Íþróttablaðið - 01.06.1991, Qupperneq 6
menn hafa almennt í dag. Einnig hef-
urorðið mikil breytingsamfara skikk-
anlegum æfingatíma og nú fá menn
einnig greiddan vissan kostnað, sem
fylgir knattspyrnuiðkuninni, en þess-
konar greiðslur voru ekki fyrir hendi
þegar ég var að leika. Hvort knatt-
spyrnan sé betri í dag, en hún var
þegar ég lék, þori ég ekki að segja til
um. Þá kemur líka upp spurningin
um hvort hún sé betri knattspyrnu-
lega séð eða betri fyrir áhorfendur.
Það er Ijóst að einn hlutur kemur í
annars stað og með þeim breyting-
um, sem orðið hafa, hafa kannski viss
frumleiki og sköpunargleði í fótbolt-
anum horfið."
SKIPTIR EKKI MÁLI
HVAR MENN ERU
FÆDDIR
Það eru margir Keflvíkingar í röð-
um KR um þessar mundir, Ólafur
Gottskálksson, Ragnar Margeirsson,
Sigurður Björgvinsson, Gunnar
Oddsson og þú sjálfur. Er verið að
koma á fót Keflavíkurdeild í KR?
„Ég vil nú meina að það skipti ekki
höfuðmáli hvar á landinu menn eru
fæddir. Meðan þeir eru í KR eru þeir
KR-ingar. KR er ekkert sér á báti varð-
andi aðkomumenn í liðinu. Maður
sér í hverju einasta 1. deildar liði ein-
hverja aðkomumenn. Það koma
kannski upp einhverjar raddir þegar
svona margir menn úr sama bæjarfé-
lagi skipta yfir í eitthvað ákveðið fé-
lag, en eins og ég sagði þá tel ég alla
þessa menn vera KR-inga meðan þeir
eru í röðum félagsins."
Er ekkert freistandi að safna liði í
Keflavík?
„Auðvitað getur það verið freist-
andi að fá þá og fleiri KR-inga til liðs
við ÍBK, en menn verða að gera sér
grein fyrir því að þó svo að þessir
menn myndu ákveða að skipta aftur
yfir í ÍBK er ekki þar með sagt að liðið
verði eitthvað „spútniklið". Allir
þessir strákar voru í Keflavík og mað-
ur hlýtur að spyrja sig: Af hverju var
Keflavík ekki á toppnum þá og hver
segir að það sé eitthvað öruggt mál
að liðið verði að toppliði í 1. deild
endurheimti það þessa menn? Menn
eru náttúrlega samt sem áður alltaf
Keflvíkingar, en þegar þeir eru í ein-
,S!I&IÍRNES3A lif'iindi, ÚI'
TOÐIN
Á æfingu hjá gullaldarliði Keflvíkinga. Boltanum haldið á lofti með Rúnari
„poppara" Júlíussyni og Einari Gunnarssyni. Grétar Magnússon fylgist
álengdar með.
hverju öðru liði hljóta hagsmunir
þess liðs að verða settir á oddinn."
ÓHRESS MEÐ AÐ
GENGIÐ VAR
FRAMHjÁ MÉR
VARÐANDI 21 ÁRS
LIÐIÐ
Var ekki ómaklega gengið framhjá
þér þegar nýr landsliðsþjálfari var
ráðinn á síðastliðnu ári?
„Nei, ég tel að svo hafi ekki verið.
Það er undir stjórn KSI komið hvaða
menn sambandið velur hverju sinni
til þess að gegna landsliðsþjálfara-
stöðunni. í þessu tilfelli töldu þeir Bo
Johanson hæfastan í starfið og ég
hafði í sjálfu sér ekkert út á það að
setja.
Það, sem ég var aftur á móti óhress
með, var að framhjá mér var gengið
varðandi 21 árs liðið. Ég var alveg
tilbúinn að halda áfram með það lið.
Það var svo u.þ.b. einum mánuði eft-
ir að ársþing KSÍ hafði lýst yfir mikilli
ánægju með gengi liðsins að þjálf-
arastaðan var auglýst laus til um-
sóknar. Ég vissi að haft hafði verið
samband við menn og þeir hvattir til
að sækja um þessa lausu stöðu. Það
hafði þó enginn samband við mig frá
KSI þannigað ég lét hjá líða að sækja
um þjálfarastöðuna. Málið var ekki
það að einhver allsherjaruppstokkun
væri að eiga sér stað því að einungis
þrjár þjálfarastöður af sex voru aug-
lýstar lausar til umsóknar.
ÞAÐ HEFÐI
ALLAVEGA VERIÐ
HÆGT AÐ PAKKA
MÉR UNNIN STÖRF
Auðvitað set ég mig ekkert upp á
6