Spássían - 2012, Síða 22

Spássían - 2012, Síða 22
22 ÍSLENSK skáldverk sem kalla má hinsegin bókmenntir eru sundurleitur og illa afmarkaður hópur.1 Á síðustu árum hefur umfj öllunarefnið orðið æ algengara en fátt er aft ur á móti vitað um hinsegin bókmenntir á íslensku fyrir 1970. Það þýðir þó ekki að þær séu ekki til. Ástæðurnar fyrir þögninni sem ríkir um þær eru margar; umræðuefnið var tabú, erfi tt var að fá gefnar út bækur um efnið og höfundar þurft u því ýmist að gefa út bækur undir dulnefni,2 fela viðfangsefnið milli línanna – eða hreinlega sleppa því að skrifa um það. Ef þeir skrifuðu of opinskátt um samkynja ástir og þrár áttu þeir á hættu að vera fordæmdir eða, sem var jafnvel líklegra, þaggaðir. Allt veldur þetta því að telja má líklegt að í íslenskum bókahillum og kössum leynist bækur sem hingað til hafa ekki verið taldar hinsegin en eru það samt. Eitt umhugsunarefnið varðandi leitina að hinsegin bókmenntum tengist þeim mun sem er á samkynhneigð í nútímaskilningi og þeim hugmyndum sem fólk hafði um kynlíf og ástir fólks af sama kyni fyrr á öldum og fram á 20. öld. Eldri textar, sem nútímalesanda fi nnst augljóst að fj alla um samkynja ástir, þurfa ekki að hafa verið skrifaðir með slíkt í huga. Við getum því staðið frammi fyrir því að hafa bók í höndunum sem augljóslega fj allar um samkynja ástir í nútímaskilningi en gerir það kannski ekki ef litið er til ritunartímans og þeirrar bókmenntahefðar sem textinn er skrifaður inn í. Hér verður fj allað um eina slíka skáldsögu. UNDRAELDUR „Viltu þá yfi rgefa mig?“ spurði hann með dýpri tilfi nningu en Kjartan hafði grunað, að hann ætti. „Nei, mig langar líka til að vera með þjer, því jeg elska þig, bróðir, meir en nokkurn annan í heiminum […].“ Þá greip Ísvaldur í sárri hugaræsingu utan um Kjartan, og þeir fj ellust í faðma, og Kjartan grjet heitum tárum, sem hrundu niður á brjóst Ísvaldi, og hann hjelt honum föstu taki og þrýsti löngum og heitum kossi á varir hans. En þá sleit Ísvaldur sig lausan og stóð eins og agndofa. Hann var eins og sá, sem algjörlega er frá sjer numinn, og yfi r andlit hans brá fagnaðarljóma, og óvenjulegur roði kom á vanga hans. Hann tók báðum höndum um brjóst sjer og kallaði upp yfi r sig: „Hvað er þetta! Hvað er þetta! Það er eins og sjóðheitur straumur læsi sig um mig allan! Og það er eitthvað, sem berst svo hræðilega um hjerna inni! Og þó líður mjer svo vel.“ Hann stóð grafk yrr, og það var sem undraeldur brynni úr augum hans. „Hvað er þetta! Ætli það sje dauðinn?3 Þessi sena er vissulega bæði dramatísk og hómóerótísk. Vinirnir eru í uppnámi, aðskilnaður er yfi rvofandi en um leið og samband þeirra verður líkamlegt birtir til í huga annars þeirra, ástin/girndin fl æðir um æðar hans og hann reynir að átta sig á þessum óvæntu tilfi nningum sem hann hefur ekki fundið fyrir áður, í það minnsta ekki svo greinilega. Flestir lesendur koma væntanlega auga á hvort tveggja ást og líkamlega þrá milli þessara tveggja karla og fl est bendir til þess að þessi texti fj alli um ástir homma. Málið er þó ekki svo einfalt. SAGAN UM SÖLVA Textinn sem hér um ræðir er tekinn úr skáldsögunni Sölvi (1947–1948) eft ir séra Friðrik Friðriksson (1868–1961), æskulýðsfrömuð og einn áhrifamesta og virtasta Íslending fyrri hluta 20. aldar.4 Séra Friðrik var hámenntaður maður, kennari og prestur, og hann helgaði líf sitt félagsstarfi fyrir drengi og unga menn. Hann stofnaði Kristilegt félag ungra manna (KFUM) árið 1899 og raunar einnig Kristilegt stúlknafélag sama ár, sem síðar varð KFUK. Út frá unglingastarfi KFUM stofnaði hann Knattspyrnufélagið Val árið 1911 og seinna átti hann upptök að sumarbúðastarfi , stofnun fyrsta karlakórsins á Íslandi, skátahreyfi ngar, UM MÖGULEGA HINSEGIN SKÁLDSÖGU EFTIR ÁSTU KRISTÍNU BENEDIKTSDÓTTUR það var sem undraeldur brynni: E 23 lúðrasveitar, tafl félags og fl eira. Hann var afar virtur og vinsæll maður og var meðal annars sæmdur stórkrossi Hinnar íslensku fálkaorðu. Sagan um Sölva varð til þegar Friðrik vantaði fundarefni handa unglingadeild KFUM. Í eft irmála að skáldsögunni segist hann hafa skrifað fyrsta kafl ann fyrir fund í byrjun nóvember 1926 og lesið kafl a á hverjum fundi þar til í febrúar 1930. Hann segist aldrei hafa skipulagt hana fram í tímann og að hann hafi verið jafnspenntur fyrir framhaldinu og drengirnir. Skáldsagan ber þess glögg merki að hafa orðið til á þennan hátt; byggingin er lausleg og útúrdúrar margir, enda sagðist séra Friðrik aldrei hafa ætlast til þess að hún kæmi út.5 Margir Íslendingar þekktu söguna um Sölva því vel áður en hún kom út og biðu þess með óþreyju að hún birtist á prenti, enda seldist fyrra bindið upp á örstuttum tíma fyrir jólin 1947. Sölvi er söguleg skáldsaga og gerist á 18. öld. Þar segir frá Sölva, ungum munaðarlausum dreng sem fi nnst nær dauða en lífi á fl ótta frá vondum húsbændum og er tekinn í fóstur af góðhjörtuðum manni og syni hans í Kaldárseli, nálægt Hafnarfi rði. Sagan fylgir honum fram á fullorðinsár en Sölvi fer í vinnumennsku norður í Skagafj örð þar sem hann fi nnur móðurfólk sitt, er styrktur til náms, eignast jörð og verður trúnaðarsendimaður biskupsins á Hólum. Hann er loks sendur í nám til Danmerkur, ferðast vítt og breitt um Evrópu og í ljós kemur að hann er hvorki meira né minna en sonur dansks greifa. Sölvi er þannig gerður að allir elska hann og vilja hjálpa honum; hann er óskaplega næmur ungur maður, hrífst af fallegri náttúru og er trúr öllum kristilegum siðferðisgildum. Hann breytir alltaf rétt, fyrirgefur óvinum sínum, er góður við alla, bjargar oft ar en ekki fólki úr lífsháska, handsamar glæpamenn og tekur á áfengisvandamáli rektorsins á Hólum, svo fátt eitt sé nefnt. Sölvi er þannig afar dæmigerð söguhetja drengjabóka frá fyrri hluta 20. aldar; fullkomin fyrirmynd ungra drengja, og tekst allt sem hann tekur sér fyrir hendur, en er engu að síður einsleitur – og fremur leiðinlegur – karakter. ÁSTIR SÖLVA Greinilegt er að Sölvi hefur mun meiri áhuga á körlum en konum og hið sama má segja um söguhöfund skáldsögunnar, því sárafáar konur eru nefndar á þeim 700 blaðsíðum sem skáldsagan telur og þær hafa lítil áhrif á gang mála eða Sölva sjálfan. Sölvi á aft ur á móti náinn vin, Sigurð, en þeir deila rúmi, ganga í fóstbræðralag að fornum sið og eru saman öllum stundum áður en Sölvi fer til Danmerkur í skóla. Í upphafi seinna bindis er Sölvi orðinn fullorðinn og kemur aft ur heim til Íslands en þá kemst hann að því að Sigurður hefur snúist gegn honum, logið upp á hann og gifst heitkonu hans, Steinunni. Ekki nóg með það heldur kemur Sigurður af stað orðrómi um að Sölvi sé göldróttur, Sölvi verður smám saman óvinsæll og ofsóttur og á endanum kærður fyrir morð. Að lokum sannast þó sakleysi hans og þeir Sigurður sættast fullum sáttum. Samband Sölva og Sigurðar er annar af tveimur megin spennuvöldum í skáldsögunni6 og í raun eins upp byggt og sambönd gagnkynja para í hefðbundnum ástarsögum. Parið er ástfangið, misskilningur eða rógur verður til að þeim sinnast þótt ástin hverfi aldrei og að lokum kemst sannleikurinn upp á yfi rborðið og parið sameinast á ný. Sambönd Sölva og Sigurðar við konur eru aft ur á móti fá og fyrirferðarlítil og mun tilfi nningasnauðari en vinátta fóstbræðranna. Sölvi og Steinunn tala saman í örfá skipti áður en hann fer út og heitbindast án þess að nokkur snerting hafi átt sér stað. Eft ir að Steinunn gift ist Sigurði er Sölvi aldrei við kvenmann kenndur og sýnir í raun engan áhuga á konum þar til hann hittir barónsdótturina Agnesi sem hann er trúlofaður í sögulok. Innilegustu samskipti Sölva og Agnesar sem sagt er frá eru þó aðeins eitt faðmlag og samtöl en engir kossar. Þegar Sölvi er á heimleið eft ir skólavistina í Danmörku er Sigurður honum efstur í huga en honum virðist vera nokkuð sama um Steinunni. Þegar hann fréttir svik Sigurðar verður hann ekki reiður heldur sorgmæddur, þráir ekkert heitar en að þeir verði vinir á ný og segir meðal annars við vin sinn: Jeg elskaði þig sem drengur heitar en hægt er að elska bróður. Þú varst upphaf hamingju minnar. Þú varst mjer það, sem Jónatan var Davíð, meir mat jeg vináttu þína en konuást.7 Þegar þeir loksins ná sáttum eft ir langa mæðu, dómsmál og harkaleg slagsmál, eru tilfi nningarnar sterkar: Sölvi settist niður og tók höfuð Sigurðar og lagði það upp að sjer. Hann strauk með hendinni um enni hans, og í strokunum lá nákvæmni og ástúð næstum því móðurlegra atlota. Þeir voru í þessum sömu skorðum nokkra stund alveg þegjandi. Hönd Sölva hvíldi ljett á enni Sigurðar, og inni fyrir ómuðu ótöluð orð: „Bróðir minn, vinur minn!“ Báðir voru eitthvað svo undur sælir, án þess að geta gjört sjer grein fyrir tilfi nningum sínum. Þeir reyndu ekki til þess einu sinni. […] Loks um miðaptan stóðu þeir upp og tókust í hendur fast og innilega; þeir horfðust í augu, og svo lagði Sölvi hendur um háls Sigurði, og þeir föðmuðust og kysstust bróðurkossi, hinum fyrsta síðan þeir voru unglingar.8 Samband fóstbræðranna er því bæði tilfi nningaþrungið og líkamlegt – og gerólíkt samböndum þeirra við konur. Áður en sú ályktun er dregin að Sölvi og Sigurður séu samkynhneigðir er þó nauðsynlegt að glöggva sig á hugmyndum um rómantíska vináttu karla. Greinilegt er að Sölvi hefur mun meiri áhuga á körlum en konum og hið sama má segja um söguhöfund skáldsögunnar.

x

Spássían

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.