Bændablaðið - 02.04.2020, Qupperneq 50
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. apríl 202050
Ísland er land náttúruauðlinda,
hreinleika og heilbrigðis, fegurðar
og gróðursældar. Ísland er gjöfult
land sem getur í senn laðað fram
allt það besta hjá okkur sem byggj-
um það og samtímis boðið gestum
sínum nær endalausar upplifanir
í náttúru sinni og hreinleika mat-
vælanna, vatnsins og loftsins. Þess
vegna eigum við að örva áhuga
ungs fólks á verðmætum landsins
og hvetja til menntunar og starfa
á þeim vettvangi.
Mikilvægi sjálfbærar
matvælaframleiðslu
Veröldin er að breytast vegna
COVID-19 faraldursins sem fært
hefur hörmungar yfir mörg sam-
félög. Þjóðir slá nú skjaldborg um
heilbrigði sinna þegna og flest verja
með öllum ráðum þá sem minnst
mega sín. Samfélagslegur kostn-
aður þjóða vegna farsóttarinnar er
fordæmalaus og sum staðar þarfn-
ast sjálf samfélagsgerðin endur-
skoðunar. Víða eru matvælaör-
yggimál ofarlega á baugi og þar
er Ísland ekki undanskilið. Hér er
matvælaöryggi eitt þeirra mála sem
margir telja sjálfsagt, án þess þó að
hafa leitt hugann mikið að því eða
lagst á árarnar. Þannig er það með
fleiri samfélagsmál, sem vert er að
halda á lofti og berjast fyrir í blíðu
og stríðu. Það á við um tjáningar-
frelsið í lýðræðisríkinu, þéttriðið
öryggisnet velferðarsamfélagsins
og samstöðu þjóðarinnar.
Margir ganga að íslenskum land-
búnaði sem vísum og þiggja einstakar
afurðirnar án sérstakrar umhugsun-
ar. Hreinar afurðir, náttúrulegar og
án sýklalyfja að telja má miðað við
samanburðarlöndin. Ýmsir hafa leynt
og ljóst haft horn í síðu greinarinnar
og jafnvel gert slíkan málflutning að
atvinnu sinni í ræðu og riti, án þess að
hafa endilega áttað sig á mikilvægi
matmælaöryggis þjóða. Allt í einu
hefur það ljós runnið upp fyrir okkur,
að sjálfbærni í matvælaframleiðslu
þjóðarinnar sé gulls ígildi. Í alþjóða-
samskiptum að undanförnu hefur ber-
sýnilega komið í ljós, að hver þjóð er
sjálfri sér næst þegar eitthvað bjátar á.
Enda þótt veruleikinn hafi að undan-
förnu snúist um spritt, andlitsgrímur
og lækningatæki má gera ráð fyrir
því að sömu lögmál muni gilda ef
alvarlegur matvælaskortur gerir vart
við sig í heiminum. Við getum ekki
gengið að því sem vísu að tekið yrði
tillit til Íslands í slíkri stöðu. Þetta er
síður en svo nýr veruleiki, en hann
hefur verið mörgum hulinn á undan-
förnum árum. Þess vegna er fjöregg
þjóðarinnar fólgið í sjálfbærum
búskaparháttum til sjávar og sveita.
Þar liggja grunnstoðir verðmæta-
sköpunar okkar og um leið er varð-
veisla þeirra eitt brýnasta samstarfs-
verkefni allrar þjóðarinnar. Ísland
hefur fjárfest í heilnæmum landbún-
aði og það er fjárfesting sem mun
skila sér til framtíðar. Matvælaöryggi
verður raunverulega til skoðunar í
aðstæðum sem þessum þegar hið
alþjóðlega markaðshagkerfi riðlast,
ekki eingöngu þegar allir markaðir
eru opnir og aðgangur greiður. Þess
vegna þarf að hlúa að landbúnaði
við allar aðstæður, en ekki eingöngu
þegar við erfiðleika er að etja.
Stefna Framsóknarflokksins í
landbúnaðarmálum og nýsköpun
Framsóknarflokkurinn hefur staðið
þétt við bak íslensks landbúnaðar í
blíðu og stríðu. Ekkert hefur haggað
þeirri grundvallarsýn flokksins að
sveitir landsins geymi einn okkar
dýrmætasta menningararf og án
blómlegrar byggðar um allt land
væri samfélagið ekki sjálfbært. Sú
skoðun hefur staðið af sér pólitíska
vinda og tíðarandann og hin órofa
varðstaða um matvælaframleiðslu
er og verður eitt af okkar aðals-
merkjum.
Landbúnaðurinn er lyftistöng
fyrir samfélagið. Án hans væri hér
lítil sem engin matvælaframleiðsla.
Án hans væri ekkert íslenskt kjöt,
engin íslensk mjólk, ekkert íslenskt
grænmeti. Farsælasta leiðin til að
styðja við hann er að efla nýsköp-
un. Gott dæmi um augljósa arðsemi
slíks þróunarstarfs eru nýtilkom-
in tækifæri til nýtingar á mysu
sem fellur til við ostaframleiðslu.
Til skamms tíma var tugmilljón-
um lítra af ostamysu hleypt til
sjávar með öllum sínum prótein-
um og mjólkursykri, en nú eru
unnin hundruð tonna af þurrkuðu
hágæðapróteini úr henni. Lífræn
ræktun hefur skapað nýja markaði
og með framsækinni matvæla- og
vöruþróun úr landbúnaðarafurðum
verður stærri hluti virðiskeðjunnar
eftir í sveitum. Við erum í kjörað-
stæðum til að efla ræktun á íslensku
grænmeti og eigum að nýta orku
landsins til þess. Við eigum í auknu
mæli að líta gagnrýnið á samkeppn-
ishæfni þjóðarbúsins og sjá hvar
við eigum að stíga fastar niður
fæti. Við eigum að hlúa að og rækta
alla slíka sprota, efla nýsköpun og
tryggja hámarksnýtingu á landsins
gæðum. Þegar litið er til landfræði-
legrar legu landsins, fámennis,
strjálbýlis, veðurfars og fleira er
morgunljóst að nauðsynlegt er að
gera mun betur til þess að styðja
viðsjálfstæði í matvælaframleiðslu
og fjárfesta um leið í öllum þeim
beinu og óbeinu verðmætum sem
fólgin eru í landvörslu íslenskra
bænda. Það er brýnt að landið sé
nýtt og eignarhald á jörðum taki
mið af þörfum samfélagsins, en
ekki einkahagsmunum.
Við eigum að hugsa heildrænt
um íslenskan landbúnað og styðja
hann með ráðum og dáð í víðfeðmu
hlutverki sínu til nýrrar sóknar. Við
eigum að auka áhuga ungs fólks á
landbúnaði, efla menntun, vísindi,
rannsóknir og þróun landbúnað-
arins. Bæta þarf rekstrarumhverfi
bænda og auðvelda ungu fólki
aðgengi að bújörðum og nýsköpun í
landbúnaði. Framsóknarflokkurinn
mun ekki láta okkar eftir liggja í
þeim efnum.
Lilja D. Alfreðsdóttir,
mennta- og menningarmála-
ráðherra og varaformaður
Framsóknarflokksins
Sjúkdómar og faraldrar hafa
hrjáð mannkynið um aldir. Með
tilkomu lyfja, auknu hreinlæti og
betri heilbrigðisþjónustu höfum
við náð að bæta almennt heil-
brigði. Á móti kemur að ferðalög
heimshorna á milli er nú á færi
stórs hluta mannskyns.
Útbreiðsla smitsjúkdóma hring-
inn í kringum veröldina getur því
gerst á undra skömmum tíma.
Tímamót
Heimurinn stendur á tímamótum,
nú þegar ný tegund veiru herjar
á. Þótt veiran sé skæð sýnist hún
ekki eins illvíg og margar þær
sem mannkynið hefur áður þurft
að takast á við. En nú ber nýrra
við, því hraði útbreiðslunnar er
með áður óþekktum hætti. Öflug
efnahagskerfi veraldar riða nánast
samtímis til falls og enginn veit
hver áhrifin verða til lengri tíma.
Viðbúið er að veröldin muni líta
öðruvísi út þegar þessum faraldri
linnir. Hver hefði búist við því að
ferðafrelsi yrði heft með þeim hætti
sem flest lönd hafa tekið upp? Og
það í lýðræðisþjóðfélögum nútím-
ans.
Fæðuöryggi
Í svari dómsmálaráðherra við fyr-
irspurn sem ég lagði fram fyrr í
vetur um þjóðaröryggi og fæðu-
öryggi kom fram að ekki liggur
fyrir sérstök viðbragðsáætlun ef
flutningsleiðir til landsins lokast
skyndilega eða teppast. Maður
skyldi ætla að stjórnvöld hefðu
skoðað þennan möguleika, ekki
síst eftir reynslu síðustu ára.
Það hefur gerst að minnsta kosti
þrisvar sinnum á síðustu árum
að slík staða var ekki fjarlægur
möguleiki, fyrst vegna heims-
faraldurs inflúensu 2008, síðan
vegna hrunsins og loks vegna
Eyjafjallagossins. Allir þessir at-
burðir gátu, ef allt færi á versta
veg, valdið vöruskorti hér á landi,
um lengri eða skemmri tíma.
Eldsneyti til tveggja vikna
Í fyrirspurninni spurði ég sérstak-
lega um matvæli, eldsneyti og
lyfja birgðir. Þrátt fyrir að vera mat-
vælaframleiðsluþjóð, er augljóst að
til að afla hráefna til þeirrar fram-
leiðslu þarf eldsneyti, ella stöðvast
mest öll framleiðsla þeirra vara. Í
svari ráðherra kom fram að birgðir
eldsneytis í landinu geta minnst
verið til tveggja vikna.
Matvæli, eldsneyti og lyf
Þjóð, sem býr lengst úti í hafi,
getur ekki leyft sér að vera van-
búin að þessu leyti, við getum
ekki bara yppt öxlum og treyst á
tíðar skipakomur og að innflutn-
ingur matvæla sé ætíð tryggur.
Nú er rétti tíminn til að styrkja
stoðir innlendrar matvælafram-
leiðslu, skjóta tryggum stoðum
undir framleiðslu mjólkur, kjöts
og eggja í landbúnaði og stórefla
grænmetisræktun. Við búum svo
vel að hafa aðgang að nægri raf-
orku og höfum alla burði til að
vera sem mest sjálfum okkur næg
um matvæli.
Loftslagsáhrif flutninga
Um leið og íslensk matvælafram-
leiðsla væri efld sparast langir
flutningar með vörur landa og
heimsálfa á milli. Áhrif umsvifa
mannsins á umhverfi sitt, ekki
hvað síst á loftslag, er flestum
mikið áhyggjuefni. Ef vörur eru
framleiddar sem næst neytand-
anum væri unnt að minnka þá
mengun sem er tilkomin vegna
flutninga með matvæli sem unnt
er að rækta eða vinna innanlands.
Framleiðum okkar
matvæli innanlands
Ástandið nú vegna veiru far-
aldursins ætti að kenna okkur
að við þurfum að geta brauð-
fætt okkur af því sem unnt er
að framleiða hér innanlands.
Landbúnaðarframleiðsla okkar á
undir högg að sækja fyrir margra
hluta sakir, hún getur illa keppt
við oft niðurgreiddar og verk-
smiðjuframleiddar vörur stórþjóð-
anna. Holl, hrein og örugg vara
íslenskra bænda er dýrari en kjöt-
meti framleitt með aðstoð sýkla-
lyfja við óheilbrigðar aðstæður.
Sláum tvær flugur í einu höggi,
minnkum kolefnisfótspor okkar
og eflum í leiðinni íslenska fram-
leiðslu, sem er gjaldeyrissparandi
og viðheldur þekkingu á fram-
leiðsluaðferðum hér innanlands.
Karl Gauti Hjaltason
Höfundur er þingmaður
Miðflokksins í
Suðurkjördæmi
kgauti@althingi.is
LESENDABÁS
Innlend matvæli
aldrei mikilvægari
Nú er tíminn til að efla inn-
lenda matvælaframleiðslu
Karl Gauti Hjaltason.
Lilja D. Alfreðsdóttir.
Bænda
22. apríl
Mynd / Odd Stefan
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
ALTERNATORAR í flestar
gerðir dráttarvéla