Bændablaðið - 02.04.2020, Blaðsíða 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. apríl 2020 49
Heklað barnateppi úr Drops Sky.
Teppið er heklað með gatamynstri
og púfflykkjum sem gefa skemmti-
lega áferð. Drops Sky er ótrúlega
létt garn og lungamjúkt. Mynstrið
kemur svo sérstaklega fallega út
í Sky þar sem það er hreyfing í
öllum litum garnsins.
Vona að ykkur líki jafn vel við þetta
teppi og okkur.
Heklkveðjur mæðgurnar
í Handverkskúnst
Elín & Guðrún María.
Stærðir: 47-52 cm (66-80 cm)
Garn: Drops Sky, fæst á Garn.is
Ljósbeige nr. 03, 150 (200) g
Heklunál: 4,5 mm
Heklfesta: 16 stuðlar = 10 cm
Útskýring á púfflykkju:
Athugið að þegar hekluð er púfflykkja er mikilvægt er
að hekla í loftlykkjuna en ekki fara undir hana. *Sláið
bandinu upp á nálina, stingið nálinni í loftlykjuna,
sláið bandinu upp á og dragið í gegnum loftlykkjuna,
dragið báða uppslættina vel upp (ca. 2 cm hæð)*,
heklið frá * að * alls 5 sinnum, sláið bandinu upp á
nálina og dragið bandið í gegnum allar lykkjurnar
sem eru á nálinni.
Uppskriftin:
Teppið er heklað fram og til baka.
Fitjið upp 77 (107) loftlykkjur, heklið 1 stuðul í 4.
loftlykkju frá nálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í
hverja loftlykkju. = 75 (105) stuðlar.
Heklið nú eftir mynsturteikningunni
þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 2 lykkjurnar, A.2
yfir næstu 66 (96) lykkjur (= 11 (16) mynsturend-
urtekningar), heklið A.3 yfir síðustu 7 lykkjurnar.
Munið að passa upp á heklfestuna.
Þegar mynsturteikningin hefur verið hekluð 1
sinnum á hæðina er hún mynstrið endurtekið frá
þeirri umferð sem örin bendir á (fyrstu umferð
teikningarinnar er sleppt) þar til stykkið mælist
ca. 51 (79) cm – stillið mynstrið þannig af að síð-
asta umferðin sé ekki umferð með púfflykkjum.
Klárið teppið með því að hekla eina umferð af
stuðlum í hverja lykkju (hvort sem það sé stuðull
eða loftlykkja). Stykkið ætti þá að mælast ca.
52 (80) cm.
Slítið frá og gangið frá endum.
Stórir draumar
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
3 7 6 4
8 4 9 7 5
6 5 2 1
1 4 7 6 8
8 4 3
9 6 5 4 2
9 3 2 7
5 3 8 1 9
8 9 5 3
Þyngst
7 2 1 8
6 9 3
1 9 2 6 4 7
9 5 2
7 4 6 1
8 3 7
9 4 7 1 8 5
5 8 4
6 9 5 3
1 5 3 8
4 6
8 3 2 7
4 6 1 9 8
7 2 4 5 3
9 7 8 1
7 3
5 3 6 9
5
1 6 9
5 9 2
7 4 9
8 9 7 4
1 6 3
2 8 4
8 1 6
3
Grillað kjöt best
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Jón Trausti býr á Ytra-Vatni í
Skagafirði ásamt foreldrum sínum
og systkinum.
Nafn: Jón Trausti Sigurðsson.
Aldur: 9 ára að verða 10.
Stjörnumerki: Tvíburi.
Búseta: Ytra-Vatn.
Skóli: Varmahlíðarskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Útivist, myndmennt og
íþróttir.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hundur.
Uppáhaldsmatur: Grillað kjöt.
Uppáhaldshljómsveit: Stuðmenn.
Uppáhaldskvikmynd: Happy
Gilmore.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég æfi fótbolta og körfu-
bolta.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Körfuboltamaður.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Að fara í rennibrauta-
garðinn í Portúgal.
Hvað ætlarðu að gera skemmtilegt í
sumar? Spila fótbolta og körfubolta.
Næst » Jón Trausti skorar á Rakel
Sonju Ámundadóttur að svara næst.
KH Vinnuföt • Nethyl 2a • 110 Reykjavík • Sími: 577 1000 • info@khvinnufot.is • www.khvinnufot.is
• Vind- og vatnsþéttur
• 3 vasar með rennilásum
• Riflás við úlnlið
• Stillanlegur í mitti
Efni: 100% pólýester
Vatnsvörn: mm H2O:> 8.000 mm
Öndun: 800 g/m²/24klst.
Stærðir: XS - 5XL
ELKA Softshell jakki með vatnsvörn
Verð kr. 6.900,-