Íþróttablaðið - 01.12.1948, Page 67
IÞRÓTTABLAÐIÐ
57
KMTTSPTMUIIÓT
Knattspyrnufélag íslands hófst á í-
þróttavellinum í Reykjavík 4. júní s.l.
Fimm félög tóku þátt í mótinu að
þessu sinni. Reykjavíkurfélögin fjögur,
Fram, K. R., Yalur og Víkingur og svo
íþróttabandalag Akraness (í. A.).
Öll þessi félög voru mætt við setn-
ingu mótsins og gengu fylktu liði inn
á leikvanginn og staðnæmdust fyrir
framan áhorfendastúkuna, en þaðan
ávarpaði Agnar Kl. Jónsson, formaSur
K. S. í. leikmenn og áhorfendur.
Síðan hófst fyrsti leikur mótsins milli
Fram og í. A.
Fram — í. A. 3:1.
Þessi leikur var lélegur, allar spyrn-
ur ónákvæmar, staðsetningar slæmar,
innköst flest öll röng og svona mætti
lengi telja.
Fram skoraði fyrsta markið, en litlu
síðar kvittuðu Akurnesingar.
Það sem eftir var hálfleiksins gekk
stjórn ISl þarf að inna af hendi og myndi
án efa bera betri árangur ef stjórnin
hefði ekki látið ginnast til þess að eyða
miklu af orku sinni s.l. ár í óþarfa af-
skiptasemi af sérgreinarmálum sérsam-
bandanna og lent i óþörfum deilum
þar að lútandi. Ber skýrslan greinilega
vott um þetta „kappsmál" hennar því
þar eru taldir upp allir þeir ólöglegu
dómarar, sem hún staðfesti i blóra við
viðkomandi sérsamband, sérráð og dóm-
arafélag. Auk þess birtist samkomulag
það, sem stjórn ISl telur formenn sér-
sambandanna hafa gert, en þeir hafa sið-
ar neitað, enda samrýmist það hvorki
lögum ÍSl né lögum sérsambandanna.
Fleira er og í skýrslunni, sem rangt er
með farið og máli hallað á mörgum stöð-
um auk hins flausturslega frágangs á
isl. máli og prófarkalestri. Er það ekki
beinlínis hvetjandi fyrir hin ýmsu hér-
aðssambönd og félög innan ÍSl að hafa
skýrslur sínar réttar og nákvæmar, þegar
sjálf aðalstjórnin lætur slíkt plagg frá
sér fara. Ritstj.
á ýmsu, félögin skiptust á upphlaup-
um, en náðu ekki að skora.
í seinni hálfleik hóf Fram ákafa
sókn og sýndi stöku sinnum allgóðan
ieik, en tókst samt ekki að skora.
í lok hálfleiksins skoraði Fram tvö
mörk, en nú voru Akurnesingar farn-
ir að þreytast og höfðu litið vald yfir
boltanum svo að síðustu minúturnar
lá alltaf á þeim.
Dómari var Haukur Óskarsson.
r——— Eftir ----------------------
Hlöðver Bjarnason
K. R. — Víkingur 1:1
KR-ingar hófu sókn þegar eftir ieiks-
byrjun og héldu henni fyrstu mínút-
urnar. Mark Víkings komst oft í all-
verulega hættu i þessum hálfleik. Ólaf-
ur Hannesson, hægri útherji komst
tvisvar sinnum inn fyrir, en skaut i
bæði skiptin yfir markið.
KR-ingar skoruðu mark sitt i lok
fyrri hálfleiks og gerði Ólafur Hannes-
son það með föstu og fallegu skoti.
í síðari hálfleik kom töluverð harka
í leikinn. KR-ingar fengu dæmda vítis-
spyrnu á markmann Víkings, en Gunn-
ar Guðmannsson skaut i stöngina, en
knötturinn hrökk aftur lit.
í lok hálfleiksins fá Víkingar dæmda
aukaspyrnu innan vítateigs KR. Vik-
ingar „sentra“ fyrir markið og skjóta
síðan, boltinn hrekkur af vörninn og
út aftur og myndast nú þvaga fyrir
framan markið, sem endar með því að
það sjást fjórir KR-ingar standa á
marklínunni með boltann á miili sín.
Dómarinn flautar mark 1:1 og endar
leikurinn þannig.
Dómari var Guðm. Sigurðsson.
Valur — í. A. 3:0.
Þrátt fyrir óhagstætt veður náði Val-
ur allgóðum leik. Skiptingar voru ör-
INLíAMDS
uggar og oft mjög óvæntar, sérstaklega
hjá Sveini og Ellert, sem voru beztu
menn sóknarinnar.
Akurnesingar virtust vera eitthvað
illa upplagðir, og náðu mun iakari leik,
en þeir höfðu oft gert áður.
Valur var mest allan leikinn í sókn
og náði oft mjög skemmtilegum upp-
hlaupum.
Sveinn Helgason, skoraði fyrsta og
þriðja markið, en Einar Haildórsson
annað markið.
Fram — Víkingur 1:1.
Þetta var frekar daufur leikur. Bar-
áttuviljann vantaði hjá báðum liðúm.
Mest allan fyrri hálfleik var leikurinn
eintómt þóf um miðbik vallarins, en
þó gerði Fram einstaka hættuleg upp-
hlaup.
Þegar um 30 mín. voru af ieik tókst
Rikharði að skora.
Seinni hálfleikur hófst með sókn
Víkings og komst mark Fram oft í
hættu, en Adam bjargaði.
Fram hóf nú gagnsókn og náði nokkr-
um upphlaupum, en Gunnar varði vel.
Þegar 40 mín. eru af seinni hálfleik
tekst Bjarna Guðnasyni að skora með
föstu og fallegu skoti.
Nú fyrst virðast liðin rakna úr rot-
inu og ganga upphlaupin á báða bóga,
en hvorugum tekst að skora og endaoi
leikurinn svo með jafntefli 1:1, og eru
þetta mjög viðunanleg úrslit fyrir bæði
liðin.
Dómari var Hrólfur Benediktsson.
Eftir þenna ieik varð hlé á mótinu
þar til í ágúst.
K. R. — Valur 4:0.
Þetta var olltof einhliða leikur til
þess að hann gæti orðið skemmtilegur.
Leikurinn var frá byrjun stanzlaus
sókn af hendi IÍR.
Val vantaði 3 varnarleikmenn, svo
og hinn þaulreynda markmann sinn
Hermann Hermannsson. Hafði það að
sjálfsögðu mikil áhrif á leikinn.