Íþróttablaðið - 01.02.1983, Page 8
r
A heimavelli
Kemur
Sigurður
Sveinsson
heim?
Allt bendir til þess að Sig-
urður Sveinsson handknatt-
leiksmaður úr Þrótti sem að
undanförnu hefur leikið með
vestur þýska félaginu Nettel-
stadt muni hafa vistaskipti
þegar keppnistímabilinu ytra
lýkur. Nýjar reglur ganga í
gildi í þýska handknattleiknum
næsta vetur sem kveða svo á
um að hvert félag megi aðeins
hafa einn útlending í liði sínu
og það útilokar félagið að hafa
bæði Bjama Guðmundsson og
Sigurð. Er talið líklegt að það
velji Bjama frekar, þar sem
hann hefur verið einn af mátt-
arstólpum liðsins og sýnt
hvem leikinn öðrum betri, á
sama tíma og Sigurður hefur
átt nokkuð erfitt uppdráttar
hjá félaginu. Hvort Sigurður
kemur heim aftur mun óráðið,
en líklegt þykir að mörg þýsk
félög hafi áhuga á að fá hann
til sín og hefur t.d. heyrst að
Dankersen hafi áhug á að fá
íslending í stað Axels Axels-
sonar sem hætta mun hjá fé-
laginu að þessu keppnistíma-
bili loknu.
Búbbi
aftur í
landsliðið?
Frammistaða Jóhannesar
Eðvaldssonar í skosku úrvals-
deildinni í vetur hefur vakið
mikla athygli. Kunningi
íþróttablaðsins sem fylgdist
nýlega með Jóhannes í leik í
Skotlandi sagðist varla minn-
ast þess að hafa séð hann eiga
eins góðan leik. Yfirferð hans
á vellinum hafi verið ótrúlega
mikil, nákvæmni í sendingum
góð og yfirvegun í besta lagi.
Er reglulega ánægjulegt að
„Búbbi“ skuli gera það svona
gott og ekki er fráleitt að ætla
að hann muni koma aftur til
liðs við íslenska landsliðið,
ekki síst með tilliti til þess að
það vantarmann til þess að taka
við af Marteini Geirssyni sem
lýst hefur yfir því að hann ætli
sér ekki að leika fleiri lands-
leiki.
Leikurinn
við Eng-
land sá
eini sem
gaf tekjur
Sem kunnugt er voru knatt-
spymuleikir síðasta sumars
yfirleitt mjög illa sóttir og kom
það harkalega niður á fjárhag
KSÍ. Tap varð á öllum lands-
leikjum nema gegn Englend-
ingum og Hollendingum. Gaf
leikurinn við Englendinga
398.100 króna hagnað en leik-
urinn við Holland 2.499,45 kr.
Tap á landsleiknum við Aust-
ur-Þjóðverja var 157.725,75
krónur, tap á landsleik 21 árs
liðsins við Dani var 117.665,40
kr. og tap á leik 21 árs liðsins
við Hollendinga var 64.14135
krónur. Kosntaður við ferðir
landsliðanna til útlanda á ár-
inu varð svo tæplega milljón
krónur, eða 984.603,14 svo
nákvæm tala sé nefnd.
8