Bændablaðið - 02.04.2020, Síða 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. apríl 202042
Hið árlega og þekkta danska
fagþing nautgriparæktarinnar
„Kvægkongres“ var haldið á
dögunum og venju samkvæmt
voru þar flutt mörg áhugaverð
og framsækin erindi og þó svo
að mörg þeirra lúti sér í lagi að
danskri nautgriparækt eru alltaf
margir fyrirlestrar sem eiga ekki
síður erindi við alla þá sem stunda
nautgriparækt í Evrópu.
Að þessu sinni voru erindin alls
68 talsins í tíu ólíkum málstofum.
Hér verður gerð grein fyrir nokkrum
af þeim fróðlegu erindum sem flutt
voru í málstofunum sem fjölluðu um
bústjórn og mjaltir og mjólkurgæði.
1. Bústjórn
Í þessari málstofu voru haldin átta
ólík erindi og meðal margra góðra
flutti Vibeke Fladkjær Nielsen,
en hún er ráðgjafi hjá SEGES í
bústjórn, afbragðs erindi um það
hvernig bændur geta bætt sig sem
stjórnendur á búum og átti það
fyrst og fremst við um bændur
með starfsfólk í vinnu. Fram kom
að margir bændur eiga oft erfitt með
að skipta úr því að sinna flestum
verkum sjálfir og yfir í það að fela
öðrum verkin þrátt fyrir að hafa
ráðið starfsmann eða starfsmenn að
búum sínum. Oft kvarti starfsfólk
undan því að því sé í raun ofstjórnað
og kallar það á margs konar vanda-
mál. Þá eigi sumir bændur erfitt með
að hlusta á tillögur frá sínu starfs-
fólki varðandi atriði sem etv. mættu
betur fara og þá er oft ansi djúpt á
hrósi fyrir vel unnin störf.
Vibeke sagði að lausnin á því
sem hér er kallað ofstjórnun fælist
í því að þvinga sig til að horfa yfir
búskapinn úr fjarlægð líkt og að
horfa yfir hann úr þyrlu. Skoða
þannig hvort markmiðin með
búskapnum væru rétt, hvort upp-
bygging vinnuskipulagsins væri
til þess fallið að ná því besta út úr
mannskapnum og hvort samvinnan
og samstarfið á búinu væri eins og
best verði á kosið.
Mælanleg markmið
Þá gat hún þess að hvert bú ætti að
setja sér skýr og mælanleg markmið
svo allir, jafnt eigendur sem starfs-
menn, geti fylgst með hvernig gangi
og hvort búskapurinn sé á réttri leið.
Þessi mælanlegu markmið geta
verið af ýmsum toga og hér er ekki
átt við hin algengu viðmið eins og
meðalnyt, hlutfall af seldri mjólk í
afurðastöð eða flokkun falla heldur
mun ítarlegri markmið eins og t.d.
fjölda lifandi fæddra kálfa, hlutfall
júgurbólgu-tilfella, fjölda sæðinga
á bak við hvert staðfest fang, fóð-
urgæði og fleira slíkt mætti tína til.
Allt eru þetta mælanleg markmið
sem hægt er að taka saman tölfræði
um reglulega og amk. mánaðarlega.
Vinnuskipulag
Hún ræddi einnig vinnuskipulagið á
búunum en bú með nautgripi henta
afar vel til uppsetningar á föstu
vinnuskipulagi enda lúta flest verk
að reglubundnum þáttum. Með því
að setja upp skýrt vinnuskipulag,
sem er reyndar töluverð vinna í
fyrstu, verða verkin bæði léttari og
skilvirkari. Stærri búin geta svo skipt
upp ákveðnum föstum verkþáttum
eftir vikudögum eins og t.d. ef
dýralæknir kemur í forvarnarvitjun
reglulega, sem er algeng þjónusta í
Danmörku eða t.d. ef fangskoðanir
eru gerðar reglulega.
Skýrar reglur
Vibeke greindi einnig frá því að
bú sem koma sér upp skýrum sam-
skipta- og umgengnisreglum virðast
ná betri árangri. Þetta á t.d. við um
hvað má gera í vinnutímanum og
má hér nefna sem dæmi um hvort
fara megi á netið í vinnunni, hvort
megi reykja á vinnustaðnum o.s.frv.
en einnig varðandi það hvernig fólk
talar hvað við annað. Þó það virki í
fyrstu frekar þunglamalegt að búa
til starfsreglur sem taka á alls konar
smáatriðum þá sagði hún þetta auð-
velda mörgum bændum að stjórna á
búum sínum sem og starfsfólkinu að
sinna vinnunni sinni.
Vinnuvernd
Annað afar gott erindi í þessari mál-
stofu sneri að öryggi á búum en í
Danmörku verða árlega mörg alvar-
leg og minna alvarleg slys. Þannig
urðu t.d. 40 banaslys í danska land-
búnaðinum á árabilinu 2012-2018
og 1.826 alvarleg vinnuslys, en
skilgreining á alvarlegu vinnuslysi
er að viðkomandi er þá frá vinnu
í meira en þrjár vikur. Þetta erindi
var flutt af Christina Edstrand, sem
er vinnuverndarráðgjafi, og Kurt S.
Mortensen, sem er tækni- og orku-
ráðunautur.
4% starfa í landbúnaði
Landbúnaður er stór atvinnugrein
í Danmörku og kom fram í erindi
Christinu að 4% starfsbærra lands-
manna ynnu við landbúnað sem er
um fjórðungur þess hlutfalls sem
starfar í byggingariðnaði. Þrátt
fyrir það mætti rekja þriðjung allra
banaslysa til starfsemi í landbúnaði
og er það langhæsta hlutfall allra at-
vinnugreina í Danmörku. Flest bana-
slysin verða meðal eldra fólks og
helmingur banaslysanna urðu meðal
fólks sem var eldra en 60 ára sagði
Christina.
Öryggisáætlun
Hún sagði að til að fyrirbyggja
bæði banaslysin og hin alvarlegu
slys þyrfti vitundarvakningu meðal
eldra fólks á búum landsins og með
því að gera öryggisáætlun fyrir búin
mætti koma auga á og þar með í veg
fyrir mörg slys með því að fara yfir
helstu þætti sem vitað er að tengjast
slysum í landbúnaði. Þetta væri í
raun afar einfalt þrískipt ferli:
A. Fyrst þarf að spyrja sig að því
hvað væri það versta sem gæti
hugsanlega gerst
B. Næst þarf að fara yfir það hvað
þurfi til, svo hið mögulega
slys verði ekki
C. Síðan setja upp verkferla og
vinnuskipulag sem tryggir að
hættan sé lágmörkuð
Gasmælar
Notkun á mælum, sem vara við
ef brennisteinsvetni sleppur út
Á FAGLEGUM NÓTUM
Snorri Sigurðsson
snorri.sigurdsson@outlook.com
Sérstök blóma skreytinga
braut er við Garðyrkjuskóla
LbhÍ á Reykjum í Ölfusi, rétt
við Hveragerði. Uppbygging
náms ins skiptist í bóklegt
nám tvo vetur í skólanum
og verknám sem fer fram
á verknámstað, t.d. í
blómaverslunum. Fjarnám
er á hálfum hraða og tekur
fjögur ár auk verknáms.
Á námstímanum fá nem-
endur kennslu og þjálfun
í öllum helstu aðferðum
við með höndlun og notkun
blóma við blóma skreytingar.
Ítarlega er farið yfir form
og litafræði og nemendur
vinna með öll algengustu
stílbrigði blómaskreytinga.
Nemendur fá innsýn í rekstur
blómaverslana og læra að
setja fram vörur í verslunum.
Auk þess er farið yfir meðferð
afskorinna blóma og greina sem
og pottaplöntur og meðferð þeirra.
Blanda bóknáms
og verklegra æfinga
Námið er skemmtileg blanda af
bóklegum áföngum og verklegum
æfingum þar sem nemendur
vinna fjölbreytt verkefni undir
handleiðslu sérmenntaðra blóma-
skreyta og sköpunargleðin fær svo
sannarlega að njóta sín. Skólinn
er lítill og nemenda hópurinn
samheldinn og þéttur, í náminu
verða gjarnan til vinabönd sem
halda ævina á enda.
Að námi loknu fá nemendur
starfsheitið blómaskreytir
eða garðyrkjufræðingur af
blómaskreytingabraut. Eftir
brautskráningu bjóðast margir
möguleikar eins og að starfa
sjálfstætt sem blómaskreytir og
taka að sér fjölbreytt verkefni.
Blómaskreytir getur séð um
rekstur í blómabúð, ann ast heild-
sölu eða ráðgjöf til viðskipta vina
ásamt útstillingum í verslunum
eða í tengslum við stærri viðburði.
Starfið er ákaflega fjölbreytt og
blómaskreytar eru þátttakendur
í stærstu viðburðum í lífi
viðskiptavina sinna, svo sem
stórafmælum og brúðkaupum.
Listrænn og skapandi
starfsvettvangur
Námið býður upp á möguleika
á framhaldsnámi erlendis auk
þátttöku í alþjóðlegum keppnum
á sviði blómaskreytinga. Þetta
er tilvalinn vettvangur fyrir
list rænt og skapandi fólk sem
hefur gaman af því að sinna
handverki með lifandi efnivið.
Starf blómaskreytis er áhugavert
og fjölbreytt og getur veitt ýmis
tækifæri í lífinu.
Við erum byrjuð að taka við
skráningum fyrir næstkomandi
haust, þannig að tækifærið er
núna. Nánari upplýsingar um
námið má finna á heimasíðu
skólans, www.lbhi.is.
Nemendur og kennarar á
brautinni mæla með því að fólk
fylgi þeim á facebook: Blóma-
skreytingabraut Garðyrkju skólinn
Lbhí og á instagram: blóma-
skreytingabraut_lbhi.
Bryndís Eir Þorsteinsdóttir,
námsbrautarstjóri blóma
skreytinga brautar á Reykjum.
GARÐYRKJUSKÓLI LBHÍ REYKJUM
Fjölbreytt og skapandi nám
í blómaskreytingum
Glæsilegur brúðarvöndur með rósum og öðru fallegu efni.
Myndir / Rósa Björk Jónsdóttir
Blómaskreytingar henta vel þeim sem
eru skapandi og finnst gaman að vinna
með fallegt lifandi efni.
Orkidea er oft kölluð drottning blómanna.
Fagþing nautgriparæktarinnar
í Danmörku 2020 – Fyrsti hluti
Allir sem starfa í landbúnaði þar sem hætta er á myndun hættulegra gas-
tegunda ættu að vera með þar til gerða gasmæla.