Spássían - 2012, Blaðsíða 41

Spássían - 2012, Blaðsíða 41
41 REYKJAVÍK er ein af sex Bókmennta-borgum UNESCO, en eins og fram kom í sumarblaði Spássíunnar 2011 er Bókmenntaborgum fyrst og fremst ætlað að vekja athygli á bók- menntum og bókmenntaviðburðum og sinna hlutverki tengslanets og upplýsingaveitu. Auður Rán Þorgeirsdóttir og Kristín Viðarsdóttir, verkefnastjórar hjá Bókmenntaborginni Reykjavík, segja að aðaláhersla hafi í fyrstu verið lögð á að kynna verkefnið fyrir borgarbúum, sér í lagi að útnefningin sé ekki tímabundin heldur varanleg. Þá hefur Bókmenntaborgin staðið fyrir fyrstu bókamessunni í Reykjavík í samvinnu við Félag íslenskra bókaútgefenda og komið tilvitnunum í íslenskar bókmenntir fyrir í Leifsstöð og á götum Reykjavíkur, svo fátt eitt sé nefnt. Á næstunni verða settar upp umhverfi smerkingar sem er ætlað að gefa borgarbúum og gestum tækifæri til að fræðast um bókmenntasögu Reykjavíkur á göngu um borgina. Þar verða stuttir textar um höfund og stað og tilvitnun í verk en ítarlegri upplýsingar verður hægt að sækja á vef með snjallsímum. Einnig verður hægt að hlusta á upplestur úr íslenskum skáldskap á nokkrum skáldabekkjum í borgarlandinu. Fyrsta umhverfi smerkingin er tengd Elíasi Mar. Auður og Kristín segja lestrarhátíðina byggða á verkefnum á borð við „Ein borg – ein bók“ sem haldin er í Dublin í apríl ár hvert, en engu að síður sé hátíðin löguð að Reykjavík. „Stefnan er sú að hátíðin verði árleg og haldin í október ár hvert. Í þetta skipti völdum við eina bók en það er alls ekki víst að svo verði alltaf,“ segir Kristín. „Við vildum leggja áherslu á að ná til ungs fólks vegna umræðu undanfarinna missera um stöðu læsis,“ segja verkefnastýrurnar þegar þær eru spurðar af hverju Vögguvísa hafi orðið fyrir valinu. „Við vildum borgarsögu sem næði til breiðs lesendahóps, hefði víða skírskotun og væri ekki of þekkt. Vögguvísa hefur allt þetta. Það eru ekki margir sem hafa lesið hana síðustu ár en hún nær til fólks á öllum aldri. Sérstaklega er mikilvægt að hún fjallar um líf unglinga í Reykjavík en er algjörlega laus við prédikanir. Unglingar vilja ekki láta tala þannig við sig.“ Einnig taka þær fram að aðstandendur Bókmenntaborgarinnar hafi viljað gefa Elíasi Mar meira og verðskuldað pláss í bókmenntaumfjöllun samtímans. GRASRÓTARHÁTÍÐ Ýmislegt er á döfi nni í október og Vögguvísa verður lesin í fjölmörgum skólum og leshópum. Einnig munu leikskólar borgarinnar taka þátt í lestrarátakinu þótt þeir vinni ekki beinlínis með bók Elíasar, því í nokkrum þeirra verður vögguvísuþema í október. Auður og Kristín ítreka að lestrarhátíðin er grasrótarhátíð og viðburðirnir eru alls ekki allir á vegum Bókmenntaborgarinnar. Sem dæmi má nefna að Vögguvísa í lestri höfundar er útvarpssaga mánaðarins á Rás 1, í aðalsafni Borgarbókasafns er ljósmyndasýning helguð Elíasi og málþing um Vögguvísu verður haldið á vegum Bókmenntafræðistofnunar Háskóla Íslands og Bókmenntaborgarinnar í Þjóðarbókhlöðunni 27. október. Skólar geta pantað dagskrá um Elías Mar og Vögguvísu hjá Rithöfundasambandi Íslands sem sér um verkefnið „Skáld í skólum“. Síðast en ekki síst er sérstakri vefsíðu inni á bokmenntaborgin. is upplýsingabanki um Elías Mar og Vögguvísu. Þar eru birtar upplýsingar um viðburði októbermánaðar, ásamt lifandi efni sem tengist hátíðinni, Einnig er vefsíðan vettvangur fyrir umræður um bókina, eins konar opinn leshringur sem allir geta tekið þátt í. NAUÐSYNLEG ÚTGÁFA Þegar búið var að velja skáldverkið sem skyldi vera í brennidepli þurfti að huga að útgefanda því Vögguvísa var FYRSTA BÓKIN Í BRENNIDEPLI Á ÁRLEGRI LESTRARHÁTÍÐ BÓKMENNTABORGARINNAR REYKJAVÍKUR, „ORÐIÐ ER FRJÁLST“, ER SKÁLDSAGAN VÖGGUVÍSA EFTIR ELÍAS MAR SEM KOM UPPHAFLEGA ÚT ÁRIÐ 1950. HÁTÍÐIN MIÐAR AÐ ÞVÍ AÐ HVETJA TIL BÓKMENNTAUMRÆÐU MEÐAL ALMENNINGS Á SEM FLESTUM SVIÐUM SAMFÉLAGSINS. VALIÐ ER EITT SKÁLDVERK SEM TENGIST BORGINNI OG ÞAÐ KYNNT SEM BÓK MÁNAÐARINS. BORGARBÚAR ERU HVATTIR TIL AÐ LESA OG RÆÐA UM VERKIÐ OG TAKA ÞÁTT Í ÝMSUM VIÐBURÐUM Í TENGSLUM VIÐ ÞAÐ. Orðið er frjálst EFTIR ÁSTU KRISTÍNU BENEDIKTSDÓTTUR

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.