Spássían - 2012, Qupperneq 31
31
að ég er líka með asma. Asmi er ekki mjög alvarleg
fötlun í nútímanum – og þó eru býsna mörg illmenni með
asma, nógu mörg til að það verði að telja hann með – og
ég hef tamið mér að líta ekki á hann sem fötlun. Þrátt
fyrir nærsýnina og asmann svara ég alltaf nei þegar
ég er spurður hvort ég sé fatlaður, við myndum líklega
gera það flest. En kannski ekki með réttu því að bilið
milli fatlaðs og ófatlaðs er stundum ekki breitt. Og asmi
illmennisins minnir okkur á að asmi getur verkað sem fötlun
í afþreyingarsögu. Asmi getur verið hluti af vel heppnuðu
illmenni. Enda getur andardráttur asmasjúklings orðið
verulega hræðilegur, ekkert síður en kryppa.
Ég er ekki fullkominn. Kannski er það fyrsta skrefið
gegn fordómum að segja það við sjálfan sig. Ég er
nærsýnn, ég er með asma, ég er þunglyndur, ég er með
skapgerðargalla. Allir hafa einhverja galla og hræðslan
við fötlun er kannski birtingarmynd óskaplegrar hræðslu
við að horfast í auga við gallana. Kannski er það ímyndun
okkar að við séum heil heilsu. Kannski eru fatlaðir ekkert
öðruvísi. Einn er kannski heyrnarlaus, annar er skilningslaus
og þann þriðja skortir ímyndunarafl. Hver er mesta
fötlunin?
Andspænis hinum fötluðu illmennum í afþreyingarsögum
nútímans (og þegar ég segi saga meina ég líka
kvikmyndir og sjónvarpsþætti) mætti tefla annars konar
fötluðu fólki. Guðirnir eru nefnilega líka fatlaðir. Óðinn er
sjálfur eineygður, sonur hans er blindur, Týr er einhentur,
Heimdallur hefur hugsanlega látið heyrn sína. En fatlaður
guð er samt guð. Fötlunin virðist ekki rýra krafta hans á
neinn veg. Og kannski er það þetta sem guðirnir geta
en við getum ekki. Þeir geta viðurkennt að þeir séu
ekki heilir og ekki fullkomnir og samt geta þeir verið
guðir. Goðsögurnar eru þannig vísbending um annan
hugmyndaheim sem við höfum þó ekki fullan aðgang
að, þar sem fötlun er ekki endilega veikleiki illmennisins
heldur jafnvel styrkur guðsins. Þetta sjáum við ekki aðeins í
goðsögum Snorra-Eddu heldur líka í sjálfri Njáls sögu þar
sem söguhetjan er öðruvísi en aðrir karlmenn af því að
henni vex ekki skegg.
Ef til vill væri það verðugt verkefni nútímamanna sem
vilja sigrast á fordómum sínum gegn fötlun að segja sem
svo: Hin fullkomna manneskja er goðsögn. Við erum öll
brotin. Við erum öll óheil. Og samt erum við heilbrigð því
að manneskjan er gölluð og þó heilbrigð, hún lifir með
göllum sínum, bæði stórum og smáum. Stundum eru þeir
smávægilegir eins og gleraugu sem kosta að vísu bæði
tíma og örlitla fyrirhöfn, þó svo lítilfjörlega að sá sem
notar gleraugu hættir von bráðum að taka eftir henni.
Aðrar fatlanir eru svo alvarlegar að það er ekki hægt
að leiða þær hjá sér og sumar svo alvarlegar að þær
hljóta að voma yfir öllu lífinu. En samt er fötluð manneskja
ekki jafn stórkostlega öðruvísi, jafn framandi og fötluðu
illmennin í sögunum gefa til kynna. Þess vegna er rangt að
flokka fólk í fatlað og ófatlað, að geira það af í dilkum
sem það fær aldrei sloppið úr. Kannski er nær að spyrja
alla: Hver er þín fötlun?
Það þýðir ekkert að fjandskapast við handalausa
illmennið úr Bondmyndinni því að við bjuggum hann sjálf
til úr ótta okkar og vanmætti gagnvart hugmyndinni um
fötlun. Sá ótti getur líka verið lamandi, ekkert síður en
fötlunin sjálf.
Erindið var upphaflega flutt á ráðstefnunni Listir, menning og
fötlun í Norræna húsinu 9. mars 2007.
www.borgarbokasafn.isSími 411 6100
Leshringir
Hjá Borgarbókasafni starfa leshringir sem eru öllum opnir
á meðan pláss leyfir. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt,
hafi samband við umsjónarmenn.
GLÆPASÖGUR
Hvenær: Fyrsta fimmtudag í mánuði, kl. 17.15-18.15.
Hvar: 5. hæð aðalsafns, Tryggvagötu 15
Umsjón: Ingvi Þór Kormáksson,
ingvi.thor.kormaksson@reykjavik.is
KONU- og KARLABÆKUR
Hvenær: Fyrsta miðvikudag í mánuði, kl. 16.15-17.15
Hvar: Ársafn, Hraunbæ 119
Umsjón: Jónína Óskarsdóttir, jonina.oskarsdottir@reykjavik.is
GAMALT OG GOTT
Hvenær: Þriðja þriðjudag í mánuði, kl. 17.15-18.15
Hvar: 5. hæð aðalsafns, Tryggvagötu 15
Umsjón: Fríða Magnúsdóttir, fritha@simnet.is
HEFUR ÞÚ HUG EÐA HUGMYND?
Ef þú hefur hug á að stofna leshring erum við reiðubúin að
bjóða fram húsnæði safnsins á afgreiðslutíma þess.
Einnig eru allar hugmyndir að lestrartengdum verkefnum vel
þegnar. Nánari upplýsingar hjá Guðríði sem hefur netfangið:
gudridur.sigurbjornsdottir@reykjavik.is.
1 Shakespeare, William, Leikrit VI, þýð. Helgi Hálfdanarson, Reykjavík,
Heimskringla,1975.