Bændablaðið - 02.04.2020, Blaðsíða 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. apríl 2020 45
Nánari upplýsingar gefur:
Grétar Hrafn Harðarson
S: 892-1480
Nf: gretarhrafn@simnet.is
MEIRA FÓÐUR, LYSTUGRA FÓÐUR
Nánari upplýsingar gefur:
Grétar Hrafn Harðarson
S: 892-1480
Nf: gretarhrafn@simnet.isLYSTUGT FÓÐUR, ÖRUGGT FÓÐUR
Nánari upplýsingar gefur:
Grétar Hrafn Harðarson
S: 892-1480
Nf: gretarhrafn@simnet.isÞURRT EN ÖRUGGT FÓÐUR
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
PICHON
HAUGHRÆRUR
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
sjá að hlutfall þeirra sem
ekki héldu lækkar (var
15,4% árið 2018). Hér
er kannski mest um vert
að horfa á frjósemis
töluna, því lömb sem
vanin eru undir eldri ær
eru ekki talin til nytja
hjá veturgömlu ánum.
Mestri frjósemi skil
uðu veturgömlu ærnar á
Bergsstöðum í Miðfirði,
1,67 lambi eftir ánna.
Næst kemur Úthlíð í
Skaftártungu með 1,66
lamb. Á Kiðafelli í Kjós
voru afgerandi mestar
afurðir eftir veturgömlu
ærnar eða 29,2 kg.
Niðurstöður fyrir
flokkun sláturlamba
Í skýrslum fjárræktar
félaganna fyrir fram
leiðsluárið 2019 eru upplýsingar
um 491.690 sláturlömb á 1.650
búum. Meðalfallþunginn var 16,6
kg, einkunn fyrir holdfyllingu 9,11
og einkunn fyrir fitu 6,29. Þetta
reynist nánast sami fallþungi og
árið 2018, holdfyllingin er aðeins
betri (var 9,05) og fitueinkunnin er
örlítið lægri (var 6,37). Mikið hefur
áunnist á síðustu áratugum í því að
bæta gerð lambanna. Framfarirnar
voru eðlilega hraðastar til að byrja
með þegar sóknarfærið var mikið,
en stökkin upp á við verða minni
eftir því sem menn ná lengra. Um
fjórðungur skýrsluhaldara hefur náð
því marki sem sett hefur verið fram
fyrir fjárstofninn í ræktunarmark
miðum. Þar er miðað við að ná öllum
lömbum í R eða hærri holdfyllinga
flokk og þar af 60% í U og E. Það bú
sem nær 40% lamba í R og 60% í U
fær 9,8 í gerðareinkunn. Ef horft er
til búa með upplýsingar um 100 slát
urlömb eða fleiri, þá eru það 22,7%
sem ná þessari einkunn.
Fitan er eiginleiki sem er bestur
á ákveðnu bili. Til þessa hefur mark
miðið verið að sem stærstur hluti
framleiðslunar fari í fituflokka 2
og 3. Bú sem fær helming fram
leiðslunar í hvorn flokk fengi fitu
einkunn upp á 6,5 sem er ögn hærra
en landsmeðaltalið. Mynd 3 sýnir
flokkun sláturlamba eftir sýslum
og er raðað upp eftir holdfyllingar
einkunn. Þyngstu lömbin voru í
Strandasýslu og Eyjafirði, 17,6 kg
að meðaltali. Best gerðu lömbin
voru á Ströndum (holdfyllingar
einkunn 9,72) en Eyjafjörður og
SÞingeyjarsýsla koma þar skammt
á eftir. Þingeysku lömbin eru þó
léttari sem gefur til kynna að þar sé
góð eðlisgerð í fénu í þeim skilningi
að þungi lambanna þarf ekki að vera
mikill til að góð holdfylling náist.
Bú með besta holdfyllingu lamba
Miðað við 100 sláturlömb eða fleiri
eru það 40 bú sem ná
þeim frábæra árangri
að holdfyllingar
einkunn slátur
lambanna sé 11
eða hærri og eru
þessi bú listuð upp
í töflu 3. Þetta er
talsverð fjölgun búa
á milli ára í þessum
ágæta félagsskap
en árið 2018 náði
31 bú þessum ár
angri. Hæst gerðar
mat var hjá Kjart
ani Sveinssyni
í Bræðratungu í
Biskupstungum með
eink unnina 12,03.
Næst í röðinni
koma lömbin hans
Ólafs Sindrasonar á
Grófargili í Skaga
firði en gerðar
einkunn þeirra var
12,02. Þriðji í röðinni er svo Dag
bjartur Bogi Ingimundarson, Brekku
í Öxarfirði en sláturlambahópur hans
hlaut 11,97 í gerðareinkunn.
Vaxtarhraði og aldur
Vaxtarhraði er verðmætur eiginleiki.
Líkt og flestir aðrir eiginleikar sem
við vinnum með í ræktunarstarf
inu er þetta samspil erfða og um
hverfis. Meðferðin og landgæðin
spila hér vissulega stórt hlutverk,
en í gegnum kynbætur reynum við
að auka vaxtarhraðann með því að
velja fyrir aukinni mjókurlagni hjá
ánum og öflugum lambafeðrum.
Meðal vaxtarhraði sláturlamba
samkvæmt skýrsluhaldsniðurstöðum
árið 2019 er 121 g/dag í reiknuðum
fallþunga og meðalaldur lambanna
er 138 dagar. Í töflu 4 er búum raðað
upp eftir vaxtarhraða lambanna og
birtast hér þau bú sem ná 150 g/
dag eða þar yfir. Sláturlömbin hjá
Guðrúnu Marinósdóttur á Búrfelli
í Svarfaðardal uxu hvað hraðast sé
miðað við bú með 100 sláturlömb
eða fleiri, en þau þyngdust um 165
g/dag. Þar á eftir koma þrjú bú með
vaxtarhraða slátraðra lamba upp á
163 g/dag en það eru Gautsdalur í
Reykhólasveit og SyðriBrennihóll
og Kristnes í Eyjafirði.
Að lokum
Hér hefur verið tæpt á helstu niður
stöðum úr skýrsluhaldinu og birtir
listar yfir bú sem skara fram úr fyrir
ákveðna eiginleika. Ónefnd eru hér
minni búin sem mörg hver skila
glæsilegum niðurstöðum en vísað
er í lista á veraldarvefnum þar sem
þeim er gerð skil. Slíkir listar skapa
viðmið og eru vonandi hvatning til
bænda að gera betur. Talsverður
breytileiki finnst í þessum gögnum
og margir sem eiga mikil sóknarfæri
í því að ná meiri og betri afurðum
eftir ærnar. Mesta kúnstin er að ná
öllum eiginleikum góðum. Bú sem
standast ákveðnar lágmarkskröfur í
nokkrum skilgreindum eiginleikum
hafa á síðustu árum verið sett inn á
lista yfir „úrvalsbú“. Þann lista og
ítarlegri niðurstöður fyrir sauðfjár
skýrsluhaldið síðustu árin má sjá inn
á www.rml.is.
Tafla 4. Bú sem hafa kjötmatsupplýsingar um 100 lömb eða fleiri, raðað eftir vaxtarhraða sláturlamba (fallþungi g/dag)
Nafn Býli Fjöldi Fallþungi Gerð Fita Aldur Vaxtarhraði
1 Guðrún Marinósdóttir Búrfelli 148 19,3 10,88 6,44 118 165
2 Magnús Kristjánsson Gautsdal 313 19,2 9,99 7,32 118 163
3 Björn Björnsson Syðri-Brennihóli 117 22,7 11,64 9,75 140 163
4 Helgi og Beate Kristnesi 104 20,6 11,89 9,49 127 163
5 Aðalsteinn og Sigríður Auðnum 1 173 20,0 11,29 7,91 125 160
6 Bergþóra og Sigurbjörn Kiðafelli 379 20,5 10,94 7,43 131 159
7 Þormóður Heimisson Sauðadalsá 990 19,6 10,84 7,20 126 158
8 Atli Þór og Guðrún Kot 225 19,5 9,79 7,75 125 156
9 Sigfús Vilhjálmsson Brekku 121 19,1 9,09 7,60 123 155
10 Óskar Snæberg Gunnarsson Dæli 106 20,3 10,60 8,80 131 155
11 Marta og Magnús Stað 424 19,3 11,04 6,77 127 154
12 Haraldur og Hrafnhildur Innra-Ósi 295 19,2 10,65 7,42 125 154
13 Karl Kristjánsson Kambi 521 18,3 10,52 7,14 120 153
14 Ásvaldur og Helga Dóra Tröð 266 19,9 10,52 8,12 130 153
15 Haraldur Guðmundsson Stakkanesi 421 18,7 10,26 6,78 124 152
16 Jóhanna R Kristjánsdóttir Svansvík 398 19,3 9,790 7,42 127 152
17 Hákon og Þorbjörg Svertingsstöðum 2 176 20,4 10,97 8,04 137 151
18 Sauðá Vatnsnesi ehf. Sauðá 879 18,6 10,72 6,61 125 150
19 Björn og Badda Melum 1 651 18,7 10,75 6,48 124 150
20 Þorbjörg og Óskar Þorgrímsstöðum 531 17,3 9,72 6,07 117 150
21 Sverrir og Karen Gilhaga 370 18,2 9,590 6,79 124 150
22 Þórarinn og Þórdís Ytri-Hofdölum 242 20,9 10,55 7,90 140 150
23 Jón Gústafsson Rauðafelli 111 20,4 10,08 8,59 136 150
24 Sigurgeir F Þorsteinsson Varmaland 103 20,3 10,91 8,01 136 150
Samkaup skora á ráðherra að auka
grænmetisræktun á Íslandi
Samkaup hefur skorað á Kristján
Þór Júlíusson sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra að auka
grænmetisræktun á Íslandi. Það
var gert með bréfi til ráðherrans
sunnudaginn 19. mars. Þar kemur
fram að veigamikil rök séu fyrir
því að grípa þurfi til aðgerða til að
styrkja undirstöður fæðuöryggis
landsmanna.
Í bréfinu er hvatt til þess að ýtt
verði undir innlenda grænmetisfram
leiðslu með opinberum ráðstöfunum
vegna þess að framleiðsla á heims
vísu kunni að dragast saman vegna
þess að framleiðendur ytra eigi erfitt
með að starfrækja fyrirtæki sín á
fullum afköstum. Áhrifa sé þegar
farið að gæta og verðhækkanir séu
í kortunum. Mestu skipti að hægt
verði að tryggja aukna framleiðslu
innanlands.
Með markvissum aðgerðum til
stuðnings grænmetisbændum væri
hægt að stórauka framboð íslenskrar
grænmetisframleiðslu.
Framleiðsluhvetjandi aðgerðir
„Stjórnvöld geta hvatt til þess að
innlend grænmetisframleiðsla
verði aukin og fylgt því eftir með
hagrænum hvötum og stuðnings
aðgerðum. Þær einstöku aðstæður
sem við er að glíma um þessar
mundir kalla á að gripið sé til fram
leiðsluhvetjandi aðgerða eins og til
að mynda niðurgreiðslna á raforku
verði til grænmetisbænda, aukinna
beingreiðslna eða sölutryggingar af
einhverju tagi. Samkaup beina því
til ráðherra að stjórnvöld og aðrir
opinberir aðilar geri sitt til þess að
innlendir framleiðendur geti sem
best annað spurn eftir grænmeti á
Íslandi,“ segir í bréfinu.
Gunnar Egill Sigurðsson, fram
kvæmdastjóri verslunarsviðs
Samkaupa, segir að ekki hafi borist
nein viðbrögð frá ráðherra, önnur en
þau að hann hafi tekið málið upp á
ríkisstjórnarfundi sama dag og bréfið
var sent.
Samkaup reka 61 verslun á
landinu, frá lágvöruverðsverslunum
til þægindaverslana; meðal annars
Nettó, Krambúðina, Háskólabúðina,
Iceland og Samkaup strax. /smh
Gunnar Egill Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri verslunarsviðs Sam-
kaupa.
Samkaup beina því til ráðherra að stjórnvöld og aðrir opinberir aðilar geri
sitt til þess að innlendr framleiðendur geti sem best annað spurn eftir
grænmeti á Íslandi