Íþróttablaðið - 01.02.1983, Page 45
Kristján Arason
Kristján Arason — tvímælalaust handknattleiksmaður sem á eftirað verða í fremstu röð íheiminum.
FH á góða möguleika, ef...
— Ertu tilbúinn að spá fyrir
um úrslit mótsins, þar sem FH,
Stjaman, KR og Víkingur keppa
til úrslita?
„Nei, ég vil engu spá. Þetta eru
allt góð lið, en þó er sá munur á
að mínum dómi að bæði KR og
Víkingur hafa mun meiri mann-
skap, þar er meiri breidd. Úrslitin
velta því talsvert á því, að við
sleppum við meiðsli, ef við verð-
um með okkar sterkasta lið, þá
eigum við alla möguleika, og hið
sama á við um Stjörnuna. Ég er
því bjartsýnn á árangurinn á
mótinu, það þýðir ekkert annað.“
— FH samanstendur núna af
ungum strákum, sem flestir eru
aldir upp í félaginu. Er þetta góð-
ur hópur?
„Já, mjög svo, samheldinn og
góður. Við komum upp í meist-
araflokk fyrir nokkrum árum,
þegar FH hafði verið í nokkurri
lægð vegna þess að of breitt bil
varð í endumýjuninni. Nú hefur
tekist að ráða bót á því, og FH er
aftur í sterkustu röð. Við höfum
lengi fylgst að, þessir strákar, upp
í gegnum yngri flokkana, og ætl-
um okkur að leika saman enn um
skeið!“
— Það er ekki á döfinni hjá
þér að leita fyrir þér erlendis?
„Jú, auðvitað er það í mynd-
inni, en það verður þó ekki næstu
tvö árin. Ég ætla að ljúka við-
skiptafræðiprófi við Háskólann
áður en ég fer út, og það tekur tvö
ár. Eftir það getur ýmislegt kom-
ið til greina, og mér hefur boðist
að fara til þriggja erlendra liða,
sem ég hef hafnað að svo
stöddu.“
Gætum sigrað, gætum feng-
ið skeli
— Að lokum, þið mætið Spán-
verjum í fyrsta leik úti, hvemig
leggst sá leikur í þig?
„Við munum að sjálfsögðu
reyna að sigra. Spánverjarnir eru
hins vegar erfiðir, álíka sterkir og
Danir hygg ég. Við eigum að geta
unnið þá, en við getum líka
fengið skell. Við erum við öllu
búnir, og landsliðið getur náð
langt í keppninni, jafnvel þótt við
byrjum á því að tapa fyrir Spán-
verjum. Við gerum það sem við
getum, öðru vil ég ekki lofa, og
engu spá!“
45