Íþróttablaðið - 01.12.1948, Page 27

Íþróttablaðið - 01.12.1948, Page 27
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ 17 með beztu tímana komust i undanúrslit- in. Hefði verið mun einfaldara og sann- gjarnara, að láta 2 fyrstu auk 2ja með beztu tímana fara beint í úrslitin sam- anber aðra tilhögun keppninnar. Daginn eftir, 6. ágúst, fóru svo Þessi óþarfa undanúrslit, (semifinal) fram. Harup vann fyrri riðilinn á nýju Olym- píumeti, 5:25,7, en Caroen, sem varð 2. synti einnig undir fyrra metinu, 5:26,1. 3. varð Tavares á 5:31,1 og 4. Lees á 5:31,9 mín. 1 síðari riðlinum bar Curtis sigur úr bítum á sama tíma og gamla Olympíumetið, 5:26,4. Landi hennar Hels- er var 2. á 5:28,1 og Carstensen þriðja á 5:29,5 og loks varð Cathie Gibson 4. á 5:31,0 og komst Því einnig í úrslitin vegna tímans. þótt varla hefði mátt tæp- ara standa. En auðséð var að hún átti meira til, svo sem komið hafði fram í undanrásunum. Úrslitin fóru fram kl. 2% e. h. síðasta dag leikanna, 7. ágúst, í geislaflóði ágústsólarinnar, sem skein án afláts gegnum glerþak Wembley- hallarinnar. Viðbragðið heppnaðist yfir- leitt vel og eftir 50 metra voru allar mjög jafnar, Tavares þó ívið á undan hinum. Við 100 m. markið var Tavares enn fyrst, Harup rétt á eftir, þá Curtis, Carsten- sen, Caroen, Lees, Helser og Gibson. Við næsta snúning (150 m.) hafði Curtis tek- ið forustuna af Tavares, sem lét þær Harup um að leiða sundið. Nú fór Harup að setja upp hraðann og var samhliða Curtis þegar sundið var hálfnað, og hefir Ann Curtis og Karen M. Harup aö loknu lf00 m. sundinu. ef til vill ætlað að reyna að sprengja Curtis. En þetta reyndist hinni stílhreinu og glæsilegu dönsku sundkonu ofraun, sem ekki var að undra Þar sem þetta var ellefta keppni hennar í sömu vik- unni! Við 250 m. markið hélt hún þó enn i við Curtis, en þegar sú siðarnefnda sneri við eftir 300 metra, hafði Harup dregist ögn aftur úr. Caroen var nú kominn í 3ja sætið og Tavares í fjórða. Brezka stúlkan Gibson, sem lengst af hafði verið með Þeim öftustu, var nú kominn í 5. sæti og byrjuð að draga á forustuna. Við síðasta snúninginn, 350 m. var útséð hvernig fara myndi, því Curtis var orðin langt á undan og þaut áfram með skriðdrjúgum löngum tökum. At- hygli áhorfenda fór því að beinast að þeirri brezku, sem nú var kominn í 4. sæti og vann stöðugt á. 25 metra frá marki fór hún fram úr Caroen og var al- veg að ná hinni dauðþreyttu Harup, þegar markið birtist. Curtis hafði sigrað með yfirburðum og bætt Olympíumetið um hvorki meira né minna en 8% sek. Næstu 4 voru auk þess allar undir gamla metinu og var þetta því sérlega jafnt og gott sund þrátt fyrir fjarveru Gretu Andersen. Curtis hefir áður synt þessa vegalengd á 5:07,5 Harup á 5:13,0 og Gibson á 5:14,0, en þeim tímum mun öllum vera náð í 25 m. laug. Þetta voru einu verðlaunin, sem Bretar fengu í sund- keppninni. 100 METRA BAKSUND: Heimsmet; 1:10,9 C. Kint. Hollandi 1939 Olympsmet: 1:16,6 N. Senff, Hollandi ’39 1. Karen M. Harup, Danmörku 1:14,4 2. Sue W. Zimmerman, USA .. 1:16 0 4. Eva Novak, Ungverjalandi . . 1:18,4 5. Van der Horst, Hollandi .... 1:18,8 6. Van Ekris, Hollandi ......... 1:18,9 7. Muriel Mellon, USA .......... 1:19,0 8. M. Galliard, Holiandi ....... 1:19,1 Hér voru keppendur 24 og syntu í 4 riðlum. Fóru Þrjár fyrstu í undanúrslit auk þeirra fjögurra, sem beztan tíma höfðu. Undanrásirnar hófust 3. ágúst og var þeirra beðið með óþreyju af okkur löndunum Því íslenzk stúlka, Kolbrún Ólafsdóttir, var meðal keppenda í 1. riðli Okkur til mikillar ánægju náði hún góðu viðbragði og synti prýðilega fyrstu 50 Ann Curtis, USA, Olympíumeistari í lf00 m. skriðsundi. metrana. Snúningurinn tókst einnig vel, en því miður var hún svo óheppin að taka skakka stefnu og lenda í öðrum braut- arkaðlinum. Hún synti á yztu (7) braut. Og þótt hún væri fljót að átta sig tafði þetta hana um nokkrar dýrmætar sek. Hollenska stúlkan Van der Horst varð fyrst að marki, aðeins sjónarmun á undan tveim næstu. Þá kom hin laglega sænska stúlka Fredin, 2 metrum á eftir og loks Kolbrún um 4 metrum þar á eftir. tJrslit: 1. Van der Horst, 1:18,7; 2. Lane, 1:18,8; 3. Berlioux, 1:18,8; 4. I. Fredin, 1:21,2; 5. Kolbrún Ölafsdóttir Islandi 1:25,6 mín. — Þrátt fyrir óhapp- ið var árangur Kolbrúnar all góður og sá bezti, sem ísl. stúlkurnar náðu. Samsvarar þessi tími hennar um það bil 1:23,5 mín. í 25 metra laug, en þar er met hennar 1:22,0 svo hún hefir verið mjög nálægt því að ná sínum bezta á- rangri. Annars voru keppendur óvenju jafngóðir í þessu sundi og voru 20 af 24 með betri tíma en Kolbrún þar af flestar með lakari tíma en 1:20,0 mín. Góðkunn- ingi okkar frá landskeppninni við Norð- menn, Bea Ballintijn, varð einnig 5. i sínum riðli á 1:22,1 eða 1/10 úr sek. lak- ari tíma en ísl. met Kolbrúnar. Hefir hún þó synt bezt á 1:20,6 heima í Noregi. Þess má geta að Fredin, sem varð næst á undan Kolbrúnu slapp inn í undanúr-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.