Íþróttablaðið - 01.12.1948, Blaðsíða 17
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
7
Herma Baume, Austurríki, sigurvegari
í spjótkasti.
4. V. Kade-Koudijs, Hollandi .... 5,57
5. N. J. Karelse, Hollandi ......... 5,54
6. K. M. Russell, Jamaica .......... 5,49
1 fjarveru heimsmethafans, Blankers-
Koen, sem var upptekin í grindahlaupi,
varð langstökkskeppnin mjög jöfn og
spennandi. Reynslukeppnin fór fram 4.
ágúst kl. 11 f. h. en aðalkeppnin síðar
um daginn. Af um það bil 30 þátttakend-
um komust 12 I aðalkeppnina og höfðu
þó ekki allar náð hinu tilskilda lág-
marki, 5,30 m. Hinsvegar tókst nokkr-
um ekki að ná jafn góðum stökkum í
síðara skiptið og má þar nefna þær
Curtet-Chabot, sem setti franskt met
(5,64) í reynslustökkinu og Russell frá
Jamaica er stökk 5,60 m. Er ekki ó-
hugsandi að atrennubrautin hafi brugð-
ist og versnað eftir því sem leið á keppn-
ina, svipað og átti sér stað hjá körlum
bæði í langstökki og þrístökki.
Þótt Gyarmati stykki 30 cm. styttra
en hún hefir áður gert, sigraði hún all-
örugglega. Höfðu þó ýmsir reiknað með
því að Kade-Koudijs yrði henni skeinu-
hætt. Hún varð nú að láta sér lynda að
missa af bronceverðlaununum aðeins %
cm. á eftir hinni geðþekku Önnu Ley-
man, sem setti nýtt sænskt met. Mældist
stökk hennar 5,57,5 og þótt alþjóðareglur
mæli svo fyrir að hálfum centimetrum
skuli sleppt, vann Leyman bronceverð-
launin á þessum % cm. Þar sem þetta
er í fyrsta sinn sem langstökk kvenna
er tekið með í Olympíuleikunum, er á-
rangur sigurvegarans nýtt Olympsmet.
HÁSTÖKK:
Heimsmet: 1,11 m. Blankers-Koen, Holl.
Olympsmet: 1,65 m. Shiley og Didrikson
Bandaríkjunum 1932.
1. Alice Coachman, U. S. A.......1,68
2. Dorothy Tyler, Bretlandi ..... 1,68
3. M. Ostermeyer, Frakklandi .... 1,61
4. V. R. Beckett, Jamaica ....... 1,58
5. D. M. Dredge, Kanada ......... 1,58
6. B. Crowther, Bretlandi ....... 1,58
Þessi síðasta frjálsíþróttakeppni leik-
anna var einkennandi fyrir þá tvísýnu
og taugaæsandi keppni, sem þessir 14.
Olympíuleikar höíðu upp á að bjóða.
Þær voru 19 stúlkurnar, sem hófu keppn-
ina klukkan að ganga fjögur laugardag-
inn 7. ágúst, skömmu eftir að Maraþon-
hlaupararnir höfðu yfirgefið leikvang-
inn, en hálfum fjórða tíma síðar um 7
leytið, stóðu enn tvær eftir í valnum og
börðust upp á líf og dauða. Hinar 17
Gyarmati, Ungverjalandi, sigurvegari í
langstökki.
Alice Coachman, Bandaríkjunum, vinn-
ur hdstökkiö.
höfðu smátt og smátt fallið úr og yfir
1,58 komust 6. Þá hafði verið hækk-
að í 1,61, en aðeins 3 stokkið þá hæð.
Góðkunningi okkar Ostermeyer, sem var
fleira til lista lagt en að kasta og leika
á píanó fór yfir í öðru stökki og loks
svertingjastúlkan Alice Coachman frá
Bandarikjunum og brezk tveggja barna
móðir, Dorothy Tyler, sem báðar flugu
yfir í 1. stökki. Næstu hæð 1,64 felldi
Ostermeyer þrisvar og var þar með úr
keppninni. Afrek hennar 1,61 m., er nýtt
franskt met. Verður frammistaða henn-
ar, að sigra í 2 greinum og verða nr. 3
í þeirri þriðju, að teljast frábær, enda
gekk hún næst Blankers-Koen á þessum
leikum.
Coachman og Tyler fóru báðar yfir
1,64 og var þá hækkað í 1,66 m. Fóru
þær einnig yfir þá hæð og settu þar
með nýtt Olympíumet. Fór nú að fara
um áhorfendur, sem biðu eftir að fá
úrslit í þessari tvísýnu keppni. Nú var
hækkað í 1,68 m. og Coachman tók sér
stöðu. En það leið langur tlmi áður
en hún fór af stað í atrennuna og bætti
slík bið ekki taugaspenninginn í áhorf-
endum. Loks hljóp hún af stað og vatt