Íþróttablaðið - 01.02.1983, Síða 22
þess að vera í fremstu röð. Ásta
Urbanic úr Erninum var valin
borðtennismaður ársins og er það
í fyrsta sinn sem hún hlýtur titil-
inn, þótt hún sé búin að vera í
fremstu röð um árabil og hafi
unnið marga góða sigra. í þau tíu
ár sem borðtennismaður ársins
hefur verið valinn hefur aðeins
einn hlotið titilinn tvívegis,
Ragnhildur Sigurðardóttir úr
Borgarfirði sem varð fyrir valinu
bæði 1980 og 1981.
Fimleikamaður ársins
Þórir Kjartansson úr Ármanni
varð fyrir valinu er fimleikamað-
ur ársins var valinn í fyrsta sinn,
en næstu sex árin skiptu þau
Sigurður T. Sigurðsson, KR og
Berglind Pétursdóttir úr Gerplu
titlinum bróðurlega á milli sín —
og urðu þrisvar fyrir valinu hvort.
Nú varð ein hinna komungu og
bráðefnilegu stúlkna úr Gerplu,
Kristín Gísladóttir, fyrir valinu,
en hún varð bæði unglingameist-
ari og íslandsmeistari á árinu
1982 og stóð sig einnig með
ágætum á erlendum vettvangi.
Frjálsíþróttamaður ársins
Fyrstu tvö árin sem frjáls-
íþróttamaður ársins var valinn
féll titillinn í hlut hins góðkunna
kringlukastara Erlends Valdi-
marssonar, sem enn er í fullu fjöri
og vinnur góð afrek. Hreinn
Halldórsson, Evrópumeistari
hlaut síðan titilinn þrjú ár í röð,
en í ár varð Oddur Sigurðsson
hlaupari úr KR fyrir valinu og er
þetta í annað sinn sem hann
hlýtur sæmdarheitið, þar sem
hann var einnig valinn árið 1979.
Þess má til gamans geta að í fyrra
varð Sigurður T. Sigurðsson úr
KR fyrir valinu og hlaut þar með
sinn fjórða titil, þar sem hann var
þrívegis valinn Jimleikamaður
ársins, eins og að framan segir.
Glímumaður ársins
Tvíburabræðurnir Yngvi Þór
Yngvason og Pétur Yngvason úr
íþróttamenn ársins 1979. Birgir Viðar Halldórsson (tók við verðlaunum
Steinunnar Sæmundsdóttur), Hannes Eyvindsson, Oddur Sigurðsson,
Halldór Guðbjörnsson, Berglind Pétursdóttir, Edda Bergmann, Guð-
björg Eiríksdóttir, Marteinn Geirsson, Haraldur Geir Hlöðversson, Hugi
Harðarson, Ólafur H. Ólafsson, Gunnlaugur Jónsson, Brynjar Kvaran,
Jóhann Kjartansson, Guðsteinn Ingimarsson og Ólafur Sigurgeirsson
sem tóku við verðlaunum Gunnars Steingrímssonar.
Mývatnssveitinni hafa sannar-
lega komið mikið við sögu þegar
glímumaður ársins hefur verið
valinn og þarf engan að undra
þar sem þeir hafa verið framúr-
skarandi í þjóðaríþróttinni
undanfarin ár. í ár varð Pétur
fyrir valinu, enda var hann
glímukappi íslands árið 1982 og
einnig bikarmeistari. Var þetta í
þriðja sinn sem Pétur var valinn
glímumaður ársins.
Golfmaður ársins
Tveir golfkappar hafa hlotið
titilinn golfmaður ársins oftar en
einu sinni, Björgvin Þorsteinsson
frá Akureyri sem varð fyrir val-
inu 1973 og aftur 1977 og Hannes
Eyvindsson sem var valinn tvö ár
í röð 1979 og 1980. Nú hlaut
Sigurður Pétursson úr Golf-
klúbbi Reykjavíkur sæmdarheit-
ið — komungur kylfingur sem
mikils má vænta af. Sigurður
varð íslandsmeistari í golfi sl.
sumar og á í fórum sínum marga
unglinga- og drengjameistaratitla
frá undanfömum árum.
Handknattleiksmaður
ársins
Til þessa hefur enginn hand-
knattleiksmaður hlotið sæmdar-
heitið handknattleiksmaður árs-
22