Spássían - 2012, Qupperneq 26
26
ÓÐINSAUGA ER EIN ÖFLUGASTA
ÚTGÁFA BARNABÓKA Á ÍSLANDI
SEM ÆTLAÐAR ERU YNGSTU
LESENDUM. SPÁSSÍAN SETTIST
NIÐUR MEÐ EIGANDA HENNAR OG
STOFNANDA, HUGIN GRÉTARSSYNI,
OG FO RVITNAÐIST UM ÞAÐ HVERS
VEGNA VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR FÓR
ALLT Í EINU AÐ SKRIFA BARNABÆKUR.
„ÉG var reyndar markaðsstjóri hjá
Prentsmiðjunni Odda á sínum tíma
og þekkti aðeins inn á bransann. Ég
var áður verðbréfamiðlari en var
frekar til í að gera eitthvað skapandi
heldur en að sitja við skrifborð allan
daginn. Ég elska viðskipti en það er
ekki líkt því eins gaman að stunda
þau og vera í útgáfu. Ætli maður
hafi ekki alltaf verið að dunda við
að skapa. Ég byrjaði að skrifa eina
bók og þegar maður er farinn af
stað byrjar maður á annarri.“
Alls hefur Huginn skrifað 21
barnabók en fyrsta bókin sem hann
gaf út var ferðasagan Háskaför
um Suður-Ameríku þar sem hann
deildi reynslu sinni af ferðalögum
um heimsálfuna. „Ég sendi hana á
JPV og þeir sögðu að það kæmi
til greina að gefa hana út en ekki
fyrr en á næsta ári. Ég hafði ekki
þolinmæði til að bíða, m.a. vegna
þess að í bókinni voru tímatengdir
atburðir. Ég hafði lent í uppreisn sem
var þá nýhafi n í Ekvador og mér
fannst ég þurfa að koma þessari
frásögn strax frá mér. Þannig
byrjaði ég að gefa út eina bók.“
Huginn segir að það hafi ekki
verið auðvelt að byggja upp
útgáfuna en núna sé hún komin
á gott ról. „Barnabókaútgáfa á
Íslandi er erfi ð. Það gekk vel í fyrra
og í ár er ég með það mikið af
efni, alls 24 bækur, að ég býst við
að maður sé kominn á fl ug.“ Hann
segir að það sé metnaður frekar
en gróðavon sem drífi starfsemina
áfram. „Það er erfi tt að útskýra það
en mann langar til að koma hlutum
frá sér. Langar til að hafa eitthvað
um hlutina að segja þannig að þetta
er það sem maður endar í – erfi ðri
baráttu. Það er ekki nóg að vanda
sig og gera hlutina vel. Það verður
líka að passa upp á kostnaðinn. Ég
er einn með útgáfuna en er svo með
15-20 manns sem vinna að ýmsu sem
verktakar; við yfi rlestur, þýðingar,
vefsíðuhönnun, myndskreytingar
o.þ.h.“
Barnabókum fylgja gjarnan
myndskreytingar og eru bækurnar
frá Óðinsauga allar mjög litríkar
og lífl egar á að líta. Huginn sér
sjálfur um að myndlýsa fyrir allar
bækurnar. „Ég dreg upp skissur af
því hvernig teikningarnar eiga að
vera og sendi til teiknaranna sem
gera þær fallegri og í lit. Svo fer ég
yfi r verkin og læt breyta og laga
og svo framvegis.“
Stór hluti þeirra barnabóka
sem Óðinsauga gefur út er mynd-
skreyttur af erlendum listamönnum.
„Ég byrjaði að sækjast eftir þeim
hér heima en þeir sem mér þótti
spennandi voru fastir hjá stóru
forlögunum og ég fékk ekki jákvæð
svör. Ég er þó með nokkra og hef
t.d. gefi ð út bækur sem Karl Jóhann
Jónsson myndskreytir. Hann er með
þrjár bækur í ár og var með eina
í fyrra.“
„alltaf boðskapur
í því sem maður segir“
EFTIR ÁSTU GÍSLADÓTTUR