Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1983, Side 52

Íþróttablaðið - 01.02.1983, Side 52
„Skíðamaður ársins 1982” Einar Ólafsson — ungur og bráðefnilegur skíðakappi frá ísafirði sem náði mjög góðum árangri ígöngu á síðasta heimsmeistaramóti. Valdi skíðin fram yfir knattspyrnu og júdó Tvítugur ísfirðingur, Einar Ólafsson, hlaut titilinn „Skiðamaður ársins 1982“. Hann hefur verið með skíði á fótunum þegar færi hefur gef- ist svo lengi sem hann man eftir sér, eins og fleiri ísfirð- ingar og fleiri Vestfirðingar og Norðanmenn. 1978 hóf hann gönguiðkun og hefur síðan gert skíðagönguna að sérgrein sinni. — Það er mjög ánægjulegt að fá svona viðurkenningu. Ég játa að ég átti hálft í hvoru von á henni, því frekar fáir skíða- menn náðu að standa sig ytra á árinu 1982. — Hvemig var árið 1982 hjá þér? — Ég fór utan í janúar til undirbúnings þátttöku í HM-keppninni. Ég keppti þar á ýmsum innanfélagsmótum í skíðagöngu og gekk vel, vann sigra á nokkrum mótum. Síðan tók ég þátt í 15 km skíðagöngu á HM í Noregi. Ég varð þar í 53. sæti og var um þrjár og hálfa mínútu á eftir heimsmeistaranum. Hregg- viður Jónsson form. Skíða- sambandsins reiknaði það út með einhverri prósentureikn- ingsaðferð, að þessi árangur minn væri besti árangur sem íslenskur skíðamaður hefði náð í HM keppni. Eftir HM keppnina var ég svo gersamlega útkeyrður að ég sá þann kost vænstan að halda heim án frekari þátt- töku í kappmótum ytra. Næst tók ég þátt í punktamóti í Siglufirði í flokki fullorðinna og var enn svo eftir mig, að ég varð þar að hætta keppni. Ég vann hins vegar öll punktamót í 17—19 ára flokki, nema eitt í Ólafsfirði. Það var góður endir í keppni í þeim flokki. í fyrra varð ég tvítugur og flyst nú í flokk fullorðinna. Einar varð íslandsmeistari í 10 km og 15 km göngu 17—19 ára og þriðja íslandsmeistara- titilinn hlaut hann fyrir sam- anlagðan árangur á þessum vegalengdum. Þetta vann hann með nokkrum yfirburð- 52

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.