Bændablaðið - 02.04.2020, Qupperneq 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. apríl 2020 39
Brynjúlfsmessa var sunnudaginn
23. febrúar sl. í Stóra-Núpskirkju
í Hrunaprestakalli. Þar var
minnst skáldsins, heimspekings-
ins og fræðimannsins Brynjúlfs
Jónssonar á Minna-Núpi sem
fæddur var 26. september 1838 og
dáinn 16. maí 1914 á Eyrarbakka
og hvílir í kirkjugarðinum þar.
Séra Óskar Hafsteinn Óskarsson
sóknarprestur minntist Brynjúlfs
Jónssonar í stólræðu sinni að vönd-
uðum og innihaldsríkum hætti.
Þorbjörg Jóhannsdóttir organisti
stjórnaði sameinuðum kirkjukór
Ólafsvalla- og Stóra-Núpskirkna.
Sóknarnefndin bauð gest-
um í veglegt messukaffi á eftir í
Félagsheimilinu Árnesi. Þar söng
kirkjukórinn nokkur lög sem hæfðu
vel tilefninu.
Bóndasonur, fæddur á Minna-
Núpi árið 1838
Séra Óskar Hafsteinn Óskarsson
minntist Brynjúlfs Jónssonar í stól-
ræðunni að Stóra-Núpi.
Brynjúlfur var bóndasonur, fædd-
ur á Minna-Núpi árið 1838 og þótti
snemma bókhneigður, gáfaður og
námsfús. Lítil efni í foreldrahúsum
urðu þess valdandi að hann var ekki
sendur til mennta. En á vertíðum
sínum syðra, bæði í Reykjavík og
suður með sjó, kynntist Brynjúlfur
ýmsum mennta- og fróðleiksmönn-
um sem áttu eftir að reynast honum
vel. Má þar nefna Steingrím
Thorsteinsson skáld, Jón Pétursson
yfirdómara og Jón Árnason, bóka-
vörð og þjóðsagnasafnara. Á þess-
um tíma lærði Brynjúlfur dönsku,
málfræði, landafræði og náttúru-
sögu.
Segja má að viss straumhvörf hafi
orðið í lífi Brynjúlfs árið 1866 er
hann féll af hestbaki og slasaðist á
höfði og hálsi. Afleiðingarnar urðu
þær að hann gat ekki lengur reynt
á sig í líkamlegri vinnu án þess að
verða ómögulegur af verkjum og
dofa.
Brynjúlfur var heilsuveill eftir
þetta en lífið tók aðra stefnu. Um
veikindin segir Brynjúlfur þetta í
æviminningum sínum:
,,Þá er veikindi mín voru að byrja
og lengi síðan áleit ég þau hina
mestu ógæfu en svo hefir guðleg
forsjón hagað til að þau urðu upphaf
minna betri daga.“
Hann tók að sér barnakennslu
víða um Suðurland á vetrum,
heimsótti vini sína á sumrum.
Brynjúlfur átti lögheimili alla tíð á
Minna-Núpi en bjó síðustu æviárin á
Eyrarbakka, þar sem hann kenndi og
sinnti ritstörfum. Hann var sæmdur
Dannebrogsorðu árið 1908 á sjö-
tugsafmæli sínu. Brynjúlfur lést á
Eyrarbakka árið 1914 og hvílir í
kirkjugarðinum þar.
Í kjölfar veikindanna þótti
Brynjúlfi einsýnt að hann myndi
ekki festa ráð sitt eins og hugur
hans hafði áður staðið til. Enda allt
eins víst að hann yrði skammlífur og
ætti sennilega nóg með sig sjálfan.
Í fyrrgreindum æviminningum segir
hann samt:
,,Þó höfðu veikindin eigi svift
mig ástarhæfileikum.“
Það átti eftir að sannast því
með Guðrúnu Gísladóttur, ætt-
aðri undan Eyjafjöllum, eignaðist
Brynjúlfur soninn Dag sem ólst
upp í Fljótshlíðinni og síðar á
Skeiðunum. Dagur átti síðar eftir að
minnast föður síns sem manns sem
lét skoðanir sínar óhikað í ljós en,
með hans orðum, ,,allt með hógværð
og viðeigandi orðum, en rökfast
og ákveðið. Fyrir þetta varð hann
meiri áhrifamaður en ætla mætti af
embættislausum manni. Góðleikur
hans, samfara þekkingarauð og
ljósri hugsun hreif alla sem kynntust
honum.“ Hér er vel að orði komist.
Á síðasta tug 19. aldar tók
Brynjúlfur að ferðast um héruð
á sumrin á vegum Hins íslenska
fornleifafélags til fornleifarann-
sókna og grafast fyrir um forngripi.
Þeirra erinda fór hann vítt og breitt
um Suðurland en einnig norður
í land. Hann fór um afréttarlönd
Árnesinga og ferðaðist einnig vest-
ur á Snæfellsnes og í Dalina. Um
þennan tíma segir hann sjálfur í
æviminningum sínum: ,,Þetta frjálsa
og þægilega líf bæði sumar og vetur
hefur eigi einasta styrkt heilsu mína
og gert mér æfina skemtilega; það
hefir ennfremur gefið mér tækifæri
til að fylgja betur eðli míns innra
lífs en áður var kostur að stunda
bókfræði og menntun yfir höfuð.“
Heilladrjúgt og merkilegt ævistarf
Ævistarf Brynjúlfs á Minna-Núpi var
heilladrjúgt og merkilegt til þess að
hugsa að þeir hafi verið á bæjunum
hlið við hlið þessir andans alþýðu-
vinir og fræðimenn, sr. Valdimar og
Brynjúlfur. Og vel til fundið var það
hjá Ásgrími Jónssyni er hann dró upp
mynd af þeim félögum í hópi áheyr-
enda frelsarans í altarismyndinni
fallegu í Stóra-Núpskirkju. Árið
1907 gerði Brynjúlfur afskaplega
greinargóða samantekt á aðstæðum
fyrr og nú í Gnúpverjahreppi sem
birtist í Eimreiðinni. Þar ber hann
saman ástand mála eins og það blasti
við honum í uppvextinum við það
þegar hann svo sjálfur var kominn
á fullorðinsár.
Drykkjuskapur æði almennur og
sumir nokkuð uppivöðslusamir
Fjallað er um efnahag, verslun,
vegabætur, jarðabætur, bóklega
menntun, heimilislíf og almennan
hugsunarhátt. Í síðastnefnda kafl-
anum segir m.a.:
,,Framkoma manna hér var að
ýmsu leyti stórkarlalegri fyrrum
en nú er. ... Hér var þá drykkju-
skapur æði almennur; átti raunar
undantekningar, og voru sumir
nokkuð uppivöðslusamir við vín,
og vildu gjarna, að aðrir hefðu beyg
af sér. Bót var það í máli að það
mátti heita föst regla, að drekka
aldrei heima fyrir. Og varla voru
dæmi til þess, þó í ferðum væri
eða útreiðum að menn drykki svo
frá sér vit, að þeir gættu eigi allra
hagsmuna sinna. Þeir þóttust jafn-
vel hafa meiri hag af viðskiftum
við aðra drukknir en ódrukknir.“
Svona var þetta þá en nú var tíðin
sumsé orðin önnur þarna í byrjun
tuttugustu aldar.
Um kirkjuræknina segir
Brynjúlfur að hún hafi verið góð,
messað hafi verið hvern helgan
dag og sama fólkið sótt kirkju
hvern helgidaginn eftir annan og
varla komi það fyrir að nokkur
komi drukkinn til kirkju. Nefnt er
að kirkjulífið hafi um tíma legið
í dvala en hafi síðan lyfst aftur í
hæðir með komu sr. Valdimars
Briem á Stóra-Núp. Síðan segir
Brynjúlfur: ,,Menn hafa nú fremur
hægt um sig og eru ólíku jafnari í
framkomu sinni en fyrrum, þó ávalt
verði munur á mönnum að einu og
öðru. Gestrisni og góðvilji við þá
er bágt áttu hefir eigi breyzt. En
innbyrðis bróðernishugur hefur
glæðst að góðum mun.“ Í þessum
orðum alþýðu- og fræðimannsins
á Minna-Núpi felst prýðilegt nesti
fyrir okkur við föstuinngang, sumsé
að stunda gestrisni og iðka góðvilja
til þeirra sem bágt eiga og glæða
bróðernishug.
Heimildir:
Brynjúlfur Jónsson:
,,Ævisaga mín“. (Skírnir, 1914)
Brynjúlfur Jónsson:
,,Fyr og nú í Gnúpverjahreppi“.
(Eimreiðin, 1907)
Valdimar Briem:,,Æfisaga
Brynjúlfs Jónssonar frá Minna-
Núpi“. (Árbók Hins íslenzka
fornleifafélags, 1915)
Startarar og Alternatorar
- Vinnuvélar
- Ly�arar
- Drá�arvélar
- Bátar
MENNNING&SAGA
Brynjúlfsmessa að Stóra-Núpi
Séra Óskar Hafsteinn Óskarsson.
Séra Óskar Hafsteinn Óskarsson að blessa kirkjugesti í lok Brynjúlfsmessu.
Stóra-Núpskirkja sem Vestfirðingurinn Rögnvaldur Ólafsson (1874–1917),
frá Ytrihúsum í Dýrafirði, teiknaði og vígð var árið 1909.
Embættisfólk Stóra-Núpskirkju eftir Brynjúlfsmessu, talið frá vinstri:
Ámundi Kristjánsson, Minna-Núpi, gjaldkeri sóknarnefndar, Árdís Jónsdóttir,
Eystra-Geldingaholti, ritari sóknarnefndar, Kristjana Heyden Gestsdóttir,
Hraunteigi, formaður sóknarnefndar, Þorbjörg Jóhannsdóttir, Stóra-Núpi,
kórstjóri og orgelleikari, séra Óskar Hafsteinn Óskarsson, sóknarprestur í
Hrunaprestakalli, Oddur Guðni Bjarnason, Stöðulfelli, hringjari og Hannes
Sigurðsson, Hrauni í Ölfusi og félagi í Kirkjuráði Hrútavinafélagsins Örvars.
Kirkjuráð Hrútavinafélagsins og kaffikonur Stóra-Núpskirkju, talið frá vinstri:
Björn Ingi Bjarnason, Ránargrund á Eyrarbakka, Kirkjuráði Hrútavinafélags-
ins, Guðbjörg Kolbeinsdóttir, Hamarsheiði, kaffikona, Ingigerður Jóhanns-
dóttir, Stóra-Núpi, kaffikona, Kristjana Heyden G. Hraunteigi, formaður
sóknarnefndar Stóra-Núpskirkju og Hannes Sigurðsson, Hrauni í Ölfusi,
Kirkjuráði Hrútavinafélagsins.
Í messukaffinu í Árnesi. F.v.: Sigvaldi Kaldalóns Jónsson og Helga Kristins-
dóttir, Lómsstöðum og Hannes Sigurðsson, Hrauni í Ölfusi.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
KÚPLINGAR í flestar
gerðir dráttarvéla