Spássían - 2012, Blaðsíða 47

Spássían - 2012, Blaðsíða 47
47 það ást á einstaklingum, en ekki dýrum almennt. Að öðru leyti er þetta væntumþykja sem tengist stjórnun okkar á dýrinu; ef við töpum heilli tegund er eins og við höfum ekki staðið okkur í hlutverki drottnarans og þá skapast óánægja, jafnvel sektarkennd yfi r því að hafa „leyft“ þessu að gerast. Út frá því sjónarmiði verða aðrar dýrategundir næstum því að skrautmunum sem við höldum lífi nu í fyrst og fremst svo við, mannfólkið, töpum ekki hinu fjölbreytilega dýraríki sem á að umlykja okkur. Við viljum geta horft á dýrin, jafnvel þótt við höfum eyðilagt náttúrusvæðin þeirra og gert þeim ómögulegt að lifa „eðlilegu“ eða „villtu“ lífi . Þessi dýr enda í dýragörðum og verða eins og ljósrit af fyrri tilveru, sem dofnar með hverri kynslóð sem fæðist á bak við rimla. Listfræðingurinn John Berger orðaði þetta vel í frægri ritgerð, „Why Look At Animals“ frá 1980: „Í dýragörðum eru dýrin lifandi minnisvarðar um eigið hvarf.“ Ég get ekki hrist burtu tilfi nninguna að við höldum lífi nu í hverfandi dýrum að einhverju leyti af bjagaðri eigingirni frekar en af samúð og vilja til að gera lífi ð sem allra best fyrir þau. Rétt eins og fólkið í skáldsögu Dicks sem heldur dauðahaldi í dýrin sín, ekki aðeins af virðingu fyrir dýrinu heldur líka því það veit að ef dýrið hverfur, þá hverfur eitthvað mannlegt með því. Ef við hugsum aðeins um þessa framtíðarspá Dicks, þá er hún ekki fjarri lagi. Dýrin eru að hverfa og villt svæði eru svo gott sem ekki til lengur. Dýrin hverfa inn í dýragarða eða á rannsóknarstofur þar sem erfðaefni þeirra er safnað saman og geymt í bönkum, svo við getum átt öll dýrin á skrá og mögulega endurskapað þau seinna meir. Er dýrategund virkilega útdauð ef erfðaefnið er varðveitt? Frá sjónarhóli dýrsins væri svarið líklega já, en frá sjónarhóli mannfólks gæti það vel verið nei. Við „eigum“ það enn einhvers staðar. Við framleiðum alidýr og útrýmum þeim endalaust í brjáluðum vítahring, en hugsum ekki um dýr sem einstaklinga fyrr en þau eru allt að því orðin stök og hægt að telja þau á fi ngrum fáeinna handa. Ef við gætum fjöldaframleitt bengaltígra, hvíta nashyrninga, órangútana eða geirfugla á færibandi rétt eins og hvert annað húsdýr, þætti okkur enn vænt um þau? Hvernig myndi hugsun okkar um alifugla breytast ef síðasta hænan í heiminum væri drepin? Við yrðum líklega eins og Rick Deckard, syrgjandi það sem áður var, óskandi þess að rafræna hænan í kofanum uppi á þaki lifnaði við. ANNA Í GRÆNUHLÍÐ eftir L.M. Montgomery astriki.is hin ástkæra unglingabók komin út í nýrri þýðingu klassískt verk í jólapakkann

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.