Spássían - 2012, Blaðsíða 16

Spássían - 2012, Blaðsíða 16
16 SIGURBJÖRG starfaði á Morgun- blaðinu þegar hún gaf út fyrstu bók sína og hún segist lengi hafa skýlt sér bak við starfsheitið blaðamaður. Einhvern veginn fannst henni of mikið að kalla sig rithöfund. „Ég sagði á tímabili að ég væri ekki nema höfundur þeirra bóka sem ég hefði gefið út, og að það væri alls ekki þar með sagt að ég ætlaði að vera rithöfundur alla ævi. Ég var lengi með þennan fyrirvara, og held að nánast til þessa dags hafi ég aldrei sagt sjálf að ég væri rithöfundur – bara jánkað því ef aðrir hafa spurt. Síðasta ár, sem ég eyddi við ritstörf í Þýskalandi, var hálfgerð tilraun og reyndist frábær reynsla. Það eru forréttindi að geta einbeitt sér að þessu eingöngu, ekki síst ef maður þarf að dýfa sér ofan í eitthvað sem er aðeins meira umfangs en eitt ljóð í einu.“ MEGUM VERA STOLT AF ÞESSU KERFI Listamannalaun eru ein leið til að gefa höfundum færi á að helga sig ritstörfum en þau sæta reglulega gagnrýni sem Sigurbjörg lýsir sem árlegum öldugangi. Hann gangi svo yfir en málið sé aldrei rætt almennilega. „Ef menn eru ekki sammála því að hér eigi að vera kerfi sem úthluti listamönnum launum þá ættu þeir að fara vandlega yfir kostina og gallana og leggja til hvað skuli frekar gera, en ekki hrópa reglulega upp að þetta sé nú allt of mikið og þessi eða hinn eigi ekki að fá. Þó er þessum gusugangi alltaf svarað af yfirveguðu fólki, oft mjög vel, en þá tekur þögnin aftur við og endist til næsta árs. Eftir efnahagshrunið fannst mér raunar margir pólitíkusar sem stýrðu menningarmálum sýna mikið hugrekki með því að halda sínu striki í þessum efnum og draga ekkert í land. Samfélagið hér má líka að mínu viti vera stolt af þessu kerfi, það er alls ekki sjálfgefið og er ekki alls staðar til. “ Hún bendir þó á að listamannalaun séu ekki forsenda þess að fólk skrifi. „Nauðsynin rekur fólk áfram við að finna sér tíma; vinna á nóttunni og við furðulegar aðstæður ef þarf. Stuðningur, til dæmis við unga höfunda, getur líka verið með ýmsum hætti. Til dæmis það að einhver vilji fá mann til að lesa upp, eða að forlag sýni verkunum áhuga, er hvatning. Bara það að bókmenntatímarit vilji birta eitthvað eftir mann þegar maður er nýr, getur næstum því, eftir á að hyggja, verið það besta. Sjálfri fannst mér líka Rithöfundasambandið taka mér mjög vel, þegar ég var að byrja. Það sendir til dæmis unga höfunda til Svíþjóðar einu sinni á ári, í höfundasmiðju fyrir unga höfunda frá Norðurlöndum – það fer ekki mikið fyrir þessu en þetta er mikilvægur stuðningur. Og ég tala nú ekki um að hafa aðgang að Gunnarshúsi og því frábæra fólki sem þar er. Menn eru ekkert endilega að tala þar um bókmenntatexta alla daga, heldur skapast þar samvitund og vinátta meðal rithöfunda - þó margir haldi að við séum alltaf í keppni. Það er eiginlega ótrúlegt að sitja allt í einu á móti Pétri Gunnarssyni eða Vigdísi Grímsdóttur eða öðru því fólki sem maður man eftir sem krakki og fannst vera aðalfólkið. Burtséð frá peningum og tíma er allt svona mikilvægt þegar fólk er að fara af stað.“ HÖFUÐVERKUR AÐ RAÐA SAMAN Eftir að hafa gefið út ljóðabækurnar Blálogaland, Hnattflug og Túlípanafallhlífar og skáldsöguna Sólar sögu skrifaði Sigurbjörg Blysfarir sem skilgreind var sem „ljóðsaga“ og er eins konar ljóða- bálkur með söguþræði. Í kjölfarið kom annar ljóðabálkur, Brúður sem einnig er freistandi að reyna að púsla saman og lesa sem sögu eða nokkrar tengdar sögur. Það kom þó blaðamanni Spássíunnar töluvert á óvart að sjá Blysfarir í skáldsagnahillu á bókasafni fyrir skömmu. Í kjölfarið vaknaði sú spurning hvort það geti verið erfitt að skrifa svona á mörkum hefðbundinna flokka – og hvort fólk vilji í raun helst fá skáldsögur. „Það er nú einmitt málið, maður veit ekkert hvað fólk vill. Þegar ég gaf fyrst út ljóðabækurnar mínar var fólk alltaf að spyrja hvenær ég ætlaði að gefa út „bók“. Þetta móðgaði mig mjög mikið. Eins og ljóðabækurnar væru ekki bækur. En svo þegar ég segist núna vera að klára skáldsögu og held að það verði þá einhver fögnuður, segir fólk: „Nú já og hvenær ætlarðu að koma með nýja ljóðabók?“ Það má ekki taka svona samtöl of alvarlega. Maður gerir þetta sjálfur, hittir einhvern kvikmyndagerðarmann úti í búð og spyr: „Já ertu ekki alltaf að gera myndir?“ - bara til að segja eitthvað. Hann fer þá kannski alveg í kerfi ef hann er að gera sjónvarpsþætti og heldur að allir séu að bíða eftir kvikmynd. Maður á ekkert endilega að taka slík orð heim.“ Sigurbjörg neitar því þó ekki að það sé mikil hefð fyrir skáldsögum, stemning sé í kringum þær og meira þurfi oft að hafa fyrir því að koma annars konar bókum á framfæri. „Ég held reyndar að ég hafi skrifað Sólar sögu til að sýna fram á að ég gæti ekki skrifað skáldsögu, það væri ekki fyrir mig. En það snerist smá í höndunum á mér vegna þess að hún fékk Tómasarverðlaunin. Ég sendi hana nafnlaust inn og hugsaði með mér að ef hún myndi falla um sjálfa sig í þessari keppni, þá væri það bara fínt. En svo vann hún og var þar með gefin út – auðvitað var það gaman og líkast til draumurinn öðrum þræði. En ég var svolítið hissa á að henni væri tekið sem alvöru skáldsögu. Af því að ég kunni ekki að skrifa skáldsögu. Ég skrifaði hana alla í bútum og svo var endalaust vesen að raða henni í þá krónólógísku röð sem ég var með í kollinum. Þetta var fjárans höfuðverkur. Það er helst að ég nái að skrifa smásögu í réttri röð, frá upphafi til enda, annars eru þetta alltaf einhver svona furðuverk. En auðvitað hefur hver sína leið. Það getur vel verið að enginn skrifi verkin sín frá upphafi til enda þegar allt kemur til alls. Svo er annað, að í mörgum tilvikum ráða aðstæður fólks hreinlega því hvað það getur skrifað. Eitt sinn var talað um að konur vantaði þetta fræga sérherbergi, þær væru alltaf að elda matinn og gætu ekki skrifað nema fjórar línur í einu. En ég þekki núna til dæmis tvo karlhöfunda með lítil börn og þeir hafa báðir sagt mér að þeir lagi verkefni sín um þessar mundir að aðstæðum heimilisins. Þeir eru þá ekki að skrifa skáldsögur, eins Þegar ég gaf fyrst út ljóðabækurnar mínar var fólk alltaf að spyrja hvenær ég ætlaði að gefa út „bók“. Þetta móðgaði mig mjög mikið. Eins og ljóðabækurnar væru ekki bækur. 17 og þeir hafa annars verið að gera, heldur eru þeir með annars konar verkefni sem hægt er að hlaupa í. Svona er þetta, hver hefur sína rútínu og sinn drifkraft, og það er líka persónubundið hvað maður þarf mikla þögn og einbeitingu. Sjálf þarf ég stundum að fara upp í sveit og loka mig algjörlega af, en sumt get ég hins vegar vel unnið fyrir framan sjónvarpið.“ Skapi næst Misjafnt hversu ört en í bráðagleði er mér tamast að svipta af mér spjörum sniðganga húsið mitt og hlaupa upp um hálsinn á jöklinum. (Blálogaland, 10) FAÐMLÖG OG LÍKAMAR Fyrsta ljóðabók Sigurbjargar, Blálogaland, hefst á faðmlagi við jökul og hún segist ekki geta neitað því að sumir textarnir hennar séu líkamlegir. „Einhvern tíma þegar ég átti að lýsa bókunum mínum, og fannst þær svo ólíkar að það væri enginn vegur, þá held ég að ég hafi sagt eitthvað á þá leið að fyrsta bókin hafi einmitt verið faðmlag við landið, Hnattfl ug faðmi allan heiminn, Túlípanafallhlífar faðmi skrokkinn og Sólar saga faðmi borgina. Og ef til vill fjalla þá Blysfarir um það að faðma einhvern annan. Sagan sem ég var að klára núna, Stekk, fjallar hins vegar um það hvort maður geti losnað við það að vera í líkamanum. Hvort maður geti kúplað hann frá. Þannig að kannski er ég beinlínis með líkamleikann á heilanum, já! En svo er hægt að ofnota líkamann og ofgera fókusnum á hann; það er til heill kvikmyndaiðnaður sem byggir á því að gera eingöngu út á líkamleika, og þar er voða lítið annað að baki. Ég er hins vegar meira að fjalla um hvernig maður upplifi r lífi ð í gegnum líkamann. Við búum í líkamanum, hann er allt sem við erum. Það er erfi tt að skilja hann frá. En kannski er rökrétt að spá í það hvað gerist ef líkaminn er ekki með, ef hann er meiddur eða tilfi nningalaus. Stekk fjallar um konu sem hefur þessa skrítnu hugmynd um að líkaminn sé gagnslaus og ákveður að setja hann í straff. Af ýmsum sökum er hún búin að fá sig fullsadda af þessum skrokki sem hefur ekki hjálpað til við neitt, en hún er meðvituð um það að líkaminn er hluti af henni. Hún vill refsa sjálfri sér með því að klippa á tengsl sín við líkamann, hún hafnar honum meðvitað og af eigin hvötum; það er hin fullkomna sjálfsstjórn, stjórn á eigin örlögum, að hennar viti. Svo getur maður haft sínar skoðanir á því hvort það sé skynsamlegt eða hvort yfi rleitt sé hægt að stjórna örlögum sínum.“ Verk Sigurbjargar einkennast mörg af þessum pælingum um tengsl okkar við líkamann en ekki síður um tengsl líkamans við umhverfi ð og aðra. Sólar saga fjallar um konu sem verður fyrir ofbeldi og hvort eða hvernig hægt sé að komast yfi r það, í Blysförum er eyðandi sambandi við fíkil lýst en í Brúður hafa undarleg viðmið samfélagsins sín áhrif á sambönd fólks. Það er að minnsta kosti ein leiðin til að lesa Brúður, samsinnir Sigurbjörg; sem ádeilu á yfi rborðskennt umstangið sem fylgir gjarnan brúðkaupum. „Ég veit samt um fólk sem hefur gefi ð hana í brúðargjafi r. Mér fi nnst það alveg magnað og svolítið klárt. Þeir þekkja væntanlega sitt fólk og hvað má. Og í bókinni eru líka vissulega rómantísk móment inn á milli, þótt það sé ekki endilega alltaf kossinn í lokin. Ég er heldur alls ekki að setja neitt út á það að fólk játi hvort öðru ást sína, þvert á móti, en sirkusinn verður oft svo mikill að það er næstum eins og inntakið, þetta fallega, drukkni. Ég hef alltaf fyrirvara gagnvart því þegar öllu er tjaldað til, það er dálítið spes. Því svo þarf líka að huga að hversdagsmatnum á mánudegi, þá er ekki lengur öll þessi hátíðarstemning og hvað, vantar þá alla blossandi ástina, hamingjuna og innlifunina? Ekkert endilega Ef menn eru ekki sammála því að hér eigi að vera kerfi sem úthluti listamönnum launum þá ættu þeir að fara vandlega yfi r kostina og gallana og leggja til hvað skuli frekar gera, en ekki hrópa reglulega upp að þetta sé nú allt of mikið og þessi eða hinn eigi ekki að fá.

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.