Íþróttablaðið - 01.12.1948, Síða 21
IÞRÓTTABLAÐIÐ
11
James McLane, Bandaríkjunum, sigurvegari í 1500 m. sundi.
metið hans, sem er sett hér heima í 25
m. laug er aðeins 5:04,7 mín. Samsvar-
ar það um 5:11,0 mín. á 50 metra braut
Wembleylaugarinnar svo Ari hefir raun-
verulega verið 5,4 sek fyrir „neðan“ sitt
bezta að þessu sinni.
1 undanúrslitunum daginn eftir, urðu
þau úrslit að McLane vann fyrri riðil-
inn á mun lakari tíma en í undanrásun-
um (4:49,5). en Marshall og Mitro voru
fast á eftir (4:50,0 og 4:50,8) 4. varð
Bretinn Hale á 4:51,4 og komst hann líka
í úrslit. I siðari riðlinum var Kadas
fyrstur á prýðilegum tíma. (4:47,8) eft-
ir harða keppni við Smith (4:48,4) og
Jany (4:51,3). 4. maður í riðlinum, Yan-
torno Argentinu, slapp inn í úrslitin
þótt tími hans væri ekki betri en 4:57,3
mín. Annars var auðséð á þessum riðl-
um, að beztu mennirnir hugsuðu fyrst
og fremst um að vera ekki aftar en 3.
og minna um tímann og sigurinn.
Kvöldið eftir, 4. ágúst, fóru úrslitin
loks fram og urðu nokkuð óvænt eins og
fleiri úrslitasund þessara leika. Smith
kom á óvart með því að taka foruztuna
strax í byrjun og fara geyst. Eftir 100 m.
var hann langfyrstur (timi 1:06,0), Jany
og Yantorno næstir, þá Marshall og loks
Kadas ög McLane, (sem syndir allra
manna bezt skriðsund), samhliða rétt á
eftir. Þegar sundið var hálfnað er Smith
enn fyrstur (2:15,0), en nú er McLane
loks kominn í annað sætið (2:21,0) rétt
McLane og William Smith að lfiO m.
sundinu loknu.
á undan Jany, Marshall og Yantorne.
Við 300 metra markið er Smith vel fyrst-
ur, en þá er McLane búinn að losa sig
við hina keppinautana og farinn að
draga ört á hann. Marshall er í 3. sæti,
Mitro í 4. og Jany í 5, en Kadas að
byrja sinn fræga endasprett. Smith snýr
við í síðasta sinn og á enn það mikið eft-
ir, að sigur hans kemst aldrei í verulega
hættu. McLane gerir þó sitt ítrasta til
þess að ná honum, en það er gersamlega
árangurslaust. Marshall tekst að halda
3. sætinu góðan spöl á eftir, en Kadas,
sem var nýbúinn að fara fram úr Jany
og Mitro, dró mjög á hann. Sundinu er
lokið, Smith hafði sigrað óvænt en glæsi-
lega og sett nýtt Olympíumet og bætt
árangur McLane um 1,2 sek. Sá síðar-
nefndi hefði þó kannske getað unnið ef
hann hefði farið hraðar af stað en 1500
metra sundið var eftir, og það var hans
bezta vegalengd.
William Smith hefir verið með beztu
sundmönnum heimsins undanfarin 6 ár
og átti lengi heimsmetið í 400 m. (4:38,5)
en er nú methafi í 800 m. (9:50,9).
1500 M. FRJÁLS AÐFERÐ.
Heimsmet: 18:58,8 mín. F. Amano, Japan
Olympsmet: 19:12,1^ mín. K. Kitamura, J.
1. James McLane, Bandaríkj. . . 19:18,5
2. John Marshall, Ástralíu.... 19:31,3
3. Gyorgy Mitro, Ungverjal. . . 19:43,2
4. Gyorgy Csordas, Ungverjalandi 19:54,2
5. Marjan Stipetic, Júgóslaviu . . 20:10,7
6. Forbes Norris, Bandaríkjunum 20:18,8
7. Donald Bland, Bretlandi .... 20:19,8
8. William Hausner, Bandarikj. . 20:45,4
5. ágúst hófust undanrásirnar í 1500
m. sundinu og voru tvískiptar eins og
i 400 m. Fyrstu 3 riðlarnir fyrir há-
degi, en hinir 3 eftir hádegi. Þar sem
keppendur voru 40 urðu þeir, sem kom-
ust í úrslit að synda vegalengdina þrisv-
ar á þrem dögum í röð.
Bezta undanrásatímanum náði Ástra-
liupilturinn Marshall, 20:01,1 mín. en af
öðrum sigurvegurum bar mest á hinum
bráðefnilega og stílfallega Csordas frá
Ungverjalandi, 20:06,8, landa hans Mitro,
20:15,0, Júgóslavanum Stipetic, 20:10,1,
og loks McLane, 20:17,7, sem fór sér að
engu óðslega en hugði gott til glóðar-
innar þegar til úrslitanna kæmi.
1 undanúrslitunum daginn eftir urðu
keppendurnir að taka meira á, en þó
hafði skipast það vel niður í riðlana að
um verulega harða keppni varð ekki að
ræða. Marshall vann fyrri riðilinn á
19:53,8. Mitro varð annar á 20:06,5,
Stipetic þriðji, 20:12,9, og Hausner fjórði
20:23,9. Seinni riðilinn vann McLane á
heldur betri tíma 19:52,2. Ungverjaundrið
Ccordas var næst á 20:06,6, Bandaríkja-
maðurinn Morris þriðji á 20:09,3 og Bret-
inn Bland, 15 ára, fjórði á 20:19,8 min.
Þessir 8 menn kepptu svo í úrslitunum
daginn eftir, 7. ágúst, með þeim árangri
sem að framan greinir. Það var auð-
séð að McLane hafði látið 400 metra
sundið sér að kenningu verða og tók
strax foruztuna ásamt Mitro fyrstu 200
metrana. Csordos, Marshall og Bland
komu svo með stuttu millibili rétt á
eftir foruztusauðnum. Sem dæmi um
hraðann má geta þess að millitími fyrstu
400 m. var 4:52,3, (McLane), Marshall
var þá búinn að mjaka sér í annað sæt-