Bændablaðið - 02.04.2020, Side 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. apríl 202046
Kunningi minn hafði samband
við mig og spurði hvort ég væri
búinn að prófa nýja KIA e-Soul
rafmagnsbílinn. Ég svaraði því til
að mér hefði alltaf fundist hann
svo ljótur og að það hefði verið
aðalástæðan að ég hefði aldrei
prófað KIA Soul. Hann svaraði
að bragði að ég skyldi prófa bílinn
þó að mér líki ekki útlitið og hann
væri viss um að álit mitt myndi
breytast eftir prufuaksturinn.
Ég fékk bílinn hjá Öskju í nýja
KIA húsinu um síðustu helgi til
prufuaksturs.
Hörkukraftur og snerpa frábær
KIA e-Soul Style gengur eingöngu
fyrir rafmagni, er með 204 hestafla
vél sem á að skila bílnum 452 km
við bestu aðstæður. Rafhlaðan er 64
kWh og er bíllinn sjálfskiptur með
drif á framhjólunum. Kraftinum er
hægt að stýra, eco eyðir minnstu raf-
magni, normal þá er bíllinn sprækur
og lipur í akstri og svo er það sport
sem er næstum of mikill kraftur.
Snerpan er mjög góð (gefin upp
að nái 100 km hraða á 7,9 sek.).
Hægt er að fá KIA e-Soul Style í
14 mismunandi litasamsetningum.
Eins og alla aðra bíla sem ég prófa
þá mæli ég hávaðann inni í bílnum
á sama vegi og á sama hraða, en
mælingin á þessum bíl var 71,5 db.
Prufuaksturinn kom
heldur betur á óvart
Ég er vanur að keyra prufubíla að
lágmarki 100 km, en sökum tíma-
skorts ók ég þessum bíl ekki nema
78,5 km, en mín eyðsla af rafmagni
á þessum kílómetrum var sem
samsvarar 115 km akstri (þegar ég
byrjaði aksturinn sagði mælaborðið
að ég kæmist 323 km, en þegar ég
skilaði bílnum var sú tala komin í
208 km, en ég var með hita á stýrinu,
miðstöðina í botni, ljósin kveikt og sí
og æ að prófa snerpuna í bílnum sem
er líklegasta ástæðan fyrir mikilli
rafmagnseyðslu).
Í bílnum er akreinalesari sem
virkar mjög vel, svo vel að þegar
ég ók Bláfjallaveginn sleppti ég
stýrinu og lét akreinalesarann stýra
sem tókst ágætlega fyrir utan að mér
leið ekki vel að treysta þessari tækni.
Mesta undrun mín var þegar ég
ók malarveginn með Hafravatni sem
er einstaklega holóttur, en þessi bíll
er einfaldlega með frábæra fjöðrun
sem hreinlega át holurnar og bíllinn
haggaðist ekki þarna á drullugum
og holóttum veginum. Að loknum
drulluakstrinum furðaði ég mig á því
hversu bíllinn sóðaði sjálfan sig lítið
út þarna á drullugum malarveginum.
Hlaðin öryggisbúnaði,
en samt ódýr
KIA e-Soul Style kostar 5.690.777
og er með 7 ára ábyrgð (eins og
allir aðrir KIA bílar). Í bílnum er
mikið af öryggisbúnaði s.s. FCA
árekstrarvari, blindhornsvari, fjar-
lægðarskynjarar framan og aftan.
Hljómgæði í útvarpi góð, GPS
leiðsögukerfi, þráðlaus hleðsla fyrir
síma, 10,25 tommu upplýsingaskjár,
hiti í stýri, framsætum og aftursætum
(fannst mjög gott að sitja bæði aftur
í bílnum og fram í).
Ókostir eru ekki margir, ekkert
varadekk, ekki má setja á bílinn
dráttarkúlu til að draga kerru, en ég
verð að endurskoða hug minn til KIA
Soul eftir þennan prufuakstur, alla-
vega var allt við bílinn í andstöðu við
hug minn út frá útlitinu. Einfaldlega
frábær bíll sem gott er að keyra jafnt
á malbiki og á malarvegi.
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Lengd 4.195 mm
Hæð 1.605 mm
Breidd 1.800 mm
Helstu mál og upplýsingar
rafmagnsbíll
með 7 ára ábyrgð
KIA e-Soul Style. Myndir / HLJ
Sætin góð en sérstaklega var ég hrifinn af höfuðpúðanum. Ekkert varadekk en rafmagnspumpa og vökvi í staðinn.
Fjöðrunin fór létt með þessar holur og enn stærri holur.
Miðað við drulluna á malarveginum hélt ég að bíllinn myndi verða verr
útlítandi en þetta.
Hef séð lægri tölu í rafmagnsbíl, en á
vetrardekkjum og í vindi er þetta gott.
Hliðarspeglar stórir og góðir.