Íþróttablaðið - 01.12.1948, Blaðsíða 35
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
25
Myndin til hægri sýnir einkennilegasta
mark, sem sett hefir verið í knattspyrnu.
Það var frá undanúrslitaleiknum milli
Svía og Dana. Carlson CSvíþjJ sendi
knöttinn í tómt mark Dananna, en þar
tók Gunnar Nordahl á móti honum. —
Hafði honum dottið það snjállræði í
hug að hlaupa inn í markið til þess að
verða ekki rangstæður. Nielsen markv.
Dana liggur í grasinu og horfir á. ■—
meira upp úr vörninni en sókninni og
var því ekki um nein verulega hættuleg
upphlaup að ræða fyrst í stað. Þegar
10 til 15 mín. eru liðnar af leiknum
fara Svíar að sækja á. Þeir ná góðum
upphlaupum, en flest stranda þau á
vörn Júgóslava eða þá á markverðin-
um. 1 einu þeirra tekst þó G. Green h.
innfrh. Svía, að leika sig „frían“ inn á
vítateig og skora með föstu og óverjandi
skoti I hornið 1:0.
Skömmu seinna ná þeir aftur góðu
upphlaupi, sem endaði með skoti í stöng-
ina og rétt á eftir enn öðru, sem endaði
með skoti framhjá.
Júgóslavar fara fyrst að ná góðum
tökum á leiknum, þegar 15 mín. voru
eftir af fyrri hálfleik. Þá ná þeir sínum
stutta og örugga samleik og leika oft
snilldarlega vel alveg upp að vítateig,
eða jafnvel inn fyrir hann, en þegar
þangað er komið, vantar einhvern til
að reka smiðshöggið á upphlaupið, þ. e.
að koma knettinum í netið. Þegar tæpar
5 mín. voru eftir af fyrri hálfleik tekst
þó miðframh. þeirra að koma föstu
skoti á mark Svíanna, sem markv. þeirra
fékk ekki varið, 1:1. Júgóslavar héldu
uppi látlausri sókn það sem eftir var af
hálfleiknum, en tókst ekki að skora
fleiri mörk, þrátt fyrir það, þó að þeir
kæmust tvisvar sinnum í „dauðafæri".
Svíar áttu meira í fyrri hálfleik, eða
fyrstu 30 mín., en Júgóslavar höfðu yfir-
Myndin í miðið sýnir þegar verðlaun
voru afhent fyrir knattspyrnuna. Júgó-
slavar eru næstir, Svíar í miðið og Danir
lengst í burtu. — Neðsta myndin er af
Olympíusigurvegurum Svía. Frá v.: aft-
ari röð: Kjell Rosen, Gunnar Gren, Bertil
Nordahl, Gunnar Nordahl, „Garvis“ Carls
son og Nils Liedholm. Fremri röð: „Bian“
Rosengren, Börje Leander, Torsten Lind-
berg, Erik Nilsson og Sune Andersson.