Bændablaðið - 02.04.2020, Blaðsíða 44
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. apríl 202044
Í þessum pistli verður farið yfir
helstu niðurstöður úr afurða
skýrsluhaldi sauðfjár ræktar innar
fyrir framleiðsluárið 2019.
Í heildina er útkoman góð og
niður stöður keimlíkar því sem árið
2018 skilaði. Fleiri bú ná mjög
góðum árangri og fjölgar búum á
topplistunum.
Afurðir eftir hverja kind
Uppgjör fyrir framleiðsluárið 2019
byggir á 329.619 ám, tveggja vetra
og eldri og eru skýrsluhaldarar um
1.680 talsins. Þetta er fækkun um
19.685 fullorðnar ær miðað við upp-
gjörið fyrir árið 2018. Fjöldinn nú
er því svipaður og hann var fyrir 10
árum síðan en árið 2009 voru skýr-
slufærðar ær 323.169. Flestar ær
eru á skýrslum í Skagafirði (30.012),
Austur-Húnavatnssýslu (29.702) og
Norður-Múlasýslu (27.062).
Meðalafurðir eftir hverja á voru
27,8 kg sem er nánast sama niður-
staða og fyrir árið 2018 en þá skilaði
hver ær 27,7 kg. Undanfarin 10 ár
hafa afurðir verið fremur góðar og
heildarniðurstaðan aðeins einu sinni
farið undir 27 kg. Ef horft er á 10 ára
tímabil þar á undan (2000 til 2009)
þá voru kg eftir hverja á aðeins einu
sinni yfir 27 kg. Mestu afurðir sem
náðst hafa voru árið 2016 þegar kg
eftir hverja fullorðna á voru 28,2 kg.
Þá var árferði einstaklega hagfellt
og fallþungi dilka meiri en nokkru
sinni.
Niðurstöður eftir svæðum
Afurðir eru gerðar upp í 130 fjár-
ræktarfélögum. Stærsta félagið er
fjárræktarfélag Sveinsstaðahrepps í
Austur-Húnavatnssýslu en í því öfl-
uga félagi eru 42 skýrsluhaldarar og
fullorðnar ær 12.206. Næststærsta
félagið er sf. Tindur í Strandasýslu
með 7.738 ær og 30 félaga.
Ef niðurstöður eru skoðaðar
eftir sýslum þá eru það Vestur-
Húnvetningar sem ná mestum afurð-
um eftir sínar ær. Þar skilaði meðal-
búið 30,6 kg eftir hverja á. Á þessu
svæði eru mörg bú sem ná miklum
vænleika samhliða afar góðri frjó-
semi. Næst kemur Strandasýsla með
30,02 kg eftir hverja á. Keppnin
hefur gjarnan staðið milli þessara
tveggja héraða um mestar afurð-
ir og Strandamenn oftar en ekki
staðið efstir yfir landið en gefa nú
toppsætið eftir til nágranna sinna.
Almennt jukust afurðir milli ára á
Suður- og Vesturlandi en döluðu á
Norður- og Austurlandi og eru það
væntanlega sveiflur í árferði sem
þar ráða mestu um. Á mynd 1 er
yfirlit yfir afurðir eftir sýslum og
samanburður milli ára.
Gýgjarhólskot áfram á toppnum
Þegar skoðaðar eru niðurstöður fyrir
þau bú sem hafa 100 ær eða fleiri á
skýrslum, þá eru það 1.027 bú sem
falla í þann hóp. Efstu búin á lista
yfir kg kjöts eftir hverja á sýna hvað
hægt er að ná gríðarlegum afurðum
eftir ærnar þar sem frjósemi er góð,
mikil vaxtargeta fyrir hendi hjá
lömbunum og aðstæður með þeim
hætti að sú vaxtargeta er nýtt. Þetta
árið eru það 4 bú sem ná meira en
40 kg eftir hverja á. Efst stendur
Gýgjarhólskot í Biskupstungum með
44,2 kg. Þetta bú var einnig efst yfir
landið á síðasta ári með nánast sömu
útkomu. Efri-Fitjar í Fitjárdal kemur
síðan næst með 41,9 kg eftir ána.
Efri-Fitjar voru einnig í öðru sæti á
listanum í fyrra en afurðirnar hafa þó
aukist milli ára. Þá koma Kiðafell í
Kjós og Bergsstaðir í Miðfirði, bæði
með yfir 40 kg eftir ánna. Í töflu
1 gefur að líta lista
yfir þau bú sem ná
36 kg eða meira eftir
hverja á.
Frjósemi og
lömb til nytja
Afurðir eftir hverja á
byggja á fjölda lamba
til nytja og fallþunga
lambanna. Þetta er
því ekki algildur
mælikvarði á útkomu
saufjárbúa þar sem
mismunandi fram-
leiðslukerfi henta
fyrir mis munandi
bú. Sumir sjá hag
sinn í því að koma
með lömbin snemma
til slátr unar en aðrir
leggja áherslu á að
bata lömbin lengur
og nýta vaxtargetu
þeirra að fullu. Í
þessu sambandi er
mikil vægt að allir
leggi áherslu á að
fram leiða góða vöru
en lömbin mega
hvorki vera of hold-
lítil né of feit.
Eitt mikilvæg-
asta atriði m.t.t.
afkomu sauðfjár-
búa, er að ná sem
flestum lömbum til
nytja. Frumskilyrði er að ærnar séu
frjósamar en síðan eru ýmsir þætt-
ir sem hafa áhrif á lifun lambanna.
Meðalfrjósemi árið 2019 var 1,83
lömb eftir ánna. Frjósemin hefur
heldur potast upp á síðustu árum
þó landsmeðaltalið hreyfist hægt.
Meðaltalið frá árinu 2000 hefur
sveiflast frá 1,80 til 1,84 lömb. Þess
ber þó að halda til haga að mörg bú
hafa náð þarna frábærum árangri og
eru með frjósemi í kringum 2 lömb
eftir ánna en það er jú ræktunartak-
markið. Hinsvegar eru búin miklu
fleiri sem eiga mikil sóknarfæri í því
að bæta frjósemina og hér þyrfti að
nást aukinn árangur á næstu árum.
Nokkur munur er á milli landsvæða
í frjósemi, líkt og sést á 2. mynd.
Frjósemi er að jafnaði best í Suður-
Þingeyjarsýslu. Þar fæddist 1,91
lamb eftir fullorðna á vorið 2019.
Þá er frjósemin mjög góð í Vestur-
Húnavatnssýlsu, Eyjafirði og Norður-
Þingeyjarsýslu. Í Ísafjarðarsýslum,
Austur-Skaftafellssýslu, Mýrar sýslu
og Rangár vallasýslu er
hinsvegar víða tækifæri
í að bæta frjósemina og
fjölga lömbum til nytja.
Til nytja eru að jafn-
aði 1,65 lamb eftir ána
og stendur sú tala í stað
á milli ára. Á 2. mynd
má sjá að nytja hlutfallið
er mjög breyti legt milli
svæða og ekki í fullu
samhengi við frjó-
semina sökum þess að
afföll eru ekki hlutfalls-
lega þau sömu í öllum
héruðum. Í töflu 2 er
listi yfir bú sem ná þeim
frábæra árangri að eiga
1,90 eða fleiri lömb til
nytja eftir ærnar sínar.
Þarna trónir Efri-Fitja
búið á toppnum með
2,08 lömb til nytja.
Veturgömlu ærnar
Veturgamlar ær eru
64.242 á skýrslum árið
2019. Meðal frjósemi
þeirra er 0,92 lömb.
Geldar ær voru 8.783
og síðan eru 8.806 sem
ekki er haldið. Það eru
því 13,7 % gemling-
anna sem hleypt var til
sem ekki hafa haldið.
Frjósemin er svipuð á
milli ára (var 0,93 árið
2018) en ánægulegt að
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Eyþór Einarsson
ábyrgðarmaður í
sauðfjárrækt
ee@rml.is
Niðurstöður sauðfjárskýrsluhaldsins árið 2019
1,50
1,55
1,60
1,65
1,70
1,75
1,80
1,85
1,90
1,95
Fædd lömb Lömb til nytja
2. mynd. Frjósemi og lömb til nytja eftir sýslum
24,0
25,0
26,0
27,0
28,0
29,0
30,0
31,0
kg
p
r.
á
árið 2018 árið 2019
1. Mynd. Afurðir eftir hverja fullorðna á
eftir sýslum árin 2018 og 2019
15,0
15,5
16,0
16,5
17,0
17,5
18,0
5,00
5,50
6,00
6,50
7,00
7,50
8,00
8,50
9,00
9,50
10,00
Kg
Ei
nk
un
n
Gerð Fita Fallþungi
3. Mynd. Meðaltöl fyrir fallþunga, gerðar-
og fitueinkunn sláturlamba eftir sýslum
Tafla 1. Bú með 100 ær eða fleiri á skýrslum, raðað eftir afurðum eftir hverja á
Nafn Býli Fjöldi áa Kíló eftir kind
Frjósemi
fædd lömb
Eiríkur Jónsson Gýgjarhólskot 1 294 44,2 2,11
Gunnar og Gréta Efri-Fitjar 717 41,9 2,19
Bergþóra og Sigurbjörn Kiðafell 210 41,5 2,21
Elín Anna og Ari Guðmundur Bergsstaðir 402 40,3 2,13
Ólafur og Dagbjört Syðri-Urriðaá 473 38,7 2,09
Elín Heiða Valsdóttir Úthlíð 339 38,1 2,09
Inga Ragnheiður Magnúsdóttir Svínafell 3 317 38,1 1,99
Kjartan Sveinsson Bræðratunga 254 38,0 1,81
Ólafur Magnússon Sveinsstaðir 617 37,8 2,09
Smári Valsson Torfastaðir 120 37,8 1,96
Félagsbúið Lundur Lundur 486 37,7 1,99
Jón og Hrefna Hóll 185 37,6 1,98
Guðrún og Sigurbjörn Leirulækur 168 37,3 2,13
Atli Þór og Guðrún Kot 122 37,3 1,95
Þormóður Heimisson Syðri-Sauðadalsá 570 37,2 2,03
Böðvar Sigvaldi og Ólöf Mýrar 2 567 37,1 2,03
Björn og Badda Melar 1 381 36,7 2,00
Ólafur Stefánsson Hrepphólar 282 36,6 1,94
Hákon og Þorbjörg Svertingsstaðir 2 115 36,6 1,88
Þorsteinn og Katrín Jökulsá 259 36,5 1,95
Fjölnir Torfason Breiðabólsst 4 - Hali 143 36,5 2,07
Ása Berglind Böðvarsdóttir Mýrar 285 36,4 2,02
Karl Guðmundsson Mýrar 3 163 36,4 2,04
Þórarinn og Þórdís Ytri-Hofdalir 154 36,2 1,82
Sveinbjörn Þór Sigurðsson Búvellir 108 36,2 2,08
Haukur Þórhallsson Kambsstaðir 218 36,1 1,92
Sauðá Vatnsnesi ehf. Sauðá 522 36,0 2,04
Fremri-Gufudalur sf Gufudalur-Fremri 454 36,0 2,04
Árni og Guðrún Ytri-Villingadalur 119 36,0 1,96
Tafla 2. Bú með 100 ær eða fleiri á skýrslum, raðað eftir lömbum til nytja eftir hverja á
Nafn Býli Fjöldi áa
Frjósemi
fædd lömb
Lömb til
nytja
Gunnar og Gréta Efri-Fitjar 717 2,19 2,08
Aðall ehf Klaustursel 513 2,18 2,00
Fjölnir Torfason Breiðabólsst 4 - Hali 143 2,07 2,00
Elín Anna og Ari Guðmundur Bergsstaðir 402 2,13 1,99
Félagsbúið Stóra-Mörk 3 224 2,01 1,98
Halli og Ditta Garður 1 432 2,08 1,96
Gunnar og Matthildur Þóroddsstaðir 361 2,11 1,96
Eiríkur Jónsson Gýgjarhólskot 1 294 2,11 1,96
Birgir Valdimar Hauksson Grímsstaðir 3 162 2,11 1,96
Pólarhestar ehf Grýtubakki 2 230 2,18 1,95
Guðlaugur Axel Ásólfsson Litli-Árskógur 200 2,03 1,95
Æðarvarp ehf Illugastaðir 111 2,05 1,95
Eysteinn og Aldís Laufhóll 128 1,95 1,94
Viðar og Sigríður Kaldbakur 181 2,09 1,93
Egill A Freysteinsson Vagnbrekka 119 2,06 1,93
Björn og Badda Melar 1 381 2,00 1,92
Kjartan og Sigrún Teigasel 1 366 2,02 1,92
Ólafur og Friðrika Bjarnastaðir 285 2,04 1,92
Bergþóra og Sigurbjörn Kiðafell 210 2,21 1,92
Linda Björk Kjartansdóttir Teigasel 2 410 1,97 1,91
Félagsbúið Baldursheimur 1 272 2,05 1,91
Ásgeir Arngrímsson Brekkubær 230 2,07 1,91
Jón Benediktsson Auðnir 227 2,01 1,91
Sauðá Vatnsnesi ehf. Sauðá 522 2,04 1,90
Ólafur og Dagbjört Syðri-Urriðaá 473 2,09 1,90
Elín Heiða Valsdóttir Úthlíð 339 2,09 1,90
Eiríkur og Matthildur Arnheiðarstaðir 330 1,98 1,90
Stefán Lárus Karlsson Ytri-Bægisá 2 296 2,02 1,90
Þorbjörg og Óskar Þorgrímsstaðir 286 2,02 1,90
Bergljót Þorsteinsdóttir Halldórsstaðir 2 254 2,02 1,90
Jóhann Frímann Þórhallsson Brekkugerði 250 2,02 1,90
Tafla 3. Bú sem hafa kjötmatsupplýsingar um 100 lömb eða fleiri, raðað eftir einkunn fyrir holdfyllingu
Nafn Býli Fjöldi Fallþungi Gerð Fita Aldur Vaxtarhraði
1 Kjartan Sveinsson Bræðratungu 390 22,1 12,05 7,85 165 135
2 Ólafur Sindrason Grófargili 129 22,5 12,02 8,57 171 134
3 Dagbjartur Bogi Ingimundarson Brekku 634 18,3 11,97 7,42 142 129
4 Jón og Erna Broddanesi 1 280 18,5 11,96 7,35 138 134
5 Eiríkur Jónsson Gýgjarhólskoti 526 22,2 11,89 7,29 165 134
6 Helgi og Beate Kristnesi 104 20,6 11,89 9,49 127 163
7 Sveinbjörn Þór Sigurðsson Búvöllum 188 19,2 11,88 8,45 138 142
8 Ásvaldur og Laufey Stóru-Tjörnum 168 19,9 11,79 8,30 140 143
9 Ágúst Ingi Ketilsson Brúnastöðum 176 19,4 11,73 6,99 154 127
10 Björn og Inga Björk 2 279 19,7 11,68 7,64 151 130
11 Ólafur og Dagbjört Urriðaá 890 19,7 11,67 7,57 147 135
12 Björn Björnsson Syðri-Brennihóli 117 22,7 11,64 9,75 140 163
13 Jón og Hrefna Hóli 308 20,1 11,61 7,62 142 143
14 Elín Anna og Ari Guðmundur Bergsstöðum 826 19,8 11,56 7,27 134 149
15 Rebbi ehf Dalsmynni 108 20,0 11,56 7,78 146 137
16 Jökull Helgason Ósabakka 2 275 19,5 11,38 7,11 161 122
17 Gunnar og Gréta Efri-Fitjum 1469 19,3 11,37 6,47 139 142
18 Bjarni Eyjólfsson Hvoli 477 18,2 11,31 7,54 149 124
19 Aðalsteinn og Sigríður Auðnum 1 173 20,0 11,29 7,91 125 160
20 Árni Sigurður Þórarinsson Hofi 184 19,3 11,28 7,27 137 141
21 Eyþór Pétursson Baldursheimi 3 282 15,8 11,27 5,93 136 117
22 Böðvar Sigvaldi og Ólöf Mýrum 2 977 19,9 11,26 7,68 148 136
23 Þráinn Ómar Sigtryggsson Litlu-Reykjum 462 17,5 11,23 7,73 148 119
24 Kristbjörg María Bjarnadóttir Neðri-Rauðilækur 109 19,0 11,22 8,08 141 135
25 Gaularbúið ehf. Gaul 389 18,7 11,20 7,34 142 135
26 Haukur Þórhallsson Kambsstöðum 370 19,5 11,17 7,96 139 142
27 Karl Þór Björnsson Smáhömrum 423 18,3 11,16 7,11 143 129
28 Egill A Freysteinsson Vagnbrekku 233 17,1 11,15 6,89 127 136
29 Guðrún og Þórarinn Keldudal 132 18,7 11,09 6,92 138 135
30 Kristján og Linda Árgerði 319 18,7 11,06 7,36 139 137
31 Félagsbúið Brautartungu 149 17,0 11,06 6,10 144 119
32 Eyjólfur Gíslason Hofsstöðum 190 19,3 11,05 7,02 147 132
33 Marta og Magnús Stað 424 19,3 11,04 6,77 127 154
34 Smári Valsson Torfastöðum 1 200 20,1 11,03 8,25 144 141
35 Félagsbúið Ártúni Ártúni 117 20,3 11,03 7,63 177 114
36 Þórður og Simmi Möðruvellir 2, Hörg 486 19,1 11,02 7,61 150 127
37 Davíð Jónsson Kjarna 349 16,9 11,02 6,13 146 116
38 Sigurgeir Jónsson Árteigi 189 17,0 11,02 6,82 136 127
39 Birgir Þórðarson Ríp 1 678 17,6 11,01 7,36 157 113
40 Sigga Björk og Jói Fit 1 151 19,8 11,00 7,64 162 122