Íþróttablaðið - 01.12.1948, Blaðsíða 47
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
37
9
Vf *
%
%
FYRSTA LANDSKEPPNI ÍSLENDINGA í FRJÁLSUM ÍÞRÓTTUM
Eins og áður hefir verið getið hér í
blaðinu, háðum við Islendingar okkar
fyrstu landskeppni i frjálsíþróttum 26.
og 27. júní s.l. i Reykjavík. Voru Það
írændur okkar Norðmenn, sem við átt-
um í höggi við og reyndust ofjarlar okkar
að þessu sinni.
Vegna þrengsla í blaðinu hefir ítar-
leg frásögn af þessari landskeppni orð-
ið að bíða þar til nú og er því orðin
nokkuð á eftir timanum. Verður því
aðeins stiklað á því stærsta að þessu
sinni, enda hafa dagblöðin, vikublöðin
og Sport, Þegar gert keppninni hin beztu
skil .
Norska landsliðið kom hingað 25. júní
og hlaut hlýjar viðtökur framkvæmda-
nefndar og annarra iþróttaleiðtoga. f
liðinu voru alls 24 keppendur. Farar-
stjórar voru Olav Tendeland, formaður
norska frjálsíþróttasambandsins og Kr.
Schau úr stjórn þess, en þjálfari John
Armand Christiansen.
Um kvöldið var þeim haldið móttöku-
samsæti í Tjarnarcafé. Jens Guðbjörns-
son form. framkvæmdanefndar, Ben. G.
Waage forseti fSl og Jóhann Bern-
hard varaformaður Frjálsiþróttasam-
bandsins héldu þar ræður og buðu hina
norsku gesti velkomna, en Olav Tende-
land þakkaði fyrir þeirra hönd.
Sjálf keppnin hófst svo daginn eftir
kl. 4 e. h. og lauk á sunnudag um sama
Eftir Jóhann Bernhard
leyti. Áður en keppni hófst fyrri dag-
inn gengu íþróttamennirnir í einfaldri
röð inn á völlinn með þjóðfána sína í
broddi fylkingar. Jens Guðbjörnsson
mælti nokkur ávarpsorð og þjóðsöng-
varnir voru leiknir. Ung stúlka færði
Norðmönnunum blómvönd og síðan hófst
keppnin.
Fyrri dagur. — Góð byrjun.
Flestum á óvart unnum við tvöfaldan
sigur í 200 metra hlaupinu og var það
ef til vill því að þakka að Norðmenn-
irnir voru mjög seinir að átta sig á
skipunarorðum ræsis og „lá“ annar
þeirra, Johnnsen, gersamlega eftir í
viðbragðinu. Haukur bar mjög af, en
Bloch og Trausti háðu harða baráttu um
2. sætið. Tókst Trausta að verða tæpum
metra á undan við mikil fagnaðarlæti
áhorfenda. Johansen hljóp mjög rösk-
lega síðari hluta hlaupsins. Tími Hauks
var prýðilegur, því golan var á móti
fyrir beygjuna. Stig: ísland 8 Noregur 3.
Norömenn liaröari í hástökJcinu.
Norðmennirnir reyndust mun betri
en búist var við og stukku 3 til 5 cm.
hærra en þeir höfðu áður gert á sumr-
inu. Kolbeinn féll út á 1,85, en hinir 3
fóru allir yfir 1,90 m. Þegar Norðmenn-
irnir höfðu báðir stokkið næstu hæð,
1,93 m., var eins og Skúli missti sjálfs-
traustið, enda hefði hann þá þurft að
stökkva 1,95 til að vinna. Við 3. tilraun
á 1,93 var hann þó yfir ránni, en snerti
hana aðeins með öxiinni og það nægði.
Leirud reyndi ekki hærra en 1,95 vegna
rigningarinnar, sem kom í lok hástökks-
ins, en hann virtist ekki taka nærri sér.
Stökklag hans er allsérkennilegt, ekki
ósvipað og hjá Bolinder. Paulson er mjög
efnilegur nýliði, notar veltustílinn og
hvolfir sér yfir rána (líkt og Jón Ólafs-
son!) Skúli brást ekki vonum manna,
en hér var við ofurefli að etja. Afrek
Leirud’s er nýtt vallarmet. Nú voru
stigin orði jöfn aftur 11:11.
Vallarmet í 800 m. hlaupi.
Við Vade þýddi vitanlega ekkert að
reyna, en ef Óskar hefði verið betur
fyrirkallaður (hafði lítið æft vegna bein-
himnubólgu) hefði annað sætið átt að
vera örugt. Að vísu hafði Óskar foruzt-
una fyrri hringinn (56,5) en þá skelltu
Norðmennirnir sér fram úr og stungu
hann blátt áfram af. Var unun að sjá
hve vel og skynsamlega þeir hlupu. —
Tíminn er nýtt vallarmet. — Stigin:
Noregur 19 — ísland 14.