Spássían - 2012, Page 18

Spássían - 2012, Page 18
18 – kannski er kjarninn einmitt þar, í mánudeginum. En auðvitað er ég fylgjandi því að fólk geri það sem það langar til á hverri stund, í guðanna bænum; fólk má alveg vera Tom Cruise sem hoppar upp og niður á sófanum hjá frú Winfrey og hrópar: „Ég hef aldrei verið jafn ástfanginn á ævi minni“. Hann mátti það alveg, því að kannski leið honum þannig. En nú er hann samt skilinn.“ GÆTI EKKI SKRIFAÐ LJÓÐ ALLA ÆVI Sigurbjörg hefur ekki aðeins skrifað ljóð, ljóðsögur, smásögur og skáldsögur, heldur líka einleiki fyrir leikhús, einþáttunga og leikgerð Gunnlaðar sögu eftir Svövu Jakobsdóttur. „Ég held að ég myndi fara yfir um ef ég væri bara að skrifa ljóð alla ævi. Maður getur hæglega lokast inni í eigin turni eða setustofu. Svo spretta ljóð oft upp úr aðstæðum sem maður kemur sér í og þá þýðir ekki að vera alltaf inni hjá sér. Það er líka gaman stundum þegar óvæntar beiðnir ráða því sem maður gerir. Til dæmis eins og þegar hringt var í mig þegar ég var stödd í útlöndum og ég beðin að gera leikgerð upp úr Gunnlaðar sögu. Ég varð hissa og spurði: „Hvernig vissuð þið að þetta væri uppáhaldsbókin mín?“ Þá var svarað: „Við vissum það reyndar ekki.“ En þar með var ég búin að svara. Ég gat ekki sleppt þessu. Annars finnst mér stundum líka skemmtilegt ef maður leyfir sér að blanda saman formum. Ég hef dundað mér við að skrifa leiktexta sem er ekki hægt að setja á svið, það eru eiginlega bókmenntatextar – því mér finnst sjálfri gaman að lesa svoleiðis. Þorvaldur Þorsteinsson gaf út svona óleikanleg leikrit, í bókinni Engill meðal áhorfenda, og þau eru alveg frábær. Einu sinni prófaði ég meira að segja að skrifa glæpasögu en datt ekkert betra í hug en að skrifa um dauða ljóðsins. Heilt rannsóknarteymi var mætt inn á gólf á fyrstu síðunni því að Ljóðið hafði fundist dautt. Sem betur fer fékk nú enginn að sjá þá sögu, þetta var mjög furðulegt – og lítið um blóðsúthellingar. Ég held hins vegar að maður eigi almennt ekki að hengja sig í það hvað hlutirnir heita, heldur hafa trú á því að verk sem vill rata eitthvert rati þangað. Mér finnst reyndar skemmtilegt ef þeir eru í vandræðum með að flokka Blysfarir á bókasafninu, eins og þú nefndir áðan. Vissulega er þetta saga og sumum finnst þetta kannski ekki vera ljóð, ég stend samt alveg við að hún sé hugsuð sem ljóð en ekki prósi. Ég man að það velktist einmitt pínulítið fyrir þeim á forlaginu í hvaða flokki hún ætti að vera í Bókatíðindum, og þetta var líka vesen í Þýskalandi, þar enduðu þeir á því að hafa undirtitilinn „Ástarsaga“. En þetta leysir sig sjálft á endanum. Ef þú vilt lesa bókina þá lestu bara bókina.“ EKKI AÐ BÚA TIL SUDOKU Við lestur á Blysförum vaknar sú tilfinning að undir liggi einhvers konar söguþráður, en lesandinn þurfi hins vegar að púsla honum saman. Sigurbjörg segir að efnið hafi þar alveg ráðið ferðinni. „Efnið vildi vera svona, með söguþræði sem ekki er að öllu leyti í réttri tímaröð. Og þá segir maður bara allt í fína og lætur það vera svoleiðis. Ég var ekki meðvitað að búa til sudoku eða krossgátu. Reyndar fékk ég eitt sinn þá hugmynd að gera stærri sögu, sem lesandinn ætti bókstaflega að raða saman upp á eigin spýtur, eða þangað til ég uppgötvaði úti í Póllandi að það hafði auðvitað þegar verið gert. Skáldsagan The Unfortunates eftir B. S. Johnson var þar nýkomin út í pólskri þýðingu og hún er einmitt svona, hún er seld í kassa þar sem finna má 27 lausa kafla sem maður ræður í hvaða röð maður les, að frátöldum inngangi og niðurlagi. Svo man ég að ýmsar svipaðar hugmyndir voru uppi um hýpertexta fyrir sirka 15 árum, þegar internetið var ný bóla. Þær gengu út á að hægt væri að smella á orð í textanum og fara þannig í aðra átt með söguþráðinn. Þetta átti að hafa voða mikil áhrif á eðli bóka, en kallar náttúrlega á að búið sé að skrifa framhaldið, eða réttara sagt öll framhöldin, sem verður mikið maus. Og hýpertextinn tók ekki yfir bókmenntaheiminn. En þetta eru áhugaverðar tilraunir og alla daga velur fólk í raun sínar eigin leiðir til að lesa. Margir byrja að fletta Mogganum aftast og sumir lesa alltaf endinn fyrst í glæpasögum.“ Sigurbjörg segir það hálfgerða tilviljun, fremur en meðvitaða ákvörðun, að Brúður hafi raðast niður á svipaðan hátt og Blysfarir. „Brúður er aðeins öðruvísi, þar er ekki bein framvinda, en það er sama þema í öllum ljóðunum. Þau fjalla öll um konur sem eru að gifta sig, að fara að gifta sig eða rétt búnar að gifta sig. Þetta er ekki alltaf sama brúðurin en ljóðin hanga vissulega saman sem bálkur.“ Skáldsöguna Stekk skrifaði Sigurbjörg að sumu leyti með svipaðri aðferð. „Þó er hún það mikið njörvuð niður í tíma að kaflarnir eru dagsettir og framvindan er skýr. Mér fannst það gott haldreipi. En ég skrifaði hana samt út og suður, og var svo lengi að púsla öllu saman.“ AÐ HREYFA SIG INNI Í TUNGUMÁLI Blysfarir var tilnefnd til Bók- menntaverðlauna Norðurlandaráðs og kom auk þess út á þýsku í fyrra, en Sigurbjörg segir erfitt að meta viðtökurnar þar í landi, sérstaklega vegna alls umstangsins í kringum Einu sinni prófaði ég meira að segja að skrifa glæpasögu en datt ekkert betra í hug en að skrifa um dauða ljóðsins. Heilt rannsóknarteymi var mætt inn á gólf á fyrstu síðunni því að Ljóðið hafði fundist dautt. Sem betur fer fékk nú enginn að sjá þá sögu, þetta var mjög furðulegt – og lítið um blóðsúthellingar.

x

Spássían

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.