Spássían - 2012, Blaðsíða 17

Spássían - 2012, Blaðsíða 17
17 og þeir hafa annars verið að gera, heldur eru þeir með annars konar verkefni sem hægt er að hlaupa í. Svona er þetta, hver hefur sína rútínu og sinn drifkraft, og það er líka persónubundið hvað maður þarf mikla þögn og einbeitingu. Sjálf þarf ég stundum að fara upp í sveit og loka mig algjörlega af, en sumt get ég hins vegar vel unnið fyrir framan sjónvarpið.“ Skapi næst Misjafnt hversu ört en í bráðagleði er mér tamast að svipta af mér spjörum sniðganga húsið mitt og hlaupa upp um hálsinn á jöklinum. (Blálogaland, 10) FAÐMLÖG OG LÍKAMAR Fyrsta ljóðabók Sigurbjargar, Blálogaland, hefst á faðmlagi við jökul og hún segist ekki geta neitað því að sumir textarnir hennar séu líkamlegir. „Einhvern tíma þegar ég átti að lýsa bókunum mínum, og fannst þær svo ólíkar að það væri enginn vegur, þá held ég að ég hafi sagt eitthvað á þá leið að fyrsta bókin hafi einmitt verið faðmlag við landið, Hnattfl ug faðmi allan heiminn, Túlípanafallhlífar faðmi skrokkinn og Sólar saga faðmi borgina. Og ef til vill fjalla þá Blysfarir um það að faðma einhvern annan. Sagan sem ég var að klára núna, Stekk, fjallar hins vegar um það hvort maður geti losnað við það að vera í líkamanum. Hvort maður geti kúplað hann frá. Þannig að kannski er ég beinlínis með líkamleikann á heilanum, já! En svo er hægt að ofnota líkamann og ofgera fókusnum á hann; það er til heill kvikmyndaiðnaður sem byggir á því að gera eingöngu út á líkamleika, og þar er voða lítið annað að baki. Ég er hins vegar meira að fjalla um hvernig maður upplifi r lífi ð í gegnum líkamann. Við búum í líkamanum, hann er allt sem við erum. Það er erfi tt að skilja hann frá. En kannski er rökrétt að spá í það hvað gerist ef líkaminn er ekki með, ef hann er meiddur eða tilfi nningalaus. Stekk fjallar um konu sem hefur þessa skrítnu hugmynd um að líkaminn sé gagnslaus og ákveður að setja hann í straff. Af ýmsum sökum er hún búin að fá sig fullsadda af þessum skrokki sem hefur ekki hjálpað til við neitt, en hún er meðvituð um það að líkaminn er hluti af henni. Hún vill refsa sjálfri sér með því að klippa á tengsl sín við líkamann, hún hafnar honum meðvitað og af eigin hvötum; það er hin fullkomna sjálfsstjórn, stjórn á eigin örlögum, að hennar viti. Svo getur maður haft sínar skoðanir á því hvort það sé skynsamlegt eða hvort yfi rleitt sé hægt að stjórna örlögum sínum.“ Verk Sigurbjargar einkennast mörg af þessum pælingum um tengsl okkar við líkamann en ekki síður um tengsl líkamans við umhverfi ð og aðra. Sólar saga fjallar um konu sem verður fyrir ofbeldi og hvort eða hvernig hægt sé að komast yfi r það, í Blysförum er eyðandi sambandi við fíkil lýst en í Brúður hafa undarleg viðmið samfélagsins sín áhrif á sambönd fólks. Það er að minnsta kosti ein leiðin til að lesa Brúður, samsinnir Sigurbjörg; sem ádeilu á yfi rborðskennt umstangið sem fylgir gjarnan brúðkaupum. „Ég veit samt um fólk sem hefur gefi ð hana í brúðargjafi r. Mér fi nnst það alveg magnað og svolítið klárt. Þeir þekkja væntanlega sitt fólk og hvað má. Og í bókinni eru líka vissulega rómantísk móment inn á milli, þótt það sé ekki endilega alltaf kossinn í lokin. Ég er heldur alls ekki að setja neitt út á það að fólk játi hvort öðru ást sína, þvert á móti, en sirkusinn verður oft svo mikill að það er næstum eins og inntakið, þetta fallega, drukkni. Ég hef alltaf fyrirvara gagnvart því þegar öllu er tjaldað til, það er dálítið spes. Því svo þarf líka að huga að hversdagsmatnum á mánudegi, þá er ekki lengur öll þessi hátíðarstemning og hvað, vantar þá alla blossandi ástina, hamingjuna og innlifunina? Ekkert endilega Ef menn eru ekki sammála því að hér eigi að vera kerfi sem úthluti listamönnum launum þá ættu þeir að fara vandlega yfi r kostina og gallana og leggja til hvað skuli frekar gera, en ekki hrópa reglulega upp að þetta sé nú allt of mikið og þessi eða hinn eigi ekki að fá.

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.