Íþróttablaðið - 01.02.1983, Blaðsíða 63
Sundmaður ársins
um og fjrfaldur
Kalottmeisfari
— Ég verð að viðurkenna,
að ég átti hálft í hvoru von á
að vinna þennan titil, en um
hann hafði verið mikil barátta
milli Guðrúnar Femu, sund-
konu í Ægi og mín, sagði Ingi
Þór Jónsson, tvítugur Akur-
nesingur, sem nú endurheimti
titilinn „sundmaður ársins
1982“, en slíkan titil hlaut
hann fyrst 1980.
— Það sem útslagið gerði
mun vera að ég átti tvö bestu
afrek ársins, samkvæmt stiga-
töflu, en þeim náði ég í 200 m
skriðsundi, þar sem ég hlaut
813 stig og í 100 m skriðsundi
þar sem ég hlaut 812 stig.
Ætla má þó að fleira ráði
vali „sundmanns ársins“ en
tvö bestu afrek ársins. Ingi Þór
Jónsson vann marga sæta
sigra og glæsta og frábær af-
rek. Hann varð t.d. fjórfaldur
meistari á Kalott-keppninni í
sundi, sigraði í 100 og 200 m
flugsundi, 200 m fjórsundi og
var í sigursveit fslands í
4X 100 m fjórsundi.
Hann setti einnig Kalott-
met í þremur greinum, 100 m
flugsundi á 59.6 sekúndum,
200 m flugsundi á 2X10.7
mín. og í 4 X 100 m fjórsundi á
4:04.4 mínútum.
— Já, árið 1982 gekk þetta
allt þokkalega hjá mér. Ég
vann ellefu íslandsmeistara-
titla inni og úti og varð að auki
stighæstur allra keppenda í
Kalott-keppninni í Finnlandi.
En vænst þótti mér þó um
sigur Akurnesinga í bikar-
keppninni í sundi. Það var
sælustund er sá sigur var í
höfn, sagði Ingi Þór yfirlætis-
laust en ákveðið. Fáir íslenskir
íþróttamenn geta verið
ánægðari með árið en einmitt
Ingi Þór.
Ingi Þór Jónsson er einstak-
ur afreksmaður. Hann hefur
Ingi Þór Jónsson — sundmað-
urinn snjalli frá Akranesi.
sett 51 íslandsmet síðan hann
byrjaði að ryðja þeim úr vegi
árið 1980. Hann er nú hand-
hafi íslandsmeta í 9 greinum;
50, 100, 200 og 800 m skrið-
sundi, 50, 100 og 200 m flug-
sundi, 50 m baksundi og var í
Akranessveitinni, sem á ís-
landsmet í 4X100 m fjór-
sundi.
— Ég kom fyrst á sundæf-
ingu í Bjamarlaug á Akranesi
1972, þá tíu ára og hef átt þar
margar góðar stundir. Það er
merkilegt hvað sundfólk á
Akranesi hefur náð langt með
æfingum í þessari litlu laug,
sem aðeins er 12,5 m á lengd,
eða nokkru styttri en Laugar-
dalslaugin er breið. Ég held að
sundflokkur Akraness væri sá
langbesti í landinu, ef aðstað-
an þar væri sambærileg við
það sem er á ýmsum öðrum
stöðum. Sundáhuginn er mik-
ill á Akranesi og komast færri
að til æfinga en vilja. Hinn
sterki kjarni, sem þar er, laðar
æskuna að sundíþróttinni.
— Ertu ánægður með þró-
un mála í sundinu?
63