Spássían - 2012, Side 14

Spássían - 2012, Side 14
14 Hefur það áhrif á bókmennta- sköpun í landinu að stór hluti íslenskra skáldverka er ætlaður til gjafa? Ég fór að velta þessu fyrir mér eftir að forleggjarinn minn ákvað að gefa út bók eftir mig, sagnasveiginn ást í meinum, að sumri til og reyna að höfða til þeirra sem vilja kaupa sér annars konar sumarlesningu en reyfara. Hefur það áhrif á rithöfundinn sem situr heima og skrifar að bókin hans er hugsuð til gjafa? KVAÐIR JÓLABÓKAFLÓÐS Um 70% landsmanna fá bók í jólagjöf samkvæmt könnunum sem gerðar hafa verið fyrir Félag íslenskra bókaútgefenda. Og það er margs að gæta þegar þessar bækur eru valdar. Jólagjöf á helst að vera falleg, næstum heilög, lýsa hug gefandans til þiggjandans og falla að almennum hugmyndum um þessa mestu trúarhátíð landsins. Þess vegna er gefandinn ekki líklegur til að taka mikla áhættu við valið. Hann hefur gjarnan takmarkaða þekkingu á smekk þiggjandans og því er hætta á að lægsti mögulegi samnefnari verði fyrir valinu. Það skiptir líka máli að gefandinn er oftar en ekki af annarri kynslóð en þiggjandinn eða úr annarri fjölskyldu. Sá sem kaupir bók handa sjálfum sér er miklu líklegri til þess að þjóna sérvisku sinni vegna þess að þá hangir ekki eins mikið á spýtunni, ég tala nú ekki um ef bókin er í kilju og þar með ódýrari. Ég hef sjálfur átt margar bækur á jólabókamarkaði, bæði þýddar og frumsamdar, og orðið var við að fólk kinokar sér við að gefa bók sem gengur að einhverju leyti gegn borgaralegu velsæmi. Einnig kinokar fólk sér við að gefa bækur sem ekki njóta almennrar viðurkenningar og eru ekki eftir „löggilta“ höfunda. Einu sinni þýddi ég bók sem sumir sneiddu hjá vegna þess að á kápunni var svolítið stórskorin mynd af svertingja. Það getur líka verið erfitt að gefa bók sem ber ögrandi titil, t.d. ímynda ég mér að ekki hafi margt kristið fólk fengið Orðabók andskotans eftir Ambroce Bierce í jólagjöf. Vitað er að markhópur hefur áhrif á það hvernig höfundur nálgast vinnu sína, sbr. fræðihugtakið „ífólginn lesandi“ sem vísar til markhópsins sem hafður er í huga, hvort sem það er meðvitað eða ómeðvitað af höfundarins hálfu. Blaðamaður á The Sun í Bretlandi matreiðir sitt efni öðruvísi en blaðamaður á New York Times í Bandaríkjunum, svo ýkt dæmi sé tekið. Það er því rökrétt að líta svo á að jólaflóðsvæntingin hafi lúmsk og jafnvel ómeðvituð áhrif á afurðirnar. Mömmur og pabbar, ömmur og afar, já jólabarnið sjálft, horfa yfir öxlina á höfundinum, Haukur Morthens raulandi jólalag í bakgrunni. Í versta tilfelli má tala um eins konar ritstýringu. Auðvitað reyna sumir að bjóða markhópnum birginn, og tekst það jafnvel, en hætt er við að þeir geri það þá á forsendum hans. Enginn kemst út úr því samhengi sem hann lifir og hrærist í, en rithöfundar ættu reyndar að vera betur til þess fallnir en sumir aðrir að sjá í gegnum samfélagsþrýsting. JÓLALAG UM HÁSUMAR Svona hefur þetta verið í áratugi og átt þátt í að búa til bókmenntahefð okkar. Sjálfsagt má finna bæði kost og löst á þessu fyrirkomulagi. Maður skyldi t.d. ætla að fólk reyndi almennt að vanda sig vegna þess að hrákasmíðar eru ekki líklegar til að rata í jólapakka. Á hinn bóginn gæti kristilegur tepruskapur átt til að læðast inn, nú eða ýkt uppreisn gegn honum, svo einföld dæmi séu tekin. Ekki minnkar þetta líkurnar á að höfundar teygi sig inn að miðjunni og hlaupi á eftir tískustraumum. Þetta fyrirkomulag hefur líka áhrif á umbúðirnar sem bækurnar eru settar í, bæði band og kápur, og þar með á verð. Þá má spyrja hvort jólagjafastellingin hafi gert kvenhöfundum erfiðara fyrir enda karlhöfundarnir búnir að koma sér í þægilega stöðu, skreyta hver annan með verðlaunum og skrifa sig inn í bókmenntasögur. Einnig má velta fyrir sér hvort þetta kerfi hafi hamlað nýliðun því fólk velur yfirleitt öruggasta kostinn þegar bók er keypt. Það er bæði annarlegt og takmarkandi, jafnt fyrir lesendur sem höfunda, að flest íslensk skáldverk skuli koma út á haustmánuðum og vera ætluð til gjafa. Höfundar sem eru trúir bókmenntunum eiga ekki að þjóna utanaðkomandi afli á borð við jólagjafamarkaðinn. Það skekkir myndina og býður þeirri hættu heim að þeir svíki hugsjónir sínar fyrir skjótfenginn gróða. Þess vegna held ég að það gæti haft góð áhrif á bókmenntasköpun í landinu að rífa hana að einhverju leyti út úr trúboðsstellingu jólanna og því englahári sem henni fylgir. Eðlis síns vegna eiga bækur ekki einungis að vera gjafavara, þeim er ætlað miklu margþættara hlutverk í mannlegu samfélagi. Jólabókahefðin setur höfundinn í svipaða stöðu og lagasmið sem semur jólalag um hásumar. GJAFASTELLING b ó k m e n n t a n n a EFTIR RÚNAR HELGA VIGNISSON, rithöfund

x

Spássían

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.