Bændablaðið - 02.04.2020, Side 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. apríl 2020 41
Landeigendur standa í dag
frammi fyrir ýmiss konar áskor-
unum varðandi umhverfismál og
náttúruvernd. Þessar áskoran-
ir felast í því hvernig nýta skuli
land og náttúruleg gæði þess á
skynsaman og sjálfbæran hátt án
þess að skerða lífríki og náttúru-
leg vistkerfi. Alls staðar í heimin-
um er verið að þróa aðferðafræði
sem fela í sér mótvægisaðgerðir
gegn hlýnun jarðar og hnignun
líffræðilegs fjölbreytileika þar
sem verndun og endurheimt nátt-
úrulegra vistkerfa gegnir þar lyk-
ilhlutverki, t.d. með endurheimt
gróðurs og votlendis.
Bændur eru þarna í lykilhlut-
verki þar sem þeir eru víðast þeir
einstaklingar sem eru stærstu
landeigendurnir, en víða um heim
hefur náðst umtalsverður árangur
í náttúruvernd og endurheimt sem
byggir á samvinnu bænda og opin-
berra aðila.
Verkefnið LOGN 2020 (land-
búnaður og náttúruvernd) er til-
raunaverkefni og beint framhald af
verkefninu „Landbúnaður og nátt-
úruvernd“ sem unnið var á sl. ári.
Aðalmarkmið verkefnisins er að fá
áhugasama bændur til að vinna að
áætlun fyrir sína jörð og búrekstur
þar sem skilgreindar verða aðgerðir
sem fela í sér samþættingu landbún-
aðar og náttúruverndar. Jafnframt á
að kanna samlegðaráhrif verkefn-
anna og hvaða hagrænu gildi þau
hafa fyrir bændur. Verkefnin sem
bændur vinna geta verið af ýmsum
toga, en hver þátttakandi setur upp
sína eigin verkefnisáætlun sem
byggir á sérstöðu og einkennum
svæðisins og þeim búrekstri sem
þar er stundaður. Verkefnin geta
hvort tveggja verið fyrir afmörk-
uð svæði á bújörðinni eða áætlun
fyrir búreksturinn í heild sinni. Sem
dæmi um verkefni má nefna:
• Verkefni sem snúa að samspili
manns og náttúru, t.d. áætlun
um búrekstur þar sem tekið
verður tillit til fuglalífs eða
ákveðinna vistgerða
• Ýmis verkefni tengd endur-
heimt og verndun vistkerfa,
t.d. endurheimt votlendis, upp-
græðsla rofa eða endurheimt
birkiskógar
• Verkefni sem tengjast sjálf-
bærri nýtingu náttúruauðlinda,
t.d. nýting ræktunarlands, beit-
arstjórnun eða nýting annarra
náttúrugæða
• Verkefni tengt rannsóknum og
fræðslu, t.d. vöktun, jafningja-
fræðsla eða kynning á landbún-
aði til almennings
Í framhaldi verður verkefnið haft
til hliðsjónar og notað til að móta
aðferðir til náttúruverndar á land-
búnaðarsvæðum og þ.a.l. kjörinn
vettvangur fyrir bændur og áhuga-
menn um náttúruvernd til að hafa
áhrif á stefnu í landnotkunar- og
náttúruverndarmálum.
Svæðið sem fókusinn er settur á að
þessu sinni er Mýrar í Borgarbyggð
og sunnanvert Snæfellsnes eða í næsta
nágrenni við svæði sem afmarkast af
tillögu að náttúruminjaskrá, merkt
Mýrar – Löngufjörur. Verkefnið er
unnið í samstarfi við stofnanir fyrir
verndun náttúru og nýtingu auðlinda.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
ehf. hefur umsjón með verkefninu,
en það er unnið fyrir umhverfis- og
auðlindaráðuneytið.
Hugmyndafræði LOGN
Ef rýnt er í erlend verkefni kemur
í ljós að þar sem best hefur til tek-
ist eru verkefni þar sem bændur
taka virkan þátt í öllu ferli strax frá
byrjun. Þarna er hugmyndin að verk-
efni séu byggð að miklu leyti upp á
þekkingu bænda, bæði á þeirra landi
og verkþekkingu, en sérfræðingar
opinberra fagstofnana veita ráð-
leggingar og aðstoð til að ná settum
markmiðum.
Sú hugmyndafræði sem LOGN
verkefni byggir á er sótt í erlenda
aðferðafræði sem er kallaði HNV-
landbúnaður (High Nature Value).
HNV-landbúnaður er hugtak sem
skilgreint er í Evrópu sem sérstakt
landbúnaðar-umhverfisverndar-
kerfi. Skilyrði fyrir HNV er að land-
búnaður sé stundaður samhliða nátt-
úruvernd og hvort tveggja styðji við
hvort annað. HNV er þ.a.l. rammi
um náttúruvæna búskaparhætti,
landbúnaðarland og náttúruvernd.
LOGN myndar þ.a.l. eins konar brú
á milli bænda og fagstofnana á sviði
umhverfismála og náttúrufræða.
LOGN 2020, helstu verkþættir
Vinnu- og hugarflugsfundur:
Þessi fundur fór fram 12. mars
sl. Upphaflega hafði verið
boðað til hans sem staðarfundar
á Hvanneyri en þegar sá í hvað
stefndi vegna útbreiðslu og til að
riðla ekki áætlunum verkefnisins
var brugðið á það ráð að breyta
fyrirkomulaginu og setja upp
sem netfund í staðinn. Á fund-
inn mættu um 30 manns sem var
framar vonum þar sem boðað
var til breytinganna með mjög
stuttum fyrirvara og fundarmenn
sitt úr hvorri áttinni, en boðaðir
voru bændur af svæðinu og sér-
fræðingar frá helstu fagstofnunum
og félagasamtökum sem tengjast
málefninu. Fundinum var skipt í
þrjá hluta, þeim fyrsta kynningu
á efninu, síðan var skipt upp í
hópavinnu þar sem hver hópur
hélt sinn fund og í lokin komu
allir saman aftur og farið var yfir
niðurstöður hópavinnunnar.
Kynningar fyrir íbúa svæðisins:
Þessar kynningar verða settar upp
annars vegar með kynningarbæk-
lingi sem sendur verður á hvert
heimili á svæðinu í byrjun apríl og
hins vegar með röð netfyrirlestra
sem fara fram um miðjan apríl og
fram í byrjun maí. Þarna verður
fjallað um hugmyndafræðina sem
verkefnið er byggt á, dæmi verða
tekin úr erlendum verkefnum og
stefnt er að því að fá aðila sem
koma að þeim verk efnum til að
lýsa reynslu sinni. Þarna verður
einnig farið yfir náttúrulega sér-
stöðu svæðisins og verndargildi
þess, auk þess að miðla fræðslu
og praktískum upplýsingum
hvernig búrekstur og náttúru getur
stutt hvort annað.
Fyrirlestrunum verður streymt
á netinu þannig að hægt verður að
taka þátt í rauntíma og er áætl-
að að þeir fari að jafnaði fram á
virkum dögum og hefjist klukkan
eitt e.h. Þeir sem vilja taka þátt í
rauntíma sækja um að taka þátt
í fundunum á vefsíðu RML og
fá þá í framhaldi sent fundarboð
í vefpósti. Dagskrá verður síðar
auglýst á vefsíðu RML, www.
rml.is
Val á þátttökubúum:
Verið er að leita eftir áhuga-
sömum aðilum til að taka þátt í
verkefninu. Einnig er verið senda
út auglýsingar um þátttöku en
áhugasamir eru hvattir til að setja
sig í samband við verkefnastjóra
LOGN hjá RML
Þátttakendur vinna verkefnin:
Gert er ráð fyrir því að þátttakend-
ur vinni verkefnin eftir að áætlun
sem þeir sjálfir setja upp í samráði
við verkefnastjóra og sérfræðinga
fagstofnana sem verkefnið mun
tilheyra. Bændur vinna verkefnin
þ.a.l. á eigin forsendum og nýta
þekkingu á aðstæðum. Í þessum
verkþætti verður mikilvægt að
verkefnin verði sett upp á þann
veg að þau falla sem best að dag-
legri rútínu þess sem vinnur ver-
kefnið. Gert er ráð fyrir að þessi
verkþáttur verði unninn núna í
sumar.
Árangur metin:
Í lok sumars verður farið yfir
hvaða árangri verkefnið hefur
skilað, hvort markmiðum hafi
verið náð, hvort settir verkferlar
hafi virkað og hvort verkefnið
hafi skilað einhverjum hagrænum
árangri.
Kynningar:
Verkefnin verða kynnt almenn-
ingi, þátttökubúin fá sérstaka
kynningu hvert fyrir sig og kynnt
verður ef sérstakar afurðir eða
vöruþróanir hafi átt sér stað með
tilstilli verkefnisins.
Áhugasamir hvattir til að hafa
samband
Þeir sem hafa áhuga á að fá frekari
upplýsingar um LOGN verkefnið og/
eða hafa áhuga að taka þátt í verkefn-
inu eru hvattir til að hafa samband
við RML. Verkefnisstjóri LOGN
er Sigurður Torfi Sigurðsson, net-
fang sts@rml.is, sími 516-5078 eða
776-8778.
Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Óseyrarbraut 12 | 220 Hafnarfirði
Hafðu
samband
568 0100
www.stolpigamar.is
Gámurinn
er þarfaþing
Þurrgámar
Hitastýrðir gámar
Geymslugámar
Einangraðir gámar
Fleti og tankgámar
Gámar með hliðaropnun
Til leigu eða sölu: Gámahús og salernishús
Færanleg starfsmannaðstaða
Bos gámar og skemmur
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
ZETOR
VARAHLUTIR
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Sigurður Torfi Sigurðsson
verkefnisstjóri LOGN
sts@rml.is
Tækifæri til þátttöku í mótun nýrra aðferða
við náttúruvernd á landbúnaðarsvæðum
– LOGN 2020, næstu skref verkefnisins
Af Sandsheiði á Snæfellsnesi. Mynd / HKr.