Orð og tunga - 2020, Page 150
138 Orð og tunga
B. Sigtryggsson fjallar um Staf setn ing arorðabók og nýjustu breyt ing ar
á réttritunarreglum; Steinþór Stein grímsson, Sigrún Helga dótt ir og
Eiríkur Rögnvaldsson kynna Risamálheildina; Steinþór Stein gríms
son, Ari Páll Kristinsson og Halldóra Jónsdóttir segja frá vefgáttinni
málið.is; loks fjallar Ágústa Þorbergsdóttir um texta sem notaðir eru
við íðorðastarf á Íslandi. Greinarnar eru skrifaðar á dönsku, norsku,
sænsku og ensku, og hver grein hefst á stuttum útdrætti á ensku.
Ritið er aðgengilegt í heild sinni á eftirfarandi slóð: https://tidsskrift.
dk/index.php/nsil/index.
Jón Hilmar Jónsson. Bundið í orð. Greinasafn gefið út til heiðurs höfundi
í tilefni af sjötugsafmæli hans 2. janúar 2017. Ritstjóri: Ásta Svavars
dóttir. Reykjavík: Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
2017. (307 bls.) ISBN 9789979654452.
Afmælisrit Jóns Hilmars Jónssonar, prófessors emerítuss við Stofnun
Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, geymir þrettán greinar eftir
hann sjálfan. Greinarnar voru valdar í samráði við höfund og eiga
þær allar það sameiginlegt að fjalla um orðabókafræðileg efni. Fyrsta
grein bókarinnar er frá 2017 og hefur ekki birst áður á prenti. Um er að
ræða yfirlit yfir verkefni og viðfangsefni Jóns Hilmars frá því að hann
hóf störf við Orðabók Háskólans. Í greininni rekur Jón Hilmar þær
hug myndir sem mótað hafa störf hans í gegnum tíðina og segir frá
því hvernig tækninýjungar hafa breytt aðstæðum til orðabókagerðar
(sbr. Íslenskt orðanet). Aðrar greinar fjalla ýmist um fræðileg álitamál
eða hagnýt úrlausnarefni við orðabókargerð. Greinarnar eru ritaðar
á 27 ára tímabili og raðað í öfuga tímaröð. Þær eru ritaðar á íslensku,
norsku og ensku og aftast í bókinni má finna ritaskrá Jóns Hilmars og
útdrætti allra greinanna á ensku.
Mál og samfélag
Kristján Árnason. Á vora tungu. Afmælisrit til heiðurs Kristjáni Árna
syni. Ritstjórar: Ari Páll Kristinsson og Haukur Þorgeirsson. Reykja
vík: Háskólaútgáfan og Málvísindastofnun Háskóla Íslands. 2018.
(423 bls.) ISBN 9789935231840.
Bókin er safn greina eftir Kristján Árnason, prófessor emerítus við
Háskóla Íslands, og var gefin út í tilefni af sjötugsafmæli hans. Höf
und ur ritar sjálfur inngang þar sem hann segir í stuttu máli frá um
fjöllunarefni greinanna og setur þær í samhengi við þá fræðilegu sýn
sem hefur mótað störf hans frá upphafi. Efni bókarinnar er skipt í þrjá
tunga_22.indb 138 22.06.2020 14:03:54