Íþróttablaðið - 01.12.1948, Blaðsíða 60
50
svo lítið, haldast snjókristallarnir
lengi óskemmdir og einangrunarhæfni
snævarins einnig, svo að snjógerðin,
— eða skíðafærið — breytist lítið á
okkar mælikvarða.
En snjórinn sígur eða þjappast sam-
an, smátt og smátt, og mest það sem
undir liggur og er elzt. Hugsi maður
sér þverskurð gegnum snjólagið, þá
liggur oft neðst samþjappaður, kaldur
snjór, sem þó ekki er samanbarinn
eða frosinn á sama hátt og fokskarinn
okkar eða jöklasnjórinn. Eftir þvi sem
nær yfirborðinu dregur, verður snjór-
inn lausari í sér og sem láust duft
efst. í þverskurðinum finnur maður
varla íslög eða skararákir, eins og svo
oft hér, eftir hlákukafla eða sólbráð.
Þegar snjórinn hráðnar vegna lofthit-
ans, er sem hann gufi upp aðallega.
Þessi snjór er ákaflega fagur að
sjá, þcgar hann liggur sem þykk. mjúk
ábreiða yfir öllu landi, svo að varla
sér á dökkan dil. Og spaugilegt fannst
mér stundum að sjá, hvað hann getur
lagst ótrúlega ])ykkt ofan á litla fleti,
til dæmis á girðingarstólpa. En það
er ekki að sama skapi þægilegt að
vera á skiðum í slíkum snjó. Maður
sekkur í hann upp að hnjám og ham-
ingjan forði manni frá því að detta.
Skíðin eiga það þá til að festast svo
ótuktarlega í undirlaginu að maður
má kallast góður að sleppa með þá
mannraun eina að koma sjálfum sér
á fætur aftur.
Afleiðingin er því sú, að skíðafólk-
ið lieldur sér að langmestu leyti við
troðnar sldðaslóðir, hvort sem er á
fjalli eða flöt. Það eru því sömu skíða-
brautirnar, sem eru notaðar ár eftir
ár og troðast smátt og' smátt allan
veturinn, en á milli þeirra liggja svo
heilu spildurnar ósnertar með þess-
um líka dæmalausa fallega snjó.
En vei þeim, sem villist út í þann
fallega snjó ef liann er á dálitilli
ferð. Ef það er nú ekki einmitt einn
af meisturunum, þá er ekki að sök-
um að spyrja og stundum heyrist
braka i skiði eða fótlegg- En ráðið við
þvi er ofur einfalt. Upp úr snjónum á
næsta hól stendur staur og á staurn-
um hangir talsimatæki. Fyrsti maður
sem kemur á slysstaðinn kallar i sím-
ann og eftir nokkrar sekúntur sést
ÍÞRÓT.T ABLAÐIÐ
sjúkrasleðinn koma á fieygiferð ofan
af næsta fjalltopp-i og með honum
tveir læknar á skíðum, á sömu ferð
auðvitað. Og eftir nokkrar mínútur er
píslarvottur skíðaíþróttarinnar kom-
inn á sömu fleygiferð á sjúkrasleð-
anum í áttina að spítalanum, þar sem
landsins færustu sérfræðingar bíða til
þess að höndla bæði hann og pyngju
hans. —
Einn fyrsta daginn vorum við Árni
Stefánsson að „stúdera“ fjallshlíðina og
fórum rólega á skíounum niður svo-
kallaða „almenningsbraut“. Heyrðum
við þá allmikinn hávaða skammt frá
okkur. Við sveigðum þangað og stað-
næmdmust með okkar fegurstu „stopp-
kristíaníu". Þar lá þá upp í loft, djúpt
grafinn í lausa snjóinn, einn miðaldra
kvenmaður, geysilega máluð og lit-
skrúðug og bölvaði óguðlega, til skipt-
is á frönsku og ítölsku. Yfir henni
stumruðu tveir menn. Okkur þótti það
nokkuð lítið, svo að við hneigðum okk-
ur svo sem bezt við kunnuin og buðum
aðstoð okkar. Mennirnir tóku þessu vel,
en brostu og sögðust vera læknar og
mundu þeir bjarga málinu. Og það
skipti engum togum, upp á sleðann með
hana. á slíkum hraoa, að við Árni hefð-
um víst ekki haft roð við þeim þótt
lausbeislaðir værum.
Þarna í St. Moritz voru nú saman
komnir hópar hinna heztu skíðamanna
frá (i löndum. Flestir voru þeir komnir
á undan okkur til Sviss og höfðu verið
við æfingar á ýmsum stöðum þar í landi
en nú hafði allur hópurinn safnast sam-
an á áfangastaðnum og æfði sig í brekk-
unurn og skíðabrautunum við bæinn. ■—
Það var fyrst með nokkurri eftirvænt-
ingu og forvitni og ef til vill feimni sem
við blönduðumst inn í þennan hóp,
komnir utan af lijara veraldar, og skal
það engan undra. En þao hvarf fljótt.
enda virðist frjálsmannlegt og alúðlegt
viðmót vera algild regla meðal skíða-
fólks í öllum löndum.
Venjulega voru tilteknar brekkur eða
brautir opnar til æfinga á hverjum degi
og á ákveðnum tíma dagsins og fékk
hver fararstjóri skriflega tilkynningu
um það daginn áður. Vil ég skýra nokk-
uð nánar frá þessu, þar sem það hefir
sérstaka þýðingu i sambandi 'við skiða-
keppni, því að þar er ekki að ræða um
stranglega ákveoið form á keppniþraut-
unum, eins og i flestum öðrurn íþrótt-
um.
Olympíu-stökkbrautin var opin til
æfinga nokkrum sinnum þó ekki síðustu
vikuna á undan keppninni, því að Sig-
mund Rund, sem var eftirlitsnraður Al-
þjóðá-skíðasambandsins (F. I. S.) með
stökkkeppninni sá, að ef stökkpallur-
inn væri fluttur tveirn metrum ofar, þá
mundi koma betur í ljós mismunurinn
á beztu stökkmönnunum. Pallurinn var
þvi styttur óg Sigmund lrafði á réttu að
standa. Á meðan þessi breyting var
framkvæmd var stökkpallurinn í Pont-
resína notuð, sem ég hefi áður getið um.
Göngubrautirnar (fyrir 18 km. 50 km.
og 4x10 km. boðgöngu) liöfðu verið á-
kveðnar Jöngu fyrirfram og var búið að
undirbúa þær, merkja og troða áður en
við komum til St. Moritz. í hinum eldri
leikreglum um alþjóðlegt skiðamót voru
ákvæði um ])að, að ekki væri heimilt
að tilkynna það hvar göngubrautin lægi
fyrr en við nafnakallið, og varðaði það
frávísun frá leik, ef göngumaður gekk
brautina. eða jafnvel meðfram henni, á
undatt leik. Var þetta sniðið eftir hinum
norrænu leikreglum.
Nú hefir þetta ákvæði verið fellt á
hrott úr alþjóðaleikreglunum (1947)
með það fyrir augum, að skapa kepp-
endum jafnari aðstöðu. Það hefir alveg
sérstaka þýðingu að fá að ganga braut-
ina og kynna sér hana á undan képpn-
inni ef brautin er óslétt og liggur um
skóg, því að þá er það oft að maður sér
aðeins nokkra metra fram fyrir sig. —
Liggi nú brautin einnig niður í móti,
])á hikar ókunnur skíðamaður frekar
við að notfæra sér rennslu skíðanna til
fulls en hinn kunnugi.
Gönguhrautirnar lágu rétt framhjá
gistiliúsinu, þar sem við bjuggum og
sáum við göngumennina daglega að æf-
ingum. Einn daginn, eftir að leikarnir
voru byrjaðir, gengum við Hermann
Stefánsson nokkurn hluta af 18 km. og
50 km. brautunum, til þess að sjá
livernig þær væru lagðar. Við sáum
það fljótt, að þessar brautir gerðu mikl-
ar kröfur til þols og tækni göngumanna
og líklega meiri en liér á landi hefir
tíðkast, einkum þó að því er tæknina
snertir. Brautirnar voru mjög mishæð-
óttar og voru mishæðirnar bæði smáar