem
eflaust eiga eftir að hafa gríðarleg
áhrif á samvinnuna innan Evrópu.
Þar sannast hið fornkveðna: Það er
ekkert til sem heitir vinátta þjóða,
aðeins hagsmunir.
Sáttmáli um fæðuöryggi
Velta má því fyrir sér hvort
komið sé að gerð sáttmála milli
matvælaframleiðenda, neytenda,
verslunarinnar og ríkisvaldsins þar
sem fæðuöryggi þjóðarinnar yrði
tryggt. Sáttmála um að umhverfi
matvælaframleiðslunnar verði
tryggt. Þjóðin treystir á innlendan
mat, það sannast núna á þessum erf-
iðu tímum. Við verðum sem þjóð,
sér í lagi vegna landfræðilegrar
staðsetningar okkar að tryggja það
að matvælaframleiðsla standi sterk-
um fótum og víkka út þá geira sem
fyrir eru á jötunni. Þá liggur fyrst
og beinast við að koma til móts við
grænmetisbændur varðandi flutn-
ingsverð á raforku. Um það hefur
verið rætt og á ég von á að það verði
hægt innan skamms.
Ábyrg framleiðsla
Hætt er við því að sú efnahags-
dýfa sem hafin er og tímabundin
fækkun ferðamanna á Íslandi
mun hafa einhver áhrif á íslenska
bændur og allt það fólk sem starfar
í matvælageiranum. Framtíðin er
þó björt sé rétt haldið á spilum. Sá
grunnur sem íslenskur landbúnaður
stendur á með sinni hreinu mat-
vælaframleiðslu er lýðheilsulegur
fjársjóður fyrir íslensku þjóðina.
Vörur úr þeim jarðvegi geta einnig
orðið eftirsóttar fyrir íbúa annarra
þjóða nú þegar allir gera sér grein
fyrir því hvað óábyrg framleiðsla
og óábyrg meðhöndlun matvæla
getur haft alvarleg áhrif á heilsu og
hag fólks um allan heim.
Ég efast ekki eina mínútu um að
við komumst í gegnum þetta ef við
stöndum saman. Við mætum þess-
um vanda af yfirvegun og æðru-
leysi eins og stórhríðunum sem við
þekkjum vel. Öll él birtir um síðir.
Það kemur vor og það kemur sól og
daginn lengir. Við höfum áður tek-
ist á við erfiðleika og staðið sterkari
eftir. Við getum gert það aftur.
Sigurður Ingi Jóhannsson,
formaður Framsóknar og sam-
göngu- og sveitarstjórnarráð-
herra.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Eru íslenskar reglur of linar og slappar?
Margir hafa áhyggjur af eigna
söfnun auðmanna, einkum
útlenskra gróðamanna sem ætla
sér mikinn hlut í íslenskum jarð
eignum, auðlindum og víðernum
landsins. Og þá spyrja menn
líka: Eru íslenskar reglur miklu
„opnari“, veikari, linari, loðn
ari og slappari heldur en reglur
nágrannaþjóðanna um þessi sömu
efni?
Nú hefur ríkisstjórnin boðað nýja
löggjöf um þessi mál. - Vonandi
stenst hún samanburðinn.
Í Bændablaðinu 19. mars sl. er
sagt frá drögum að lagafrumvarpi
ríkisstjórnarinnar, en frumvarpið
hefur verið í samráðsgátt stjórnvalda
(samradsgatt.is).
Danmörk
Í Danmörku gilda athyglisverðar
reglur um þessi mál (Regler om
køb af ejendom i Danmark -
Begrænsninger ved udlændingers
køb af fast ejendom i Danmark
- erhvervelsesloven - planloven -
sommerhusloven). Þessar reglur
njóta fullrar viðurkenningar
Evrópusambandsins enda byggðar
á sérstakri bókun (protokoll) frá inn-
göngu Dana í sambandið.
Þessar reglur Dana gilda m.a.
um þegna annarra aðildarríkja
Evrópusambandsins og Evrópska
efnahagssvæðisins. Og reyndar gilda
reglurnar að hluta einnig um Dani
sjálfa. Helstu drættir eru sem hér
segir:
• Þeir útlendingar sem eru búsett-
ir, starfa og taka laun eða aðrar
tekjur í Danmörku mega
kaupa fasteign í landinu en
aðeins til eigin afnota.
• Strangar kröfur gilda um búsetu
og eiginnýtingu.
• Sérstakar kröfur gilda um kaup
á fyrirtækjum.
• Sumarhús eða tómstundahús
mega þeir einir útlendingar eiga
sem búið hafa í Danmörku í
fimm ár og búa í landinu í var-
anlegri fastri búsetu.
• Sérstök skilyrði gilda um kaup
bújarða:
– kaupandi sé a.m.k. 18 ára
og hafi landbúnaðarmenntun,
– kaupandi setjist varanlega
að sjálfur á býlinu og annist
búreksturinn sjálfur,
– ef eignin er minni en 30
hektarar, verður kaupandi
a.m.k. að sjá um fulla nýtingu
í 8 ár og útvega þá leigjanda á
eignina ef hann býr þar ekki
sjálfur, og er eigandanum þá
óheimilt að dvelja þar sjálfum.
• Í sérstökum aðstæðum geta
menn sótt um undanþágu til
dómsmálaráðherra.
Finnland
Á Álandseyjum í Finnlandi gilda
merkilegar reglur um „heima-
rétt“ (Åländsk hembygdsrätt, sem
styðst við „Álandsbókunina“ -
Ålandsprotokollet, sem er 2. bókun/
protokoll með aðildarsamningi
Finna við Evrópusambandið).
Heimaréttur Álendinga tak-
markar aðgengi allra annarra, þ.
á m. þegna annarra aðildarríkja
Evrópusambandsins og Evrópska
efnahagssvæðisins.
Heimaréttur Álendinga er í aðal-
atriðum þessi:
• Aðeins þeir sem búa varanlega
á Álandseyjum, hafa þar upp-
runa, búsetu, atvinnu og lög-
heimili, þ.e. Álendingar sjálfir
og einir, mega eiga fasteignir,
fyrirtæki, lóðir og jarðeignir á
Álandseyjum.
• Álendingar geta gengið að arfi
frá foreldri, við 18 ára aldur, og
nægir eitt foreldri sem hefur,
eða ef látið er, hafði heimarétt
á eyjunum.
• Alger skilyrði eru föst varan-
leg búseta á Álandseyjum og
finnskur þegnréttur.
• Til greina kemur að samþykkja
umsókn um heimarétt, ef um er
að ræða fasta búsetu á eyjun-
um í fimm ár, finnskan þegn
sem kann sænsku; og sérreglur
eru til viðbótar.
• Heimaréttur glatast ef finnskur
þegnréttur er ekki lengur fyrir
hendi eða maðurinn dvelst
fjarri frá eyjunum í
fimm ár.
• Til greina kemur að veita
heimarétt með sérstakri heim-
ild í lögum eða að ákvörðun
héraðsstjórnar vegna sérstakra
ástæðna.
Malta
Í aðildarsamningi Maltverja við
Evrópusambandið eru merkileg
ákvæði (XI viðbótarákvæði –
AA2003/ACT/Annex XI).
Eins og ljóslega birtist eru
takmarkanir Maltverja ekki síst
miðaðar við að halda þegnum og
fyrirtækjum annarra aðildarríkja
Evrópusambandsins og Evrópska
efnahagssvæðisins frá Möltu.
Nokkur atriði eru sem hér segir:
• Stjórnvöld á Möltu skulu
senda framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins upplýs-
ingar ef röskun verður á jafn-
vægi á vinnumarkaði á Möltu,
hvort sem er í byggðarlagi
eða einstaka atvinnugrein,
t.d. vegna samkeppni fyrir-
tækja eða þegna annarra
Evrópusambandsríkja sem
hnekkir samkeppnisstöðu
heima manna, o.fl.
• Framkvæmdastjórninni er þá
skylt að taka þegar í stað til
viðeigandi mótaðgerða.
• Ef Möltustjórn telur málið mjög
brýnt er henni heimilt að grípa
til einhliða aðgerða.
• Viðurkenndar eru sérreglur um
ríkisaðstoð við atvinnurekstur á
Möltu, m.a. um lægri skatta
fyrir smáfyrirtæki og meðalstór.
• Sérstakar takmarkanir gilda um
kaup útlendinga, líka frá öðrum
Evrópusambandsríkjum, á
fasteignum til tómstundadval-
ar eða til að nota sem auka-bú-
staði.
Íslenskt lögfræðiálit
Sérstakt lögfræðiálit var gert fyrir
íslenska innanríkisráðuneytið, nú
dómsmálaráðuneytið, í skýrslu dag-
settri 30. maí 2014. Álitið snertir
þessi mál beint, og er ekki úr vegi
að nefna nokkur aðalatriði úr álykt-
unum þar.
Álitið fjallar um kaup og
eignarhald fasteigna, lóða, bújarða,
bygginga og fyrirtækja hérlendis.
Rætt er um þætti eignarréttarins,
s.s. kaup, sölu, umráð, nýtingu,
og ákvæði sem varða tengda aðila.
Fjallað er um heimildir og möguleika
andspænis öðrum lögum, stjórnar-
skrá og fjölþjóðlegum samningum
og skuldbindingum Íslendinga.
Í lögfræðiálitinu er sérstak-
lega miðað við fyllsta gegnsæi og
jafnræði allra aðila, íslenskra sem
erlendra.
Í lögfræðiálitinu kemur fram að
takmarka má eignarréttinn:
• vegna skipulagsreglna og
öryggis mála,
• setja má ákvæði um stærðar-
mörk lands (nefnt hámark 10
hektarar),
• vegna landnýtingar, landbúnað-
arnytja, og til að tryggja rekstr-
argrunn bújarða,
• til að tryggja virka búsetu í
byggðarlagi eða héraði,
• vegna umhverfisverndar, þjóð-
garða, og verndar menningar-
staða eða -svæða,
• til að hindra uppsöfnun eigna
og bújarða í hendur sama aðila,
• setja má fjöldatakmörk bújarða
til að hindra uppsöfnun sama
aðila,
• vegna áhrifa á verðlag og til að
hindra fjárhagslegt ofurvald og
þjóðhagsleg áhrif,
• framfylgja ber tilkynninga-
skyldu til stjórnvalda, og leyfis-
skyldu þegar við á.
Vonandi stenst ný löggjöf ríkis-
stjórnarinnar samanburðinn við þau
dæmi sem hér eru rakin. Sérstaða
Íslandsbyggðar og öll aðstaða
þjóðarinnar krefst þess að ekki sé
skemmra farið hér í löggjöf en þessi
fordæmi Dana, Finna og Maltverja
sýna.
Ef vandaður lestur nýja lagafrum-
varpsins leiðir í ljós að ríkisstjórnin
er með einhverja feimni eða lausa-
tök, verður að ráða bót á því í með-
ferð málsins á Alþingi.
Jón Sigurðsson
Höfundur er fv. skólastjóri
Jón Sigurðsson vísar í greininni til reglna um heimildir til kaupa á fasteignum
og jörðum í Danmörku, Finnlandi og á Möltu.